miðvikudagur, janúar 14, 2009
laugardagur, janúar 10, 2009
föstudagur, janúar 09, 2009
fimmtudagur, janúar 08, 2009
Það hefur gengið á með hinum ýmsu veðrabrigðum hjá okkur. Í gær var snjóstormur og tókum við okkur því frí frá skíðum og skoðuðum gamla gullnámu hér í nágrenninu. Það er víst gull enn til í námunni fyrir um $50m en það kostar meira að vinna það úr henni. Við fundum ekki mola á leiðinni en ferðin var gulls ígildi!
Það er líka búið að vera kalt með um 20 gráðu frosti og var allur hlífðarfatnaður notaður ásamt því að stoppa reglulega til að hlýja sér á heitu kakói og þvíumslíku. Snjóinn vantar sosum ekki og einnig hefur brostið á með sólskini og blíðu!
mánudagur, janúar 05, 2009
Við erum enn á skíðum og hefur bætt aðeins í snjóinn sem er vel. Á móti hefur þó kólnað ansi mikið og hefur verið um 20 gráðu frost og þarf því að stoppa reglulega til að hlýja sér og forðast frostbit. Það er þess vegna ekki gott að sitja í 2,5km í lyftu í 9 mínútur upp fjallið og frjósa í hel áður en hægt er að skíða sér til hita. Lyfturnar, og þar af leiðandi brautirnar líka, eru ansi langar og virðist svæðið að öllu leyti sett upp til að hafa langar brautir. Fækkað hefur töluvert af fólki núna eftir að jólafríið er búið og eru því nánst engar raðir í lyfturnar.
fimmtudagur, janúar 01, 2009
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
Við flugum 5 klukkutíma í vesturátt og komum til Breckenridge í Colorado þann 30. desember. Breckenridge er gamall námubær í 2.926m hæð sem er nú orðinn skíðastaður og býður uppá 155 skíðabrautir sem eru þjónustaðar með 30 lyftum. Hér er lyfta sem nær hæstu hæð í Norður-Ameríku um 3.963m sem er töluvert hærra en trjálína og er umhverfið þar dáldið líkt Bláfjöllum ... Veðrið er búið að vera gott hér með glampandi sól og um 5 stiga frosti og hefur gengið vel að skíða til að byrja með.
laugardagur, desember 27, 2008
Fórum í dag öll þrjú á Töfraflautuna í The Metropolitan Opera. Sýningin var fjörug og skemmtileg og mikið hlegið og dáðst að flottum búningunum. Ingu Huld fannst óperan bara skemmtileg enda var talað aðeins á milli atriða líka og sagan skemmtileg. Við fengum okkur svo afternoon tea á Four Seasons á leiðinni heim sem smakkaðist vel.
miðvikudagur, desember 24, 2008
GLEÐILEG JÓL
Þriðju jólin okkar hér í New York voru róleg og góð. Við ákváðum að sleppa hamborgarahryggnum þetta árið og höfðum önd sem heppnaðist vel. Að sjálfsögðu var rækjukokteillinn og jólaísinn á sínum stað - ekki má breyta of mikið út af hefðinni. Við hlustuðum svo á íslensku messuna klukkan 18 á okkar tíma og höfðum jól að íslenskum sið á New York tíma.
Þriðju jólin okkar hér í New York voru róleg og góð. Við ákváðum að sleppa hamborgarahryggnum þetta árið og höfðum önd sem heppnaðist vel. Að sjálfsögðu var rækjukokteillinn og jólaísinn á sínum stað - ekki má breyta of mikið út af hefðinni. Við hlustuðum svo á íslensku messuna klukkan 18 á okkar tíma og höfðum jól að íslenskum sið á New York tíma.
Herra Níels var hæstánægður með hina og þessa kassa og jólaskraut sem kom undan jólatrénu og skemmti sér konunglega - hann var hinsvegar ekki á því að hafa jólaslaufu!

laugardagur, desember 20, 2008
Inga Huld er lengi búin að tala um að fara á skauta og fundist það mjög spennandi. Loksins skelltum við okkur á skauta og fengum Pétur, Auði og Brynju með okkur og fórum á Lasker Rink efst í Central Park. Sjálfur hef ég aldrei skautað og var því ekki mjög spenntur eða yfir mig hrifinn af hugmyndinni. Þetta gekk þó betur en ég hélt og gátum ég og Inga Huld skautað án þess að halda í mömmu eða handriðið eftir nokkra hringi ... aðrir virtust hafa tæknina á hreinu og skautuðu með glæsibrag!

Við fórum svo öll á Turkish Kitchen sem er ekta í vetrarkuldanum og smakkaðist vel einsog og endranær ásamt tyrknesku hvítvíni. Heima buðum við svo uppá jólaglögg og smákökur og var dagurinn því vel planaður og vel heppnaður!
föstudagur, desember 19, 2008
Í dag snjóaði slatta - hann Herra Níels skemmti sér konunglega í glugganum við að selta snjókornin og stundum var hann alveg viss um að hann væri að ná einu og hoppar þá á gluggann. Eftir um 20 mínútur fór hann að fatta að þetta var ekki að ganga upp og fór og lagði sig enda dauðþreyttur!

Jóa kom með þá snilldarhugmynd að fara í Miðgarð og leika sér í snjónum. Það var mjög merkilegt að það var líklega um tvöfalt meiri snjór inni í garðinum en utan hans. Hitinn frá bílunum og byggingunum gerir hitastigið á götunum töluvert hærra þannig að snjórinn verður strax að leiðindaslabbi. Í garðinum var líklega um 10-15cm snjór sem er nú bara talsvert ... við skelltum upp Snæfinni snjókarli við miklar eftirtektir gangandi vegfarenda ... og sáum við svo fólk stilla sér upp með honum fyrir myndatökur þegar við vorum að fara.

Röltum síðan á Tavern on the Green og fengum okkur heitan drykk í kroppinn. Þaðan lá leiðin svo í lestina niður í Dean & Deluca til að versla ýmislegt góðgæti fyrir jólin ... hér er nú alveg hægt að missa sig.

Það lá þá náttúrulega beint fyrir að hafa jólahlaðborð heima með pate, síld, síldarsalati, graflaxi, reyktum laxi, kavíar, foie gras, ostum, rúgbrauði og flatkökum ásamt dönskum jólabjór og egils malt og appelsín ...

miðvikudagur, desember 17, 2008
Það var tap rehearsal hjá Ingu Huld í tap skólanum í dag. Við fórum og fylgdumst með einum tíma ... rosa fjör!
Síðan fór Inga Huld í heimsókn til vinkonu sinnar sem er með henni í tap og þær vildu náttúrulega endilega hafa "sleep-over". Við leyfðum það í þetta skiptið og ákváðum að nota tækifærið og skella okkur út ... hringdum því í Sigurgeir og Elínu sem voru til í að koma með okkur í skandinavískan jólamat á Aquavit.
föstudagur, nóvember 28, 2008
Í gær fórum við í fullbúinn Thanksgiving dinner hjá Sigurgeiri og Elínu. Vantaði ekkert uppá herlegheitin nema kannski magamál til að geta torgað í sig meira af kræsingum! Það er síðan erfiður föstudagur í vinnunni þar sem maður vildi helst enn liggja á meltunni. Reyndar gott að dagurinn er stuttur og er ég kominn heim um hálffjögur. Þessi vika er frekar róleg og stutt þar sem miðvikudagurinn var einnig búinn snemma.
laugardagur, nóvember 22, 2008
Ég átti "date" með eiginkonu minni í gærkvöldi ... hittumst eftir vinnu og fórum á nýju James Bond myndina ... sosum ekkert voðalega rómó en stoppuðum svo á nýjum vínbar sem opnaði þar sem byggingavöruverslun og lyklasmiður var fyrir ári síðan áður en það kviknaði í hjá þeim. Á vínbarnum var nóg að gera og fengum við sæti eftir um hálftíma og gátum fengið okkur litlar samlokur, skinkur og osta sem var skolað niður með rauðvíni ... þetta var meira rómó en bíóið ...
Það var svo ekki mikið planað í dag. Hitastigið var um mínus fjórar gráður á celcius þegar vaknað var og langaði okkur ekki mikið út í kuldann. Við létum okkur þó hafa það og skruppum í nýja IKEA búð sem opnaði í Brooklyn og höfðum við ekki farið þangað enn ... þetta er þá fjórða IKEA búðin sem við förum í á svæðinu og gátum ekki sleppt þessari. Þeir bjóða uppá fría leigubátsferð frá Pier 11 hjá Wall Street og tekur hún um korter ... var þetta því bara skemmtileg ferð til Brooklyn og fengum við að sjá frelsisstyttuna og strandlínu Manhattan í kaupbæti. Að sjálfsögðu vantar alltaf eitt og annað úr IKEA og var ýmislegt smálegt nauðsynjadót verslað ásamt því að kaupa sænskar piparkökur og annað sænskt góðgæti úr matvöruhorninu ... slepptum þó sænsku kjötbollunum í þetta skiptið sem og pylsu í brauði sem var á tilboði 50 cent stykkið. Wall Street var orðið jólalegt og var verið að skreyta jólatréið þar fyrir utan kauphöllina.