Skandall vikunnar hjá Tony
Alltaf nóg um að vera hjá honum Tony. Einsog fréttirnar sögðu frá þá byrjaði dagurinn vel hjá Tony eða þangað til að hann var spurður að því hvort hann hefði látið njósna um Kofi Annan !!! Símar hleraðir hjá Sameinuðu Þjóðunum og Kofi veitt efitrför og annað slíkt. Alveg magnað að fjölmiðlunum tekst alltaf að finna eitthvern skandal um manninn og ef það er ekkert nýtt þá draga þeir bara upp eitthvað gamalt og fríska uppá það.
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
mánudagur, febrúar 23, 2004
Bolla Bolla
Bolla bolla lýsir útlitinu vel eftir bolludaginn - telst mér til að ég hafi borðað samtals 16 rjómabollur í dag og í gær ... að meðtöldum kjötbollunum í kvöldmatinn reyndar. Hér var mikill bollubakstur í gær þar sem Inga Huld átti að taka með sér bollur fyrir allan krakkaskarann á leikskólanum. Jóhanna hafði minnst á þetta við fóstrurnar í síðustu viku og þeim leist svo vel á þetta að þær voru búnar að setja þetta í plan dagsins í dag þannig að Jóhanna hafði engra kosta völ annað en að baka bollur og gat ómögulega bakkað útúr þessu. Inga Huld fór svo einnig með bolluvöndinn sinn í leikskólann og bollaði þar mann og annan.
Wintry Week
Þrátt fyrir allt vorið sem komið var hjá okkur er aftur orðið kalt - hitastigið komið í frostmark og hitastigsspáin í veðurfréttunum er einföld: "Cold".
laugardagur, febrúar 21, 2004
Vorið sprettur úr spori
Ég og Inga Huld fórum í hjólatúr í dag - hjólaði Inga á leikvöllinn og síðan fórum við í hreinsunina að ná í fötin sem við fórum með um síðustu helgi. Aftur var mesta sportið að reyna að stinga mig af og þurfti ég einu sinni að grípa hana frá falli þegar hún fór á fullu niður smávegis halla, sem henni fannst hið mesta fjör. Í garðinum eru farin að spretta blóm og páskaliljur og laufblöð eru farin að koma á tréin. Ég gaf Jóhönnu einmitt páskaliljur og túlípana í gær í tilefni konudagsins sem er á morgun ... það er semsagt tiltölulega páskalegt hjá okkur.
Útigrillað lambalæri
Í kvöldmatinn var útigrillað lambalæri og í desert var ís og grilluð jarðarber, brómber og bláber með makkarónum og súkkulaði. Þetta var mjög íslenskt í okkar huga þó að ekkert af þessu væri upprunnið frá Íslandi. Síðan horfðum við á Spaugstofuna á netinu og sofnuðum síðan yfir upptöku af fréttunum - mjög íslenskt. Spaugstofan er nú eitthvað farin að slappast og fannst okkur hún ekki mjög fyndin. Planið er síðan að horfa á Sjakalann með Bruce Willis á BBC3.
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Hamborgarar í hádegismat
Það eru fáir krakkar í leikskólanum hjá Ingu Huld þar sem vetrarfrí er í skólum (ekki hjá Jóu þó) - á morgun er hún ein og er planið hjá fóstrunum að fara á hamborgarastað í hádeginu og gera eitthvað úr deginum. Er Inga mjög lukkuleg með það og líst vel á planið ...
Græna kortið dýrt
Þarf að endurnýja mánaðarkortið mitt á morgun sem gildir í lestar og strætó - kostar það 93 pund, takk fyrir.
Skrifaði annars mína fyrstu ávísun í gær !!! Hef aldrei notað ávísanir en þarf nú í þessu frumstæða landi að nota þetta aldagamla apparat. Hef reyndar ekki ennþá afhent viðtakanda hana og hefur því ekki komið í ljós hvort rétt hafi verið farið að þessu ...
cheers
sunnudagur, febrúar 15, 2004
Ódýrari um tylftina
Ég og Inga Huld fórum í bíó í dag á "Cheaper by the dozen" með Steve Martin. Fjallar hún um hjónakorn sem eiga tólf börn og flytja til stórborgarinnar. Þetta er síðan náttúrulega bara bölvuð vitleysa og Ingu Huld fannst þetta í lengri kantinum - vildi fara áður en myndin var búin. Við horfðum þó á alla myndina en ég held að poppkornið hafi vakið mesta lukku hjá Ingu.
laugardagur, febrúar 14, 2004
Valentínus kemur
Búið að afgreiða vikuverslunina í Sainsbury í dag -ég og Inga Huld þurftum síðan að fara í aðra og stærri Sainsbury lengra í burtu þar sem ekki var til túnfiskur í búðinni okkar. Jóhanna varð eftir heima að læra á meðan við skruppum - túnfiskurinn var til í þetta skiptið og héldum við uppá það með því að fara á Starbucks og fékk ég mér svartan Americano en Inga fékk appelsínusafa. Á heimleiðinni tókum við síðan vídeó - Inga Huld valdi sér jólaspólu með prúðuleikurunum og ég tók Down with love með Ewan McGregor, Reneé Zellweger og bróður hans Frasier ... var þessi spóla valin í tilefni Valentínusardagsins ... Túnfiskurinn var síðan alveg meiriháttar góður enda Jóa meistarakokkur að elda og ekki skemmir fyrir að elda eftir Jamie Oliver uppskrift. Hann var mareneraður með sítrónu og pipar og síðan grillaður í ofni í 1 mínútu á hvorri hlið - alveg frábært með Ondarre, Rioja víni frá 1998 ... mjög svo rómantískt í tilefni Valentínusar.
Á fullu á hjólinu
Annars er daginn tekið að lengja og er farið að verða vel bjart á morgnana þegar ég fer í vinnuna, það styttist í sumarið !! Ég fór með Ingu Huld út að hjóla í dag og hún er orðin heldur betur dugleg að hjóla, greinilega orðin mun sterkari í fótunum heldur en hún var í haust - við höfum því miður ekki gefið okkur tíma til að fara út að hjóla lengi og hún var alveg á fullu. Ég þurfti að hlaupa með henni og greinilegt að hún mun stinga mig af fljótlega - ég reyndi því að leggja áherslu á að kenna henni á bremsurnar og að hún mætti ekki fara yfir götu án mín. Við fórum í ágætis hjólreiðatúr í hreinsunina með jakkaföt og bindi sem er hér nálægt okkur og síðan litum við í búð sem selur ýmis konar dót fyrir bíla. Þar fann ég "Back to black" efni sem ég þarf að setja á bílinn - nefnilega um síðustu helgi þegar ég var að bóna bílinn þá fór dáldið af bóninu á svörtu listana á bílnum og skildi eftir sig ljóta hvíta bletti ... ég er greinilega kominn úr bílabón æfingu. Inga Huld var nú ekki ánægð með öll þessi stopp og vildi bara hjóla. Þegar við komum aftur heim þá var hún á svo mikilli ferð og ætlað að snarbeygja inn innkeyrsluna að ég þurfti að grípa í hana svo hún myndi ekki velta á hliðina!!! Henni fannst þetta bara gaman ... er svo mikill gaur ... og talað mikið um það hvað hún hjólaði hratt og mikið.
Fer fram í ensku
Þegar Jóa kom í leikskólann um daginn varð hún mjög hissa að heyra Ingu Huld vera í hrókasamræðum við einn strákinn á leikskólanum og fóstrurnar - sagði hún heilu setningarnar á ensku og hafði lítið fyrir því. Fyrstu setningarnar við mömmu sína voru síðan á ensku en þegar hún heyrði hana tala íslensku þá skipti hún yfir. Enskusletturnar hafa minnkað töluvert hjá henni í íslenskunni og virðist hún vera farin að skilja nokkuð vel á milli.
sunnudagur, febrúar 08, 2004
Veðrið stóðst væntingar í gær og grilluð var úti nautasteik. Eini vandinn var að grilla í myrkrinu þar sem ekki er útiljós í garðinum - notast þurfti við ljóstýruna sem kom út um stofugluggann. Þetta gekk þó alveg upp og var steikin ljúffeng og góð. Meðlæti voru sveppir með gráðosti, tómatar með pestó og mozzarella, kúrbítur og svo náttúrulega köld sósa ... algjört nammi.
Í dag þrifum ég og Inga Huld síðan bílinn hátt og lágt, að utan sem og innan og er hann skínandi fínn núna. Þegar verkinu var lokið var Inga Huld rennandi blaut en hafði skemmt sér konunglega við þrifin.
föstudagur, febrúar 06, 2004
Nýja serían af Friends byrjuð í sjónvarpinu - enn hægt að hlæja að þeim og er það vel eftir alla þessi þætti þeirra. Stelpunum tókst að týna um daginn einum hjólkoppi af bílnum - gerðist það þegar Jóa þurfti að afhýða banana fyrir Ingu Huld og rakst þá gangstéttarkantur á bílinn með þeim afleiðingum að hjólkoppurinn rúllaði undan. Á leiðinni í skólann í morgun fundu þær hjólkoppinn aftur og var hann heill á húfi og er kominn aftur á sinn stað !!
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Tel að hitamælirinn okkar sé bilaður - hann sýnir nú 14.8 gráðu hita !! Ef áframhald verður á þessari blíðu þá er stefnt að því að grilla bara úti um helgina ... það væri nú ekki amalegt að fá sér góða útigrillaða nautasteik og rauðvínsglas með ...
Síminn okkar annars kominn í lag - kalla þetta nú bara ágætis þjónustu hjá BT - fékk SMS frá þeim í dag þar sem þeir tjáðu mér að búið væri að laga vandamálið. Öllum símtölum hefur líka verið beint sjálfkrafa í GSM símann minn, mér að kostnaðarlausu og fæ ég einhvern afslátt á næsta símreikning vegna þessarar bilunar. Nokkuð ánægður bara með þetta bákn.
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Fengum í dag bréf frá Blackheath High School sem hljóðaði þannig:
"It was a pleasure to be able to welcome Inga to the Junior Department last month. Inga coped very well with the assessment tests considering that she was unable to communicate very much in English, and we felt she showed potential. Consequently I would like to offer her a place in Reception in September 2004, on condition that she has English lessons before she enters Recepteion."
Mikil fagnaðarlæti brutust út og Inga er voða spennt yfir því að vera að fara í "Big School". Hún náði sem sagt "inntökuprófinu" en þarf að fara í enskukennslu áður en hún byrjar - við teljum nú að enskan fari hraðbatnandi hjá henni og hún verði orðin rennifær næsta haust.
Annars er kominn sumarhiti hér - mælirinn sýnir 13 stiga hita. Spáð er að hitamet falli hér á Englandi í febrúar !! þannig að það er um að gera að fara að kaupa sólvörn og bikiní !
cheers
sunnudagur, febrúar 01, 2004
Fórum í dag að skoða ansi óvenjulegt hús hér í London, nálægt Liverpool Street Station. Dennis Sever´s House er hús sem búið er að færa aftur í tímann og getur maður vafrað þarna um. Við töldum að það væri nú ekki mikið um fólk að skoða þarna en það var biðröð þegar við mættum og var hleypt inn um leið og einhver fór út. Gaman að skoða eitthvað "nýtt" hérna ... Fengum okkur svo bakkelsi og ferskan ávaxtasafa á Spitalfield markaðnum - bregst ekki.