laugardagur, janúar 29, 2005

Það var ákveðið að taka á því vandamáli að það eru óbeðnir gestir sem halda sig í garðinum okkar. Í einum runnanum er sem sagt refur búinn að gera sér húsaskjól og virðist una sér ágætlega. Hafa náðst myndir af honum ásamt félaga sínum í ýmsum vafasömum aðgerðum og var ákveðið að þetta gengi ekki til lengdar ... Haldið var því í B&Q og refafæla keypt - fælan er reyndar aðallega til að fæla ketti og hunda en sagt að hún myndi ekki hafa minni áhrif á refi. Fælan er mjög fullkomlega útbúin og virkar s.s. þannig að ef að fælan skynjar dýr í garðinum þá sendir hún frá sér einhvers konar hátíðnihljóð sem dýrunum líkar ekki við ... svo er bara að bíða og sjá hvernig til tekst!

laugardagur, janúar 22, 2005

Fór óvænt á völlinn í dag að sjá Chelsea spila gegn Portsmouth - Inga Huld fór í pössun og var líklega hæstánægð að þurfa ekki að hanga allan daginn með kallinum ... Allavega var fyrri hálfleikurinn alveg frábær og skoraði Chelsea þrjú mörk. Eiður kom ekki inná fyrr en á sextugustuogfimmtu mínútu og gerði því miður ekki góða hluti - seinni hálfleikurinn var í heild sinni frekar slappur og gerðist lítið spennandi. Ég veifaði þó íslenska fánanum mínum þegar Eiður kom inná og við flögguðum honum síðan fyrir aftan okkur - ekki þurfti að hreyfa við honum aftur fyrr en leikurinn var flautaður af ...

fimmtudagur, janúar 20, 2005

Ég og Inga Huld erum bara tvö í slotinu núna þar sem Jóa er í rannsóknarleiðangri á Íslandi vegna náms síns. Við keyrðum hana upp á Stansted flugvöll í gærkvöldi og vorum um 2 tíma uppeftir frá vinnunni minni en ekki nema 1 tíma heim, að meðtöldu stoppi á McDonalds takeaway. Það þarf alltaf að gera ráð fyrir seinkunum þegar ferðast er um hérna og heyrðum við t.d. í útvarpinu að það væru verulegar seinkanir á hluta M25 vegna þess að 20 tonn (... já ... 20 tonn) af appelsínum (... já ... appelsínum) voru að flækjast fyrir á veginum og tók það sinn tíma að koma þeim burt.

Að sjálfsögðu síðan núna þegar við erum bara tvö þá vaknaði Inga Huld með hita í morgun og var ferlega slöpp og lasin greyið. Við erum því bara heima og látum okkur leiðast og verðum líklega heima í veikindafríi á morgun. Annars er matseðillinn klár hjá okkur á meðan frúin er ekki heima, það er sem sagt brauð með baunum og osti (nefnt baunabrauð) í kvöld, kjúklingabringur í Tikka Masala á morgun og síðan á laugardaginn eru kjúklingavængir eða -leggir með barbecue sósu ... hljómar ekki illa!!

Það er orðið svo bjart hjá okkur snemma núna - á leiðinni í vinnuna klukkan hálfátta á morgnana er sólin komin upp og farið að birta ... en á kvöldin einsog núna klukkan fimm er komið niðamyrkur.

sunnudagur, janúar 16, 2005

Sumarið komið?

Eftir frekar leiðinlega roksama viku þá er búin að vera blíða hér um helgina - í dag var t.d. sumarjakka-veður í 10 stiga hita og bara nokkuð þægilegu veðri. Þetta er svona einsog íslenskt maí/júní veður ... grasið grænt og gróið ... eina er að það vantar laufblöðin á tréin!

laugardagur, janúar 15, 2005

Kláruðum að taka niður jólaskrautið og koma því fyrir á sinn stað inní skáp þar sem það verður ekki fyrir næstu 11 mánuðina. Það var keypt dáldið af voðalega smekklegu dönsku jólaskrauti í Danmerkurferðinni og þurfti náttúrulega að jólaskreyta með því þegar heim var komið. Til að geta síðan notið nýja skrautsins þá þurfti náttúrulega að leyfa því að vera uppi við dáldið vel fram í Janúar. Veit annars ekkert hvað ég á að gera við jólatréið - það skreytir núna eitt hornið á garðinum ... hvað ætli að það taki langan tíma fyrir jólatré að breytast í jarðveg ??

Býð síðan Morientes hjartanlega velkominn til Liverpool, vona að hann muni reynast góð kaup og eigi eftir að dafna og blómstra í sókninni. Skemmtilegt væri ef hann myndi byrja á því í dag að kaffæra mufc.

cheers

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Það er alveg magnað hvað lúr getur haft mikil hvíldaráhrif ... Inga Huld sannar þá kenningu. Í dag sofnaði hún sem sagt um 6 leytið yfir Simpson (sem henni finnst yfirleitt afskaplega skemmtilegur) í ca fimmtán mínútur. Núna kl. 22:11 er hún enn vakandi í fullu fjöri í rúminu sínu og getur ekki sofnað ... yfirleitt er hún komin í rúmið um 20:00 og sofnar stuttu eftir það.

Þegar við vorum að tala um Danmerkurferðina um daginn og hversu óskaplega skemmtileg hún hefði verið þá var það álit Ingu Huldar: "ohh það var svo kalt í Danmörku". Eins gott að ekki var haldið heim á leið til Íslands í kuldann um jólin ...

cheers

mánudagur, janúar 03, 2005

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Það er ekki nýtt ár komið fyrr en horft hefur verið á skaupið og var það nú bara nokkuð gott í þetta skiptið. Ekki fannst mér allavega leiðinlegir "línunet" brandararnir ...

Einnig byrjar nýja árið hér á síðunni að komið er Comment box hér þannig að lesendur geta skrifað þar inn comment sín eða komið athugasemdum sínum á framfæri ... hvort sem þær eru gáfulegar eður ei. Það kom í ljós eftir að hafa rætt við einn mjög áhugasaman síðulesanda að þetta apparat sárvantaði á síðuna ... Evu vantaði sem sagt stað til að geta tjáð sig á ... og viti menn, athugasemd Evu var tekin til greina og ekki nóg með það heldur var snarlega bætt úr vankvæðunum.

Til að taka af allan vafa þá erum við semsagt komin tilbaka úr Danmerkurferð okkar. Við komum heim í gær 2. janúar 2005 - við keyrðum nærri sömu leið tilbaka nema að við gistum ekki eina nótt í Dusseldorf heldur Osnabruck sem er þar nærri. Ástæða fyrir Osnabruck var sú að þar er safn um listmálarann Felix Nussbaum hannað af arkitektinum Daniel Libeskind. Vorum við þar til að skoða safnið sjálft, þ.e.a.s. húsið en ekki það sem inní því var. Það var reyndar áhugaverð sýning í gangi sem sýndi feril Felixar sem var sem sagt gyðingur og dó að lokum í fangabúðum nasista eftir ævintýralega ævi. Það mátti sjá glögglega í sögu málverka hans sem byrjuðu á hans fyrri árum frekar sakleysisleg og falleg hvernig þau breyttust þegar nasistar tóku völdin og urðu frekar hryllingskennd.

Áramótin voru frábær og voru Danirnir duglegir að skjóta - Inga Huld stóð sig einsog hetja og valdi allt það sem við áttum að skjóta upp, stillti því upp og hljóp svo í burtu í hóp áhorfenda (mömmu, Evu, Elínu og Palla) á meðan ég kveikti í ... rosa fjör. Áramótasteikin var þessi líka fíni dádýrahryggur með ofurdekruðu meðlæti og vantaði ekki á kræsingarnar ...

Það má alveg mæla með heimsókn til Evu og höfum við eytt deginum í dag í hvíld, afslöppun og endurnæringu. Síðan er tveggja daga frí framundan og engin vinna fyrr en á fimmtudaginn !!

HAPPY NEW YEAR

Vorum að fá skaupið og ætlum því að horfa á það núna.