Mjög lítið um að vera núna - annað en lærdómur - próf í dag og svo aftur á föstudaginn, og svo aftur tvö í næstu viku ... þannig að það er bara verið að læra.
Þurfum svo að fara til London fyrir 10. maí til að kjósa í sendiráðinu. Erum að reyna að fylgjast með baráttunni á netinu, sá að Össur er búinn að tilkynna að Solla verður ráðherra hvort sem hún verður kosin á þing eða ekki ...er að átta sig á því að hún mun ekki ná inná þing. Greinilega minn misskilningur en ég hélt einhvern veginn að ráðherrar yrðu að vera kosnir á þing - en það er þá hægt að "ráða" ráðherra af götunni til að ráða. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt og það meira að segja af Össa !!
miðvikudagur, apríl 30, 2003
mánudagur, apríl 28, 2003
Í gær var hálftómlegt hjá okkur þar sem amma og afi voru farin heim til Íslands - Inga Huld og Jóa fóru og kvöddu á brautarstöðinni, fannst Ingu Huld sem svo að hún þyrfti að gráta en hætti svo við það og vinkaði ákaft og sendi fingurkossa. Annars bara slappað af og farið snemma að sofa - Valdi samt duglegur að læra þar sem próf var hjá honum í dag.
Inga Huld fór aftur á leikskólann í dag og var mjög ánægð með það - fékk greinilega að sprikla þarna og hamast vegna þess að hún fór upp til sín í miðjum kvöldmat klukkan 7 og fundum við hana þar sofandi í rúminu sínu

laugardagur, apríl 26, 2003
Sendi liðið til London í dag þar sem Jóhanna lóðsaði þau um Portobello markaðinn og sá um að þau gátu verslað eitt og annað. Komu þau úr þessari ferð með sitthvorn leðurjakkann og voru hæstánægð !! Leðurjakkasalinn var mjög góður og ekta sölumaður - engar verðmerkingar voru í búðinni heldur mældi sölumaðurinn fólk út þegar það spurði um verð og kvótaði svo ... "for you my friend ... only ... pounds". Gamli keypti fyrst jakka á sig og síðan á leiðinni úr búðinni fóru þau að skoða annan jakka sem þau létu manninn pranga inná sig þar sem hann gaf þeim svo mikinn afslátt af því að þau voru þegar búin að kaupa einn jakka. Fannst þeim markaðurinn mjög flottur og skemmtilegur og enduðu þau á að skoða Trafalgar Square. Tengdó er núna á fullu að rembast við að klára Fosters kassann sem hann keypti í Safeway í gær (eða um daginn) á 13 pund svo hann þurfi ekki að skilja neitt eftir ... vegna þess að í fyrramálið er plönuð heimferðin. ; ( Sem betur fer keyptu þau nýja ferðatösku í gær þannig að þau geta komið heim öllu dótinu sem þau hafa verslað í ferðinni.
föstudagur, apríl 25, 2003
Aftur farið að versla í dag í bænum og Valdi að læra. Um kvöldið var síðan farið á Tapas barinn La Tasca - tengdó leist reyndar ekkert á þetta í byrjun þegar panta átti alla þessa smárétti !!! Komst svo reyndar að því að hann varð alveg saddur af öllum þessum smáréttum. Ingu Huld fannst þetta ferlega sniðugt og sérstaklega af því að hún sat á bekk þannig að hún gat lagt sig og dundað sér þarna.
fimmtudagur, apríl 24, 2003
miðvikudagur, apríl 23, 2003
Jæja dagurinn í dag var rólegur, sofið út og síðan legið í sólinni. Fengum okkur þó göngutúr út í Safeway og JJB sport þar sem gerð voru stór innkaup, m.a. verslaði afi nýja leikskólatösku fyrir Ingu Huld (rosa flott búin að ganga með hana í allan dag og fara í ferðalög í garðinum). Inga Huld komst reyndar að því í einu ferðalaginu sínu í dag með afa, að garðskúrinn var opinn og sláttuvélin horfin !!! Var Valdimar settur í að kanna málið (var reyndar mjög duglegur að læra í dag) og kíkti til nágrannanna sem söknuðu einnig eitt stykki keðjusagar ... svo að það lítur úr fyrir að véltækjaþjófurinn sé kominn á kreik... Nágranninn sem er að byggja vegg og sundlaug ákvað í framhaldi af þessu að hækka vegginn úr einum metra í tvo metra á hæð, og upplýsti okkur um leið að ein af sex kanínum þeirra væri fótbrotin en erum við ekki viss um að þessi tvö mál tengist.
Þegar við höfðum jafnað okkur á þessum atburðum var grillið hlaðið og tekið til við að elda kvöldmatinn, eftir mat fóru þeir karlmenn svo á lókalinn og horfðu á leik Manchester United - Real Madrid á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu. Því miður fyrir Man. United aðdáendur þá náðu þeir einungis 4-3 sigri sem nægði þeim ekki til þess að komast áfram og hafa því lokið þætti sínum í meistaradeildinni að sinni. :-(
kveðja Jóa.
Frá Lókalnum.
Gaman var að Skotunum á barnum sem héldu með Arsenal og voru þ.a.l. ekki stuðningsmenn mufc - voru þeir frá bænum Paisley og höfðu eitt sinn Íslending í sínu liði (líklega Þórólfur Beck) sem rann alltaf á rassinn í snjónum. Hlógu þeir mikið að þessu en voru sammála því að Eiður Smári væri góður. Ansi gott var þegar þeir kölluðu að liðsmenn United væru "sæd", það var alveg hrikalega fyndið þegar tengdó snéri sér við og spurði þá hvaða orð þetta væri, þetta væri orð sem hann kannaðist alls ekki við. Aftur sögðu þeir "sæd" og allur barinn skellihló þegar skotinn byrjaði að benda á rassinn á sér og sagði "sæd" aftur og aftur. Þá komst tengdó að því að "sæd" er skoskur framburður á orðinu "shit" - mest af öllum hló þó Valdi sem var ekkert að benda tengdó á misskilninginn.

þriðjudagur, apríl 22, 2003
Vöknuðum eldsnemma svo hægt væri að fara með Ingólf að versla áður en hann væri keyrður á flugvöllinn - vélin átti að fara í loftið klukkan eitt þannig að það þurfti að leggja af stað frá Reading um klukkan tíu. Við lögðum svo af stað klukkan hálf-ellefu á Heathrow og horfðum svo á hann labba inní brottfararsalinn - Inga Huld sendi skjaldbökuna sína, sem er með kubbunum hennar, með honum heim og varð hún allt í einu voðalega sár þegar hún sá á eftir Ingólfi fara vegna þess að hún fattaði þá allt í einu að skjaldbakan sín var að fara. "Hvar er skjaldbakan mín!!!" æpti hún grenjandi á flugvellinum og var alveg óhuggandi - hún sofnaði síðan þegar við komum aftur í bílinn og svaf í rúma tvo klukkutíma, þegar hún vaknaði var hún alveg sátt við það að skjaldbakan væri á Íslandi að bíða eftir henni.
Við keyrðum svo í tuskubúð rétt hjá Heathrow en var þar víst ekkert merkilegt - fékk stæði beint á móti búðinni og svo heppilega vildi til að þar var einnig pöbb þar sem tengdó gat fengið sér bjór og við sátum þar úti og biðum á meðan Inga Huld svaf og konurnar skoðuðu tuskur. Eftir þetta var stefnunni heitið til norð-austur London, nánar tiltekið Beckton hverfið til að sýna tengdó tilvonandi tilverustað okkar. Að komast frá suð-vestur hlutanum í norð-austur hlutann tók jafnlangan tíma fyrir okkur og fyrir Ingólf að fljúga til Íslands eða tæpa 3 klukkutíma !! Við löbbuðum síðan um UEL campusinn og keyrðum um hverfið og fengum okkur að lokum að borða áður en við keyrðum heim á leið. Heimleiðin var aðeins skjótari og komum við í Tesco búð í Reading til að versla en tengdó var þá orðinn ansi stressaður vegna þess að Barcelona-Juventus var að byrja í sjónvarpinu. Drifum við okkur því heim til að skófla í okkur restinni af lambalærinu og spældum eggjum áður en ég og tengdó skiluðum bílnum og röltum síðan á lókalinn og fengum konuna á barnum til að kveikja á sjónvarpinu til að við gætum horft á leikinn. Hún fann fyrir okkur stöðina á meðan hún lét renna Guinness í glös fyrir okkur og vísaði okkur síðan inní annan sal á barnum þar sem við gátum horft á leikinn á breiðtjaldi - þar gátum við setið tveir í rólegheitunum og horfðum á flottan sigur hjá Juventus í framlengingu.

mánudagur, apríl 21, 2003
Ókum í dag til Bath - borg sem byggð var að mestu af Rómverjum, og voru þeir þar með heit böð, spa og sauna. Var þetta í annað skiptið sem við komum þangað þannig að við vorum nokkuð góð að sýna öðrum merkilega hluti. Fórum inní kirkju, Bath´s Abbey, og löbbuðum um gömul rómversk böð sem byggð voru í kringum heitar vatnsuppsprettur sem eru þarna. Ótrúleg tækni sem Rómverjarnir bjuggu yfir í kringum árið 0 í byggingalist - gólfin byggð þannig að heitt loft lék undir þeim þannig að það var heitt. Pollurinn sem Snorri sullaði í á Íslandi á árum áður, Snorralaug, bliknaði, vægast sagt, í samanburði við þessi böð. Borðuðum kaffi í elsta húsi Bath (1482) og fengum þar Sally Lunn´s Bun sem er bökuð eftir 300 ára gamalli uppskrift. Jóa og amma skoðuðu einnig búningasafn sem hafði að geyma sögu tískunnar síðustu 400 árin - meðal annars var þar kjóllinn sem J-lo var í á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2000 hannaður af Versace ...frááábært. Vorum síðan það sein í bæinn að búið var að loka Safeway þannig að kvöldmaturinn var borðaður á TGI Fridays ... Ingólfi til mikillar ánægju. Er hann að fara heim á morgun þannig að hann er núna að pakka ofan í tösku. Sáum síðan um kvöldið þátt um svikaþáttinn í Viltu vinna milljón og var frekar augljóst hvernig annar keppandi hóstaði til að leiðbeina sigurvegaranum til þess að vinna ...mjög merkilegt.
Haldiði ekki að ég hafi síðan selt gamla hagfræðibók eftir Gravelle á Amazon fyrir heil tuttugu pund ... góður bissness það.
GLEÐILEGA PÁSKA
Páskasunnudagur í dag - dagurinn tekinn í rólegheitunum ...sofið frameftir og bíltúr tekinn um Reading eftir hádegi. Fundum þá öllum til mikillar ánægju ansi flott tivolí hér í einum garði - sérstaklega var Inga Huld ánægð með það og fór hún í öll tæki þar sem hún gat verið í bíl og fór einnig á hestahringekju með mömmu sinni. Um kvöldið var síðan íslenskur graflax og grillað íslenskt lambalæri sem var alveg frábært ...þó ég segi sjálfur frá.

laugardagur, apríl 19, 2003
Heldur betur kólnað hér í dag - þurftum að fara út í síðbuxum, peysu og úlpu !! Byrjað var eldsnemma í morgun á því að fara á Farmers Market og þar var keypt léttvín, sveppir og ávaxtasafi. Síðan var ferðinni heitið til Birmingham sem var um tveggja tíma akstur. Þessi borg er alveg skelfilega flókin og erfitt að rata í henni, búðirnar ekki heldur áhugaverðar að mati stelpnanna. Við fundum okkur stæði í miðborginni og stelpurnar fóru í búðirnar og strákarnir hoppuðu uppí næsta leigubíl og var hann vinsamlegast beðinn um að keyra okkur á Villa Park. Þar átti að hefjast klukkan þrjú leikur Aston Villa - Chelsea ... samkvæmt okkar upplýsingum hafði Aston Villa ekki tekist að sigra Chelsea á heimavelli síðan 1994 þannig að heimamenn voru ekki mjög bjartsýnir fyrir leikinn. Um 40.000 manns voru á leiknum ... tvisvar sinnum fleiri áhorfendur en í gær á Reading leiknum. Fyrir utan leikvanginn fyrir leik sáum við kunnuglegan mann og þegar hann heyrði í okkur rauk hann á okkur og sagði ..."Íslendingar hér !!" Var það enginn annar en Guðjón Þórðarson á ferð í góðum fíling og óskaði hann okkur góðrar helgar, júhú !! Tveir Íslendingar eru í þessum liðum, Jóhannes Karl Guðjónsson (Joey) hjá Aston Villa og Eiður Smári hjá Chelsea. Við fögnuðum gífurlega þegar Íslendingarnir voru nefndir á nafn í hátalarakerfinu og litið var á okkur hornauga þegar Eiði var fagnað !! Joey byrjaði inná en fór síðan af velli meiddur eftir um 15 mínútur og Eiður kom ekki inná fyrr en um miðjan seinni hálfleik þannig að við sáum nú ekki mikið af okkar mönnum. Leikurinn var samt mjög skemmtilegur og Aston Villa mikið betri og skoruðu þeir á elleftu mínútu við miklar undirtektir áhorfenda ... og kom stoðsendingin að sjálfsögðu frá Joey !! Eftir mörg færi Villa manna í seinni hálfleik skoruðu þeir aftur á sjötugustuogáttundu mínútu og ætlaði þá allt um koll að keyra. Chelsea komst síðan aðeins í gír undir lokin eftir að hafa ekki getað neitt og skoraði eitt mark á áttugustuogníundu mínútunni og urðu menn þá stressaðir í stúkunni og héldu að þeir myndu missa sigurinn úr höndunum svona í blálokin. Héldu þeir þó sínu og voru menn sáttir við þennan sanngjarna og góða sigur. Síðan var haldið heim á leið og kvöldmaturinn tekinn á hraðbrautinni á Burger-King og farið snemma að sofa til að allir geti verið hressir og kátir fyrir páskaeggin á morgun.
föstudagur, apríl 18, 2003
Skoðuðum Windsor kastala í dag sem er hér nálægt en gátum bara skoðað hluta af honum þar sem hann var lokaður að mestu vegna einhverra athafna sem þar fóru fram. Fengum við því bara að ganga um kastalasvæðið og sluppum við að borga aðgangseyririnn sem var 1.300 íslenskar krónur ... var það samt ágætt í blíðunni þar sem hér er ennþá stuttbuxnaveður og sólarblíða og yfir 20 stiga hiti. Gamli er orðinn sólbrunninn á skallanum, Ingó á nefinu, mæðginin á öxlunum, Valdi á hægri hendinni en Inga Huld harkar þetta allt saman af sér og er mjög sátt við lífið og tilveruna.
Strákarnir fóru síðan á völlinn eftir að hangikjötið og uppstúfurinn var snæddur. Reading-Nottingham Forest byrjaði kl. 7:45 með miklum látum - 21.612 áhorfendur mættir á þennan líka fína leikvang. Leikurinn rosagóður - liðin spiluðu reyndar varsamlega í byrjun og ekki mikið um færi, samt nóg sungið og hrópað. Um miðjan seinni hálfleik skoraði Reading síðan glæsilegt skallamark og ætlaði allt um koll að keyra. Var greinilegt að íslensk stuðningshróp þriggja Íslendinga á vellinum höfðu mikið að segja þar sem þessi sigur nokkurn veginn tryggir Reading liðið í Play-Offs til að komast í Úrvalsdeildina. Gleymdi að tilkynna ykkur að þessi leikur var sýndur á Sky-Sport þannig að þið hefðuð getað fylgst með okkur þar. Þessi leikur er fín upphitun fyrir Úrvalsdeildarleikinn á morgun í Birmingham ... Aston Villa - Chelsea.

fimmtudagur, apríl 17, 2003
Komin heim eftir ferð á suðurströnd Englands í skutlunni - búin að ferðast 380 mílur. Ferðuðumst um í stuttbuxum í blíðunni og sóluðum okkur á ströndinni. Byrjuðum ferðina í gær á því að keyra til Torquay sem er heimabær Agötu Kristí - fórum þar á ströndina og Inga Huld byggði sandkastala og við dýfðum tánum í sjóinn. Hann var nú frekar kaldur en Inga Huld var hæstánægð með strandarferðina og vildi alls ekki fara heim fyrr en henni var lofað ís og fleiru. Keyrðum síðan til West Bay þar sem við áttum pantaða gistingu á B&B (Durbeyfield Guesthouse) - var það gamalt og huggulegt, þó að sturtan og baðið virkuðu illa. Borðuðum á The Seagulls í West Bay og fengum þar meiriháttar góða sjávarrétti, lúðu, tígrisrækjur, skötusel og nautakjöt á góðu verði. Eftir matinn var fundinn staður sem sýndi Sky-Sport svo að strákarnir gætu horft á seinni-hálfleik af arsenal-mufc. Það var líka þessi meiriháttar flotti staður og enduðum við kvöldið á þessu líka fína balli þar sem ein kona söng allt kvöldið. Minnti þetta á íslenskt sveitaball og var Inga Huld í svaka stuði og var mjög hrifin af fjólubláum glimmer kjöl söngkonunnar. Þegar enginn nennti að fara með Ingu á dansgólfið gafst hún upp á okkur og skellti sér bara sjálf í dansinn og var hæstánægð með ballið. Ætlar hún að endurtaka þetta fljótlega. Dagurinn í dag hófst á enskum morgunverð á gistiheimilinu sem sló nú ekki út morgunmatinn á Northumberland sem er náttúrulega í sérflokki. Við fengum okkur síðan göngutúr um ströndina í West Bay í blíðunni áður en við keyrðum til Weymouth þar sem við borðuðum hádegismat og skoðuðum þar kastala (Portland Castle) sem Hinrik áttundi byggði á fimmtándu öld til að verjast innrásum Frakka og Spánverja. Var það merkilegt sérstaklega þar sem kastalinn og höfnin var mikið notað í seinni heimsstyrjöldinni og var ýmislegt plottað þarna. Leið lá síðan til Bournemouth til að finna strönd og sand fyrir Ingu - vorum við þar reyndar frekar seint á ferðinni þannig að það var eilítið farið að kólna fyrir sólböð. Inga Huld lét það nú ekki á sig fá og byggði sandkastala með Ingó og pabba og var hæstánægð með lífið ....þar til átti að halda heim á leið. Fékkst loks til að koma með gegn því að plata afa til að kaupa handa sér ís. Þá lá leiðin heim og gekk það vel - allt vel merkt hér og náttúrulega góður co-driver sem las á kortið og vísaði veginn. Greinilegt samt að Bretarnir eyða páskunum á ströndinni núna þar sem umferðin var töluvert þung á móti okkur og drógu þeir hjólhýsin á eftir sér í margs konar stærðum. Gamla settið sátt við að sitja afturí og láta bara keyra sig á milli staða og þurfa ekki að pæla of mikið í hlutunum nema helst að hafa áhyggjur af því hvort það ætti að vera í stuttbuxum eða hafa peysu með sér út þegar stoppað var.
þriðjudagur, apríl 15, 2003
Gott veður og blíða í dag - ef kíkt hefði verið á síðuna í dag hefði daman á hægri hliðinni verið ansi léttklædd !! Borgar sig að kíkja oft á síðuna okkar vegna þess að næstu daga er spáð heiðskíru og 25 stiga hita ... ekki vera hissa á því að ekki verði skrifað mikið næstu daga þar sem við ætlum bara að vera á ströndinni næstu daga að sóla okkur.
Jóa þrælaði settinu og Ingó út í dag - byrjaði með því að sýna þeim háskólasvæðið og fór svo með þau niður að Thames í piknikk. Sýndi þeim þar skipastigann sem er eiginlega bara trappa og endurnar gáfu skít í Ingó, í orðsins fyllstu merkingu !! Inga Huld stjórnar öllum hægri vinstri ... Ingó stattu þarna ... sittu þarna ... vertu þarna ... vertu svona ... ég taka mynd af þér ... gerðu svona ... Ég var heima að læra í dag í góða veðrinu en fær loks að fara út á morgun þar sem ég þarf að keyra bílinn - erum búin að finna baðstrendurnar í Englandi og stefnum þangað í sólina með bíkiníið ... jibbý ... lúxus líf í bretalandinu. Gömlu hjónin eru að verða útkeyrð þannig að þau bíða bara eftir að fá að sitja í bílnum og helst eftir því að komast á hælsubælið í Hveragerði.
Fékk reyndar að setja saman grill sem tengdó keypti í dag þar sem þau vildu endilega grilla í góða veðrinu. Þannig að þegar lærdómnum lauk þá fékk ég bjór og skrúfjárn og setti saman grillið í blíðunni og fékk síðan einnig að grilla - kem að góðum notum.

sunnudagur, apríl 13, 2003
Tengdó var sýnd London á einum degi og eru þau nú sofandi í sófanum heima fyrir framan sjónvarpið. Fórum með lestinni til London í morgun og byrjuðum á að labba niður Regents street og fara í Hamleys (dótabúð á 6 hæðum) síðan farið framhjá Buckingham og upp að Big Ben. Maraþon var í gangi þannig að mjög mikið var af fólki á þessu svæði og götur lokaðar - olli það ýmsum töfum í dagskrá okkar. Þegar búið var að skoða Big Ben var farið með undergroundinu og Tower of London og Tower Bridge skoðað - síðan labbað upp til City og þá þurfti að finna McDonalds fyrir Ingó áður en hann færi yfir um. Þegar það var afgreitt var farið aftur í undergroundið og nú var farið niður til Soho og þá þurfti að friða gamla með því að stoppa á einum pub. Enduðum á því að borða á kínverskum veitingastað í Chinatown - sami staður og Valdi borðaði á í útskriftarferðinni með hagfræðinni og stóð hann enn fyrir sínu. Er gamla settið þá búin að sjá nánast allt merkilegt í London enda eru þau ansi þreytt.
laugardagur, apríl 12, 2003
Jæja mikið gert í dag - Valdi var heima að læra meðan Jóa og Inga fóru með settið í bæinn ...gamli og ingó fóru á pöbbinn á járnbrautastöðinni og horfðu á leik, man. utd. unnu newcastle við mikinn fögnuð þeirra - aðrir gestir hrifust með þeim og byrjuðu að fagna með þessu liði sem enginn vissi deili á !! Annars fengum við ýmislegt íslenskt með gestunum, ostur, hangikjöt, lambalæri, íslenskt nammi, páskaegg og Ora baunir - nauðsynjavörur á hverju heimili. Inga Huld mjög ánægð með alla athyglina sem hún fær núna og fer hamförum ...fékk sólgleraugu í dag og var algjör pæja.
Ef þið eruð ekki klár á því við hvaða flokk ykkar málum ber saman við þá getið þið athugað það hér á www.afstada.net sem skýrir þetta allt saman. Ömmi sagði í dag á Vísi að hann vildi ríkisstjórn með frjálslyndum og samfylkingu - flott samsull ...í lokin endaði hann á því að ekki væri endilega víst að Solla yrði forsætisráðherra þar sem hann væri ekki sammála því að gerður væri glamúr í kringum einn einstakling og allt snérist um. Fór þá að hugsa um það hvernig kommúnisminn virkar ...stalín, lenín o.fl. ...allt snýst um einn einstakling - samrýmist ekki alveg hans skoðunum.

föstudagur, apríl 11, 2003
Spenningurinn eykst þar sem amma og afi koma í heimsókn í kvöld ... með páskaegg !! ...og verða í rúmar 2 vikur (húff). Inga Huld er farin að sofa og síðan var hún mjög sátt (og spennt) að amma Inga myndi koma og vekja hana seinna um kvöldið og við myndum fá okkur köku (fjögurra laga súkkulaðiafmæliskaka fyrir Ingólf sem bökuð var úr kílói af súkkulaði, 12 eggjum, 600 gr smjör og 500 gr smjörlíki og eitthvað af þurrefnum). Argos bæklingurinn var mjög vinsæll í dag og skoðaði Inga hann nokkrum sinnum og einnig áður en hún fór að sofa - þar sýndi hún okkur það sem hana langaði í afmælisgjöf og jólagjöf ...mjög sniðugt. "Pabbi, pabbi ...kaupa sona fyrir Ingu".
fimmtudagur, apríl 10, 2003
Greinilegt að við eigum von á gestum hingað - þegar við vöknuðum í morgun var snjókoma - bjuggumst ekki við því ... var reyndar ekki mjög mikil og hvarf strax. Inga Huld var lengi að mála í dag og fannst henni gaman - mamma og pabbi þurftu reyndar að stöðva hana þegar hún var byrjuð að mála stólinn sinn og hafði slett aðeins yfir nýþvegna þvottinn og á gólfteppið ...skildi ekki alveg æsinginn í liðinu !!
Ég var að lesa á fullu þar sem ég komst að því að próftaflan er þannig sett upp að öll prófin mín eru í fyrstu viku próftímabilsins - sem sagt próftímabilið er 3 vikur en öll prófin mín 5 eru sett í fyrstu vikuna ...einstaklega góð skipulagning.
Orðabók Ingu
stinga - tannstöngull eða grein með þyrnum

miðvikudagur, apríl 09, 2003
Kalt hjá okkur núna - fer niður fyrir frostmark á nóttunni þannig að bifreiðaeigendur þurfa að skafa, hvurslags eiginlega veðurfar er þetta !! Hélt að við gætum farið að spara gaskyndinguna til að þurfa ekki að eyða svona miklu í gas. Safeway Megastore opnaði í dag þannig að vöruúrvalið jókst í súpermarkaðnum okkar töluvert - getum núna keypt ásamt því að kaupa mjólk og kex, bolla og Plasma sjónvarp fyrir 5000 pund !!! ...haldiði að það sé munur ... Annars var Valdi að lesa á fullu í dag og Jóa að taka til fyrir tengdó. Inga Huld var því frekar leið og var alltaf að ýta á takkana á tölvunni og áherslumerkja í bókina hans pabba - fannst frekar sniðugt að pabbi væri að lita svona í bókina.
Nú auglýsa þeir stöðugt í sjónvarpinu hér að sjónvarpstækið eyðir meira rafmagni á stand-by yfir nóttina heldur en þegar horft er á það eina kvöldstund - allir að ýta á off takkann á sjónvarpinu þegar búið er að horfa og þið sjáið muninn á rafmagnsreikningum.
Framboðslistarnir tala nú ekki um annað en að gera samkomulag um kosningabaráttuna - samfylking vill ekki sjónvarpsauglýsingar, vinstri grænir vilja ekki að frambjóðendur verði settir í pínlega aðstöðu og hvað skyldi koma næst - hvernig væri bara að semja um úrslitin og spara dáldinn pening sem hægt væri að veita til erlendra námsmanna ???

þriðjudagur, apríl 08, 2003
Hringur um London
Byrjuðum daginn snemma á því að ná í bílaleigubílinn sem við höfðum pantað - var það líka þessi fíni Ford KA. Áður en við lögðum af stað til London þá fórum við í Safeway og keyptum ýmislegt sem erfitt er að bera heim - 20 lítra af vatni, 10 lítra af mjólk, 4 lítra af djús og 3 lítra af bjór !! Fylltum við skottið af þessu og fórum með heim - minnkar þetta heimburðinn ansi mikið á næstu dögum. Við stefnunni heitið til Austur-London og keyrðum við norður fyrir London eftir M25 og skoðuðum síðan 2 leikskóla í hverfinu sem við erum að spá í að flytja í. Hittum síðan íslenska stelpu sem er að nema á öðru ári í arkitektúr í UEL og sýndi hún okkur aðstöðuna sem hún hefur í skólanum. Á leiðinni heim keyrðum við svo suður fyrir London og fórum enn eftir M25 - vikum reyndar af leiðinni til að skoða kastala en hann var síðan lokaður þegar við komum að honum - var þetta samt ágætis rúntur eftir sveitavegunum sem minntu eilítið á þjóðvegi Íslands, þröngir, holóttir og allir í beygjum. Eini munurinn var að ekki sást skógurinn fyrir trjánum. Lentum síðan í smávegis flækju á leiðinni heim þar sem við heyrðum í útvarpinu að það væri tugkílómetra röð á M25 vegna áreksturs þá fórum við fyrr af hraðbrautinni og keyrðum eftir sveitavegum langleiðina heim og eru þeir ekki alveg eins vel merktir einsog hraðbrautin.
Bíllinn kom heldur betur á óvart - keyrðum á honum um 250 mílur og eyddi hann ca. 25 lítrum - var hann góður í borgarakstrinum en mest kom á óvart hversu fínn hann var á hraðbrautinni, haggaðist ekki þar sem við þutum áfram um sveitir Bretlands ... mælum hiklaust með þessum bíl.
...las að Solla ætlar ekki að hækka skatta ef hún kemst til valda á Íslandi (ásamt Helga Hjörvari) - minnir að ég hafi einhvern tímann lesið þetta áður ... ??

mánudagur, apríl 07, 2003
Komumst að því að marsmánuður var metmánuður í sólartímum talið hér í Bretlandi frá því ca. 1960 - síðan ég byrjaði í páskafríi fyrir um 25 dögum hefur verið tvisvar skýjað og einu sinni rigning ...ansi magnað. Fórum í bæinn í dag í verslunarleiðangur - keyptum okkur ferðatösku í Debenhams á 60% afslætti, var það fínn díll, svaka fín taska með hjólum, haldföngum og öllu saman. Ég fékk buxur fyrir sumarið og Jóa sumarjakka - einnig bættum við upp diskinn sem brotnaði um daginn ...vonum að ekki brotni annar í staðinn. Inga Huld fékk ekki neitt og var eitthvað sár með það en frískaðist síðan þegar við minntum hana á það að hún var nýbúin að fá sokka og þá fengu mamma og pabbi ekki neitt - var hún þá voða ánægð !! Leist henni líka vel á töskuna sem hún getur sett dótið sitt í þegar hún kemur heim til Íslands í sumar. Tókum síðan til í garðinum, sláttur og gamlar greinar teknar - voða fjör ...búinn að slá tvisvar fyrir páska !!
sunnudagur, apríl 06, 2003
Jæja lítið gerðist hjá okkur í dag.
Fórum á róló og í Safeway, komustum að því að Safeway Mega store opnar á miðvikudaginn og verður það mikil tilbreyting fyrir okkur. Á leið okkar í Safeway í dag tókum við eftir stórri skemmu sem innhélt verslun að nafni Makro, kom reyndar síðan í ljós þegar við komum inn í hana að þetta var heildverslun og þurfti sérstakt meðlimakort til að geta verslað, okkur til mikilla vonbrigða. Eldaði ég Farmers Market dinner við miklar undirtektir annarra sambýlismeðlima. Ölið var reyndar ekkert spes en lambið var ágætt, rauðvínið rokkaði sem og eplabakan sem var bökuð af bóndakonu sem leit út fyrir að hafa bakað eplabökur síðastliðin 50 ár. Horfðum þess á milli á formúluna sem var með fjölbreytnu sniði að þessu sinni. Þulurinn hafði rétt fyrir sér fyrir keppni með orðum sínum um að fólk ætti nú að koma sér fyrir með te og kex því þetta yrði söguleg keppni, þegar hún myndi loks hefjast. Schumacher keyrði auðvitað langbest þangað til hann keyrði útaf og endaði keppnin eftir að hafa verið stöðvuð sökum áreksturs og voru úrslit samkvæmt reglugerð. Sá sem lenti í þriðja sæti slasaðist og gat því ekki mætt á verðlaunapall og sá sem taldi sig hafa lent í fyrsta sæti þurfti að sætta sig við annað sæti eftir að hafa fagnað sigri. Þulirnir slógu þeim íslensku við með mun markvissari og betri lýsingu sem og upplýsingagjöf. Sem sé ágætur dagur í dag. Kveðja Jóa.

laugardagur, apríl 05, 2003
Laugardagur í dag - ekki mikil tilbreyting fyrir okkur þar sem við erum hvort sem er ekki að gera neitt. Fórum þó í bæinn í morgun á The Farmers Market þar sem bændur í nágrenni Reading koma saman og selja vörur sínar. Þar var hægt að fá allt mögulegt heimagert; heimabakað, heimabruggað, heimablandað, heimaplantað og heimaslátrað og ýmislegt fleira. Keyptum ýmislegt þarna til að styrkja grey bændurnar hér ... keyptum í sunnudagsmáltíðina, lambakjöt (neck fillet), sveppi, kartöflur, rauðvín, bjór og eplaböku - verður mjög enskur matur. Þetta er mjög sniðugt og byrjaði fyrir nokkrum árum hjá Bath og breiddist þetta þaðan til annarra bæja í Englandi að hafa svona markað. Rauðvínið sem við keyptum er frá ´96 Boze Down - ekki mikið gert af rauðvínum á Englandi en eitthvað er gert af hvítvínum, fengum við að smakka hjá vínbóndanum og var þetta bara alveg ágætt.
Síðan var tekið til við sokkaleit fyrir dótturina og eftir 5 búðir fundust loksins réttir litir og voru keyptir sokkar þar - eru þeir reyndar í stærra lagi en hún stækkar svo hratt núna. Einnig þurfti að bæta við í leirtauið þar sem við fáum svo marga gesti yfir páskana en seinna um daginn tókst Jóu svo að brjóta disk þannig að það þarf að fara aftur á morgun og kaupa disk !!
Horfði á leik á lókalnum sem var alveg skelfilegur - leiðinlegt þegar dómarinn tekur sig svona til og skemmir heilan leik sem ætti að geta verið skemmtilegur ... en það verður víst bara að hafa það - unnum bikar af þeim nýlega !!
Eftir þetta var bara slakað á í garðinum og sólskinið sleikt - erum að verða ansi sóluð og þurftum við að vinna sólvörn á hana Ingu þar sem hún var orðin ansi rauð á kinnunum.

föstudagur, apríl 04, 2003
Pöntuðum í dag bílaleigubíl fyrir næsta þriðjudag - ætlum að keyra á honum til East-London til að skoða hverfið í kringum UEL nánar og kíkja á leikskóla. Fínt að fara á bíl til að sjá aðeins umhverfið betur. Annars bara slappað af í dag og legið úti í garði í sólbaði á milli þess sem gluggað var í bók.
Sá þessa mynd af veðurfarinu hjá Berki og stal henni - fannst þetta frekar sniðugt !!
Sá þessa mynd af veðurfarinu hjá Berki og stal henni - fannst þetta frekar sniðugt !!
fimmtudagur, apríl 03, 2003
Löbbuðum um bæinn í dag og leituðum að páskaskrauti (þ.e.a.s. Jóhanna leitaði) en fundum ekki neitt. Bretarnir virðast ekki mjög hrifnir af páskaskrauti - kaupa sér bara Kit-Kat eða Bounty páskaegg þar sem súkkulaðistykki fylgir með. Pantaði í gær á emaili miða á leikinn Aston Villa - Chelsea og fékk þá í pósti í dag, fannst mér það skjót og góð þjónusta. Kannski ekki margir að fara á leikinn ...sem verður þann 19. apríl - en gaman verður að fylgjast með Eiði og Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Dagskráin fyrir tengdó er farin að taka mynd á sig:
Reading - Nottingham Forest þann 18. apríl.
Aston Villa - Chelsea þann 19. apríl.
Gaman að fylgjast núna með kosningaloforðunum - hvaða flokkur býður flottasta pakkann. Sá að Framsóknarflokkurinn býður pakka sem samanstendur 56% af körlum og 44% af konum - og leggur flokkurinn áherslu á að þrjár konur leiði listann. Skil ekki þessa áherslu - hefði frekar haldið að þeir myndu leggja áherslu á það að það væri gott og hæft fólk á listanum í stað þess að taka það endilega fram hvers kyns það er. Skildi þetta fólk vera ljóshært eða dökkhært ?? Þeir enda síðan stefnuskrána á því að afnema beri verðtryggingu lána til skemmri tíma en 20 ára - eru ekki stofnanir í einkaeigu sem bjóða þá þjónustu að veita lán ?? Það hljóta að vera neytendur sem velja það hvort lánið þeirra verði verðtryggt eða óverðtryggt - bæði lán eru í boði ...allavega var það þannig þegar ég yfirgaf landið.

miðvikudagur, apríl 02, 2003
Dagurinn í dag leið hratt þrátt fyrir að lítið væri gert. Horfði á England - Tyrkland á lókalnum í kvöld og var leikurinn fínn - mun skárri en Liectenstein leikurinn. Mikil barátta og vann England sanngjarnt 2-0. Enn heldur það áfram að Tyrkir ná ekki að skora gegn Englendingum. Gestirnir virtust frekar ánægðir með leikinn og þá sérstaklega hann Wayne Rooney sem stóð sig vel ...kölluðu hann reyndar Spooney og skildi ég ekki alveg grínið.
Inga Huld farin að verða eitthvað leið að hanga svona með foreldrum sínum þannig að farið var með hana á róló í dag - var hún ánægð með það. Borðaði hún síðan án smekks og ætlum við að reyna að halda því áfram - hún er orðin svo stór. Fórum síðan í Safeway til að kaupa kodda fyrir ömmu og afa sem eru að koma í heimsókn og ekki er enn búið að opna Safeway Mega Store hjá okkur sem átti að opna í dag !! Vorum við frekar svekkt með það ...

þriðjudagur, apríl 01, 2003
Jæja, kom að því - rigningin komin og hitastigið lækkaði um heilar 9 gráður, varla hægt að bjóða manni uppá þetta ...hitastigið komið niður í 10 gráður !!! Núna seinnipartinn er reyndar aftur orðið heiðskírt og von á sól næstu daga segja veðurfræðingarnir. Upplesturinn byrjaði á fullu í dag þar sem veðrið var ekki gott til útivistar. Inga Huld er farin að hvíla Ávaxtakörfuna og horfir núna á Talnapúkann á hverjum degi, er það ágætt - hún er farin að telja upp að tíu bæði á íslensku og ensku, ruglar reyndar dáldið saman málunum. Síðan eigum við í mestu vandræðum með að komast hjá því að hún fari að sofa fyrir kl. átta þar sem hún heimtar fljótlega eftir kvöldmat að fara í bólið og láta lesa fyrir sig.
Gamli GSM síminn minn dó alveg um daginn og þurfti ég að fjárfesta í nýjum. Fór því til Vodafone og fann ódýrasta símann í búðinni, Motorola síma sem virkar svona líka aldeilis vel. Kostaði 79.99 pund án nokkurrar skuldbindingar. Sölumaðurinn vildi nú frekar selja mér Ericsson eða Nokia síma og sagði mér að valmyndirnar væru svo flóknar í þessum síma - síminn er reyndar algjör snilld og valmyndirnar mjög góðar og jókst hann enn í áliti hjá mér þegar ég komst að því að það er titrari í honum líka. Ég held að þessir sölumenn fái hærri hlutdeild af því að selja Ericsson og Nokia síma og skýrir það e.t.v. af hverju þeir símar seljast svona vel.
Stríðið virðist eitthvað vera að missa flugið í sjónvarpinu - allavega tala þeir dáldið um landsleikinn á morgun gegn Tyrkjum og segja þeir að þetta sé mikilvægasti leikur síðan heimsmeistarakeppnin var. Það er eflaust alveg rétt enda ekki mikið verið að gerast í landsleikjum síðan heimsmeistarakeppnin var !! En þeir virðast dáldið hræddir við Tyrkina enda eru þetta bronshafarnir frá heimsmeistaramótinu.