Á páskadag var haldið uppí sumarbústað þar sem páskalambið var grillað. Þar biðu líka nokkur verkefni einsog t.d. að fara uppá þak að festa vindhanann, henda grjóti í gilið og henda rusli í gáminn. Maturinn klikkaði ekki og var feiknagóður og heiti potturinn var góður að venju.
Annars höfum við bara eytt páskafríinu í afslappelsi og rólegheit - mikið borðað af kökum og páskaeggjum ... þannig að nú liggur leiðin á Þingvelli í göngutúr til að fríska sig aðeins upp. Það er nefnilega heilmikið plan framundan - leikhús og útaðborða á morgun og síðan veisla og partí á föstudaginn!
miðvikudagur, mars 30, 2005
laugardagur, mars 26, 2005
Föstudagurinn Langi
Dagurinn stóð undir nafni og var mjög langur - áttum við bókað flug frá Stansted kl. 19.50 til Íslands en fréttum fljótlega af því að sá tími myndi ekki standast þar sem það var þoka í Köben! Við tókum okkur því langan tíma í að pakka og vorum bara í rólegheitunum - þegar vélin loks lagði af stað frá Köben var áætluð brottför kl. 22.30 ... við stoppuðum því á veitingastað á leiðinni á völlinn sem er nálægt skólanum hennar Jóu, hann var bara nokkuð góður ... kínverskur staður Yi Ban og var með mjög gott Dim Sum, mælum hiklaust með því. Mættum síðan á völlinn við tékkinnið kl. 20.30 og fannst við bara góð en fundum þá út að búið var að loka öllu þar. Kona sem við fundum í afgreiðslunni skildi ekkert í okkur og sagði að tékkinnið hefði lokað kl. 19.20!!! Okkur leist nú ekki á blikuna og tilkynntum konunni það að það hefði verið ljóst í allan dag að það yrði löng seinkun á vélinni og að við hefðum ekki ætlað að koma á völlinn eldsnemma til að hanga þar í marga klukkutíma ... að lokum ræsti kellan út einhvern til að tékka okkur inn og var þetta allt í gúddí að lokum.
En það kom þá í ljós að Stansted hafði ekki hugmynd um þessa seinkun í Köben hjá Iceland Express og höfðu engar upplýsingar um að það væri seinkun á fluginu! Var það eingöngu vegna upplýsingagjafar frá tengdó og íslenska textavarpinu að við vorum svona vel upplýst ...
Við vorum síðan lent kl. 1.30 í hávaðarok og rigninu ... týpískt íslenskt veður semsagt ... og komin í Unufellið kl. 3.00 ... langur föstudagur semsagt ...
Skírdagur
Páskafríið mitt hálfhófst á Skírdag - hætti snemma í vinnunni klukkan 1 og kom Jóa í bæinn og fengum við okkur hádegismat saman áður en við sóttum Ingu Huld í skólann. Hún var mjög ánægð að sjá okkur bæði koma og sækja sig og enn glaðari með lífið þegar við fórum á kaffihús og fengum okkur kaffi í Blackheath ... þegar heim var komið þá var tekið til við garðvinnuna þar sem allt er að spretta úr sér. Garðklippurnar sem fjárfest var í um síðustu helgi komu að góðum notum við að sníða runnana að okkar óskum ... þetta var ágætisbyrjun á páskafríinu þar sem það var sól og 15 stiga hiti ... vöknuðu því ýmsar hugmyndir um það hvað gera þarf við garðinn t.d. setja pall svo hægt sé að grilla og borða úti og hafa það notalegt.
föstudagur, mars 18, 2005
Það er naumast hvað tíminn er fljótur að líða - heilu vikurnar hverfa bara einsog skvett væri úr vatnsglasi. Inga Huld greyið er búin að vera lasin þessa vikuna og þurfti að vera heima á mánudag og þriðjudag og síðan var hún aftur komin með hita á föstudaginn. Ég kom því snemma heim í dag svo Jóa gæti skotist í skólann til að hitta kennarana og fá að vita hvort hún væri að gera eitthvað af viti.
Annars þá kom sumarið hér í gær - öllum að óvörum birtist það bara og ég vona að það verði sem lengst ... allavega 18 stiga hiti í dag og glampandi sól !! Ég var nú einmitt staddur í Mílan og Róm á mánudeginum og þriðjudeginum og þar var sko sumarið komið - það væri nú ekki leiðinlegt að geta farið í rómantískt frí til Ítalíu ... hugsa að það sé nóg að sjá þar til að drepa tímann og slaka á yfir. Er síðan á leið til Helsinki í næstu viku ... vona að það sé farið að hlýna þar líka!
Við erum síðan á Íslandsleið í næstu viku, nánar tiltekið þá fljúgum við á föstudeginum langa og dveljum á klakanum í 9 daga ... ekki leiðinlegt það !! ... sjáumst því fljótlega.
mánudagur, mars 07, 2005
Ferðuðumst London þvera og endilanga um helgina í verslunarleiðöngrum ... tókst að kaupa stól sem verður afhentur eftir 12 vikur, gardínur sem búið er að sauma eftir 6 vikur en ekki tókst að finna stofuborðið eða stofuljósið ... á endanum var leið lögð í IKEA þar sem ljóst var að ekki þyrfti að bíða eftir hlutunum. Þar gerði ég þau reginmistök að við fundum loftljós á baðið, Ingu herbergi (rosa flott fluguljós) og vinnuherbergið ... áttaði mig ekki á því síðan fyrr en ég tók þau upp úr kössunum hér heima að ég (jamm auðvitað ég) þyrfti að setja þau upp. Eftir strögl og puð þá kom ég Ingu ljósi upp en hin bíða enn ... þarf að bjastra aðeins meira við þau heldur en Ingu ljós ... spurning hvernig Stjána rafvirkja lítist á rafmagnshandverk mitt.
Síðast þegar ég var í rafvirkjastaðgengilsstarfi í Skaftahlíðinni að tengja stofuloftljósið þá var ansi skemmtilegt að eftir rafmagnsaðgerðir mínar þá blikkuðu veggljósin þegar kveikt var á sjónvarpinu : )
föstudagur, mars 04, 2005
Vetur kóngur
Veturinn er heldur betur búinn að taka völdin hér í bretalandi - hitstigið er alveg búið að vera við núll gráðurnar og eitt og eitt snjókorn hefur sést. Reyndar hefur snjóað töluvert mikið en ekki hefur hann fengið að sitja lengi snjórinn og verið fljótur að bráðna. En það er spaugilegt í skólanum að stelpurnar eru mikið hrifnar af snjónum, sérstaklega Inga, og vilja vera að skrifa og hlaupa í snjónum en neinei ekki er hægt að vera úti í svona bleytu og kulda !! og því eru innifrímínútur ... Mér hefur líka fundist veðrið hér vera miklu verra þegar ég les mbl.is ... þar er mikið talað um snjó í englandi, herinn að hjálpa til, allt ófært o.s.frv ... hef ekki mikið orðið var við það en líklega er það einhvers staðar sunnar. Gaman samt að þessu öllu saman og mjög frískandi að labba á lestarstöðina í svona góðum og ferskum kulda og láta snjóa á sig ... það er í rauninni dáldið heimilislegt.
Þorrablót
Einhver hefur kvartað mikið yfir því að fá ekki mikið að heyra um þorrablótið góða. Sem sagt þá var hið fræga árlega þorrablót íslendingafélagsins í London um síðustu helgi. Var það bara hin besta skemmtun þó að dáldið hafi vantað á þorramatinn .... það var t.d. dáldið spaugilegt að sporðrenna patéinu og hugsa til Egils Skallagrímssonar gæða sér á þessum kræsindum ... En annars þá byrjaði partýið á "screwdriver" ... hverjum öðrum en íslendingum myndi detta annað eins í hug ?! Fólk var nú líka komið á trúnaðarskeiðið fyrir matinn. Þráinn Bertelsson las (endurtek las) síðan leiðinlegustu ræðu í elstu sem og yngstu manna minnum, hefðbundin slagsmál, dans, tjútt og bara einsog íslenskt þorrablót ætti að vera ... mjög fínt og mæli hiklaust með því að mæta að ári liðnu.
Það var reyndar erfitt að lýsa því fyrir strákunum í vinnunni á mánudaginn að ég hefði ekki verið sáttur við að það vantaði meira af gamla hefðbundna matnum en að ég hefði verið ansi ánægður með hrútspungana ...