Fórum í langan göngutúr í dag í blíðunni - byrjaði reyndar aðeins á upplestri í morgun, það þýðir ekkert að bíða eftir rigningu hér !!!
Skráði inn 3 gamlar skólabækur á Amazon í gær til sölu - var mjög ánægður þar sem ég seldi eina bók strax í dag og þarf ég að senda hana á morgun. Fæ ég um 15 pund fyrir hana þegar búið er að draga frá þóknun Amazon en þá á ég eftir að borga póstkostnað. Þetta er þrælsniðugt og virðist virka vel - ætla ég nú að skrá inn allar mínar gömlu námsbækur sem litlar líkur eru á að ég eigi eftir að lesa aftur - geymi samt þær bestu til að geta gluggað í.
mánudagur, mars 31, 2003
sunnudagur, mars 30, 2003
Veðurblíðan heldur áfram - held að við séum farin að taka lit, ekki veitir af. Horfði í gær á hluta af landsleik Englendinga og Liechtenstein - ekki var leikurinn mjög skemmtilegur en dúóið frá Liverpool skoraði að sjálfsögðu glæsilegt mark. Það var nú bara fyrir tilviljun að ég datt á leikinn - ekki var hann mikið auglýstur, það er bara eitt sem kemst fyrir núna. Auglýsingar sem eru þannig: "back our boys" - eru ekki um landsliðið !!!
Í dag er Mothersday þannig að við Inga Huld fórum í bæinn í morgun og keyptum blóm og morgunmat fyrir mömmu. Mæðradagurinn hér er tengdur kaþólskri trú - þegar englarnir komu til Maríu Meyjar. Heima er mæðradagurinn að sjálfsögðu upprunninn frá Bandaríkjunum. Fórum annars að sofa um kl. 1 í nótt og vöknuðum kl. 9 eftir 7 klukkutíma svefn !!! Einn klukkutími tapaðist vegna þess að klukkunni var flýtt um klukkutíma í nótt þannig að breyta þurfti öllum klukkum á heimilinu - meira vesenið. Vorum síðan í miðbænum í dag að sleikja sólina, slappa af og drekka bjór. Inga Huld búin að vera á hausnum í allan dag - er voða mikið að horfa eitthvað í kringum sig en ekki fram fyrir sig. Uppskar af þessu rispur á hnéin og sprengda vör - lærir vonandi af þessum föllum sínum.
föstudagur, mars 28, 2003
Dagurinn í dag var tíðindalítill - pundið er reyndar að detta niður í 120 krónur þannig að það er alltaf að verða ódýrara og ódýrara að búa hérna ... þ.e. í krónum talið !! Um að gera að nota tækifærið og koma í heimsókn. Veðrið er svo gott að nágranninn er farinn að moka fyrir sundlaug, ætli ég verði þá ekki að fara út og slá garðinn aftur. Inga Huld er farin að tala ensk/íslensku og blandar tungumálunum saman, við tölum reyndar alltaf íslensku við hana þannig að hún hlýtur síðan að finna út hvaða orð eiga við hvaða tungumál. En henni finnst voða gaman að segja "sit down" og "come and play" - örugglega orð sem mikið eru notuð á leikskólanum !! Vinsælt orð er einnig "centimeter" sem hún pikkaði úr þætti á BBC þar sem verið er að kenna metra- og talnakerfið, mjög sniðugt.
Orðabók Ingu (ensk/íslensk):
oli ver - Tony Blair
fimmtudagur, mars 27, 2003
Fórum aftur í langa ferð til London í dag. Núna var förinni heitið til Greenwich til að skoða háskólann þar sem er staddur í austur-London einsog UEL nema núna fyrir sunnan ána. Campusinn þar sem arkitektúrinn er til staðar er dáldið austar og sunnar en Greenwich sjálft og vorum við um 25 mínútur í lest frá London Bridge. Þetta leit allt mjög vel út og hverfin þarna voru mjög fín, mun huggulegri heldur en norðan árinnar í East-Ham. Standardinn á hverfinu lækkaði reyndar dáldið þegar strætóinn sem við vorum í þurfti að stoppa för sína vegna þess að hent var í hann steini sem mölbraut eina rúðuna í honum. Fullt af skólakrökkum voru að fara heim og var tveggja hæða strætóinn fullur þegar einhver henti steini í glugga á efri hæðinni. Þurftum við að skipta um strætó og var þetta allt í tómu rugli. Hugsuðum reyndar um það hvað yrði sagt heima á Íslandi ef skólakrakkar á aldrinum 10 - 15 ára þyrftu að fara langar leiðir í strætó til að komast í og úr skóla - ekki væri það nú nógu gott !! Enduðum á að skoða leikskóla fyrir Ingu Huld sem var mjög fínn, reyndar dálítið lítill. Fórum ekkert inn í miðborg London núna heldur bara beint heim og keyptum okkur pizzu í Safeway á leiðinni heim til að borða.
Orðabók Ingu (íslensk/íslensk):
stigið - trappan
siglið - báturinn/skipið
krotið - strokleður
spilið - píanó
þriðjudagur, mars 25, 2003
Langur dagur í London
Lögðum af stað til London í morgun kl. 9 og komum heim núna um kl. 22. Tilgangur ferðarinnar var að skoða skóla sem Jóa hefur áhuga á að fara í næsta haust þ.e. UEL og er hann staðsettur einsog nafnið gefur til kynna í austur-London. Þetta er ansi löng leið frá Reading og vorum við komin skólann rétt fyrir hádegi. Campusinn sem arkitektúrinn verður í er nýbyggður og er við Docklands sem er rétt við Thames - allt saman leit þetta vel út. Síðan tókum við strætó upp í East-Ham til að fá lista yfir leikskóla í hverfinu og kíkja inná leigumiðlanir til að sjá hvort eitthvað væri til leigu þarna í hverfinu. Okkur var tjáð að við værum ansi snemma á ferðinni til að leita að leiguhúsnæði fyrir september og við beðin um að hringja í júlí. Fundum eina miðlun sem var með heilmikið til leigu í hverfi (Postal Code E6) við hliðina á skólanum sem okkur leist vel á. Stutt í skólann, stutt í ASDA og stutt í lestina (DLR). Fórum síðan og skoðuðum Tower of London, Tower bridge og löbbuðum meðfram Thames og upp til St. Paul´s Cathedral. Kíktum inní kirkjuna þar sem messa var í gangi - ansi mögnuð kirkja sem við mælum hiklaust með því að skoða. Fundum út að ekki er mjög gáfulegt að labba um í City á milli kl. 5 og 6 þegar straumurinn af jakkafataklæddum mönnum streymir úr vinnunni. Enduðum í Covent Garden þar sem við settumst inná lítinn huggulegan ítalskan og ódýran veitingastað. Inga Huld var reyndar orðin frekar þreytt á þessum tíma og því var borðað með hraði og við hröðuðum okkur heimí bólið.
mánudagur, mars 24, 2003
Það er sama veðurblíðan hér hjá tjöllunum - sumarið greinilega komið enda þurfti ég að draga fram sláttuvélina til að slá garðinn svo að við værum nú ekki til skammar hér í hverfinu !! Inga Huld er að horfa núna á Ávaxtakörfuna í hundraðasta skiptið - virðist hún seint þreytast á þessu leikriti. Söguþráðurinn er reyndar frekar áhugaverður og fjallar um Imma ananas sem kúgar alla í Ávaxtakörfunni og ætlar að krýna sjálfan sig konung yfir hinum ávöxtunum. Þegar gulrótin er sett í körfuna þá tekur hún sæti jarðarbersins sem lægst setti einstaklingurinn. Hún og jarðarberið taka sig síðan saman og gera uppreisn í nafni frelsis, vináttu og lýðræðis og fá hina ávextina í lið með sér til að koma í veg fyrir að Immi krýni sig konung. Allt endar síðan vel að lokum ...húrra !!
Í dag lést fyrsti breski hermaðurinn í átökum í Íraksstríðinu - það fer náttúrulega ekki framhjá manni hér enda fylgst vel með stríðinu í öllum fjölmiðlum. Tók eftir því að hlutabréfamarkaðir tóku góða dýfu í dag þegar markaðsaðilar virðast núna gera sér grein fyrir því að Írakar ætla að veita öfluga mótspyrnu við innrásinni og beita ansi lúalegum brögðum til þess. Verður það til þess að stríðið mun dragast á langinn og óvissan er því töluverð. BBC1 sjónvarpar nánast látlaust fréttaumfjöllunum um stríðið en gerðu reyndar hlé á því í nótt þegar óskarinn var sýndur - í staðinn var umfjöllun um stríðið á BBC2. Mínir uppáhaldsleikarar fengu nú ekki viðurkenningu í þessari atrennu en söngvarinn Eminem fékk verðlaun fyrir lag sitt í myndinni 8 mile. Hefur hann því sannað sig sem alvöru listamaður !!!
sunnudagur, mars 23, 2003
Best að prófa bloggið. Er ekki mjög duglegur að uppfæra hina heimasíðuna okkar - vona að þetta sé einfaldara og fljótlegra þannig að maður nenni oftar að skrifa eitthvað inná netið.
Uppgötvuðum t.d. í dag skemmtilegasta hluta Reading - enda við búin að vera hér í 6 mánuði þannig að við ættum að vera farin að þekkja umhverfið. Við fréttum af þessu í SS pulsupartíinu sem við héldum í gær - því miður engar myndir vegna þess að litla digital vélin mín gaf upp öndina og batteríið er búið í þeirri stærri. Þar komumst við að því að áin Thames er um 10 mínútna gangur frá miðbænum þannig að við gerðum okkur lautarferð þangað í 18 stiga hita og sól og blíðu í dag. Mjög fínt að slappa af þarna, liggja og sleikja sólina, horfa á bátana og svanina.