fimmtudagur, apríl 29, 2004

Það er heldur betur langt síðan síðast var skrifað. Það er einnig heldur betur mikið búið að vera um að vera síðan skrifað var síðast. Síðan síðast er ég búinn að fara tvisvar til Frakklands, borða undir Eiffelturninum, baða fjölskylduna í sólinni og 25 stiga hita um síðustu helgi, koma tengdó heim til klakans, taka til eftir tengdó, taka síðan aftur til núna fyrir næstu heimsókn ... svo fátt eitt sé nefnt !!

Ferðin okkar til Frakklands með tengdó heppnaðist mjög vel. Vorum heppin með veður og gaman var að keyra um sveitir Frakklands. Eyddum einum degi í Le Mont Saint Michel sem er stórt klaustur á kletti úti á firði sem að umkringist vatni (fyrir utan malbikaða veginn sem búið er að leggja) þegar sjórinn flæðir að. Þetta er mjög merkilegur staður og merkilegt að einhverjum hafi dottið í hug (eftir smá skilaboð frá Guði, ... sms ??) að byggja risastórt klaustur uppi á þessum risastóra kletti. Síðan voru verslaðir ostar (ísskápurinn lyktar ennþá !!), ciderar, rauðvín og ýmislegt franskt góðgæti. Greinilegt er þó að Englendingum finnst mun ódýrar í Frakklandi þar sem margir hverjir voru með drekkhlaðna bíla á leið aftur í ferjunni til Englands. Síðasta daginn fengum ég og Helgi okkur Fruit de la Mar sem er ýmislegt góðgæti úr sjónum, ostrur, krabbi, humar, kuðungar svo fátt eitt sé nefnt ... stelpunum leist ekki vel á þetta þegar við vorum að slafra þessu í okkur (ostrunum er nú einmitt hreint og beint slafrað í sig).

London var einnig að sjálfsögðu skoðað í bak og fyrir, góður matur borðaður og á stundum slappað af en mest megnis var liðið nú drifið áfram í búðir og á skoðunarstaði.

Tengdó var síðan dauðfegið að komast heim á laugardeginum eftir páska og er búið að læra af reynslunni að fara heim á laugardegi svo hægt sé að hvílast og slappa af fyrir vinnu á mánudegi !!

Í byrjun þessarar viku var ég sendur til Parísar mér til mikillar ánægju en öðrum ekki til svo mikillar ánægju - þar var ráðstefna á hóteli við hliðina á Eiffelturninum. Ég fékk að sjá helstu gersemar Frakka á ferð minni í leigubílum frá flugvelli á hótel, hótel á ráðstefnu og síðan ráðstefna á lestarstöð. Arc de Triomph og hið fræga stóra hringtorg þar við hliðina á - botna nú ekki í því hringtorgi, allar reglur hringtorga fannst mér einhvern veginn að giltu alls ekki þar, engar línur á götunni og ekki hefði ég verið hissa þó að einhverjir á innsta hring hafi verið þar í nokkra daga. Þetta var hin ágætasta skemmtun og ráðstefnan gekk vel. Þar var meðal annars einn bankinn að gefa hlaupahjól og tók ég eitt fyrir Ingu Huld. Það er nú reyndar í stærri kantinum fyrir hana en hún var hæstánægð með það og er búin að dröslast á því hérna framogtilbaka um íbúðina þangað til að foreldrar hennar fengu nóg af því að hafa áhyggjur af því að hún myndi brjóta eitthvað, húsmuni eða sjálfa sig.

En nú þarf að gera klárt fyrir næstu gesti og hlakkar Ingu Huld mikið til að fá Þórunni Evu í heimsókn og er búin að plana ýmislegt brall með henni. Annars er Inga Huld alltaf að giftast honum King Louie í leikskólanum og sönglar brúðarmarsinn hér hægri og vinstri.

cheers

mánudagur, apríl 12, 2004

Allir voru svo saddir eftir páskamatinn (blinis með kavíar í forrétt, dádýrakjöt í aðallrétt og í eftirrétt var heimagerður ís með Baileys og Lindor konfektkúlum) í gær að ekki var lyst á páskaeggi með málshætti á eftir. Þau voru því opnuð í morgun og fengum við:

Valdimar: Betra er að fela fiskinn en elta köttinn.

Jóhanna: Kona skal fylgja manni sínum hvert sem hún vill.

Inga Huld: Tæmdu ekki tréð fyrr en þú hefur séð ávöxtinn.

En nú skal haldið til Poole þar sem Frakklandsferðin skal hefjast ...

laugardagur, apríl 10, 2004

Fótbolti og feitabollur
Leikurinn var í dag - strákarnir héldu á Stamford Bridge en stelpurnar á Oxford Street. Við vorum með íslenska fánann og svo keypti kallinn stuttermabol með nafni Gudjohnsen á bakinu - studdum síðan vel við bakið á okkar manni í leiknum. Þegar við lyftum upp íslenska fánanum var klappað með priki í hausinn á kallinum og var þar kominn annar íslenskur fáni úr næstu sætaröð fyrir ofan !! Þetta var bara einsog að vera á laugardalsvellinum ... þar var kominn fyrrverandi til 20 ára formaður Arsenal klúbbsins og heyrðum við öðruhvoru í honum "Opnaðu bara bjórinn núna" og síðan kom "Sameinaðar feitabollur úr KR - áfram Eiður Smári - SKORA" ... hálf stúkan var eflaust búin að læra að segja "Feitabolla úr KR". Leikurinn endaði í jafntefli en það voru þó nokkur færu í leiknum og var gaman á að horfa. Eiður Smári stóð sig vel og var okkur ekki til skammar.

Óvissuferð
Í vikunni er búið að vera nóg að gera við að hafa ofan af fyrir tengdó ... ég komst loks í páskafrí á föstudaginn og gat þá aðstoðað Jóu betur við uppihaldið. Óvissuferðin var í gær, föstudaginn langa, allir voru dressaðir í sparifötin um hádegisleytið, karlarnir í jakkaföt og bindi en verst var að karlinn gamli var ekki með jakka með sér. Því þurfti að versla jakka á Regent Street áður en óvissuferðin gat haldið áfram þar sem jakki og bindi var skilyrði ! Nú gat óvissuferðin loks byrjað fyrir alvöru og var spennan orðin yfirgengileg ... þá var haldið krókaleiðir í gegnum Bond Street og endað á ... Hótel Ritz þar sem farið var í te, kaffi og kökur ... alveg meiriháttar gott og stóð undir væntingum - þarna er upppantað með tveggja mánaða fyrirvara þannig að það þarf að vera snemma í því að fara í te þangað !! Eftir kaffið var haldið í göngutúr niður Green Park niður að Buckingham Palace og St James Palace, framhjá Downing Street niður í Westminster og yfir á suðurbakkann og síðan framhjá Londonauganu og aftur yfir Thames yfir Golden Jubilee Bridge yfir á Charing Cross - var þetta fínn göngutúr til að jafna sig eftir allt kaffiátið og var líka sól og blíða til að toppa þetta.

cheers

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Nú er tengdó mætt á svæðið en sumarið virðist ekki vera komið ... það er nefnilega bara rétt búið að vera um 10 stiga hiti en í fyrra um páskana þá var á milli 15 og 20 stiga hiti. Ýmislegt er búið að gera - Jóa er búin að fara með þau í Londonaugað, skoða Canary Wharf, Spitalfield, Blackheath og um helgina keyrðum við til Brighton sem er á suðurströndinni. Í Brighton skoðuðum við sumardvalarhöll sem byggð var á 17. öld í indverskum stíl að utan en er með kínversku innbúi ... mjög flott. Síðan var um kílómetralöng bryggja útí sjóinn sem var með tívolí á endanum og fannst Ingu Huld það ekki leiðinlegt.

Á föstudaginn eru síðan loksins allir komnir í páskafrí og þá tekur ýmisleg dagskrá við. Á laugardaginn er það Chelsea leikur og var íslenski fáninn keyptur í tilefni af því ... um að gera að fylgjast með í sjónvarpinu hvort við sjáumst. Á mánudaginn á að keyra á suðurströndina (enn einu sinni) til Poole sem er hjá Bournemouth og á að gista þar eina nótt og taka síðan ferju á þriðjudagsmorgninum yfir til Frakklands þar sem við verðum í 2 nætur ... allir mjög spenntir ...