mánudagur, júní 27, 2005

Menningarleg óvissuferð
Það var heldur betur surprice um helgina. Fyrir 3 mánuðum síðan var ég að plana eitthvað fyrir afmælið hennar Jóu og skipulagði mjög svo menningarlega uppákomu - keypti sem sagt miða á sýningu í Royal Albert Hall með English National Ballet!! Inga fór aftur í pössun til Söndru og Unnar þar sem hún brallaði ýmislegt en var þó töluvert þreytt eftir að hafa hamast í 2 klukkutíma í barnaafmæli þar sem var trúður, blöðruskreytingar, andlitsmálning ásamt ýmsum öðrum skemmtiatriðum. En allavega þá héldum við á leið í óvissuferðina og var ég með Svanavatnið í huga af einhverri ástæðu ... þegar við komum í Royal Albert Hall þá voru þar auglýsingar um að verið væri að sýna Rómeu og Júlíu!! Að lokum var þetta því óvænt uppákoma fyrir okkur bæði þar sem ég var ekki alveg með óvissuferðina á hreinu sjálfur ... skemmtum okkur allavega konunglega og skipti líklega ekki alveg öllu máli hvaða sýningu um var að ræða. Sýningin var allvega alveg frábær og voru að minnsta kosti 100 dansarar í henni og mikið um að vera, m.a. skylmingar, slagsmál, rifrildi, ástarsenur og ástaratlot ... þið kunnið eflaust söguna ... Það var skemmtilegt að við sátum í boxi og vorum við bara 2 í sætaröð og eftir hlé sáum við að fólk tók glösin með sér í boxin þannig að þetta var mjög svo þægilegt að sitja bara í rólegheitunum yfir sýningunni með sitt hvítvínsglas ... bara einsog maður væri heima í stofu!

Garðapuðið
Um helgina var ýmislegt annað gert en að hanga í hámenningunni í London (menningarskammturinn fyrir þetta árið er nú líka uppurinn núna ...). Garðavinnan hélt áfram og er nú búið að kaupa allt efni í pallinn og stéttina og meira að segja voru nokkrar plöntur pantaðar líka. Í dag var ég svo í fríi svo hægt væri að keyra þetta dáldið áfram og pöntuðum við "skip" sem er draslgámur sem komið er með uppað dyrum (álíka stórt og bíll) og þetta fylltum við síðan af drasli úr garðinum og einnig smávægilegu drasli úr bílskúrnum sem safnast hafði þar fyrir. Fórum á flotta "landscaping" sölu í dag sem seldi hellur, steina, möl og plöntur af öllum stærðum og gerðum. Þarna hefði verið hægt að kaupa tré í garðinn svo stór að það hefði verið einsog þau hefðu verið í garðinum í tugi ára!! Við keyptum annars mjög hefðbundin tré ... bambus (svartan og grænan), magnólíu, ólífutré og plöntu sem líkist jukku ... kannski ekki mjög svo hefðbundið ... Við vorum svekkt yfir því að ólífurnar á ólífutrénu ná ekki nógu góðum þroska hér í Englandi nema að það sé mjög óvenju gott sumar ... allavega erum við hér komin með mælikvarða á hversu gott sumarið sé!! Þetta kemur síðan allt saman á fimmtudaginn - á morgun kemur maður sem ætlar að taka það út fyrir okkur hvað það kostar að hlaða lítinn vegg, eða eiginlega veggi, í garðinum og ég er byrjaður að setja saman undirstöðurnar fyrir pallinn. Allt að gerast sem sagt enda er stefnt á að verkinu ljúki fyrir sunnudaginn 9 júlí af því að þá er Inga Huld með afmæli fyrir bekkinn sinn hér heima (á þó afmæli 3 júlí bara svo það sé á hreinu!).

cheers

föstudagur, júní 24, 2005

Forsjálnin í fyrirrúmi
Ég var mjög forsjáll í morgun og tók með mér regnhlíf í vinnuna þrátt fyrir að það væri glampandi sól og 25 stiga hiti klukkan hálfátta í morgun! Ástæða þessa furðulega fylgihlutar var sú að veðurspáin í gær hafði spáð "thunderstorm" og rigningu seinni partinn í dag ... reyndar hafði veðurspáin síðan breyst í morgun og spáði bara áframhaldandi sólskini og blíðu allan föstudaginn. Forsjálni mín reyndist þó góð þar sem það var ausandi rigning með tilheyrandi þrumum og eldingum þegar heim var haldið klukkan hálfsjö í kvöld !! Veðurspánni hafði því verið breytt til hins verra og sannast það því að það borgar sig ekkert að vera að breyta því sem áður hefur verið haldið fram ... var ég því mjög ánægður og glaður þar sem ég stormaði undir regnhlífarviðrininu mínu á lestarstöðina og blotnaði bara að hluta til en var ekki lekandi niður einsog sumir sem voru ekki jafnforsjálnir og ég ... hehe ...

Of heitt!!
Líklega er kominn tími á að kaupa aircondition í húsið til að hafa í gangi á nóttunni ... ég er búinn að leggja minni sæng og sef bara með sængurverið og er það nú svona í það þykkasta meira að segja ... með kvöldinu virðist rakastigið aukast töluvert þannig að það verður hálfóbærilegt hérna.

Garðavinna - puð & streð
Loksins, loksins byrjuðum við á garðavinnunni ... við stóðum við það að byrja á þessu þegar Jóa hefði tíma til að hanna og teikna upp garðinn. Hún sem sagt kláraði allt sitt á miðvikudaginn þegar lokasýningin opnaði (og hún átti reyndar afmæli sama dag) og er því búin að vera að slappa af síðan (utan þess að taka aðeins til hér heima og þrífa og svoleiðis ...). Teiknað var þetta líka þetta rosalega plan þannig að ég varð strax rosalega þreyttur ... eftir að ég hafði þó komið nokkrum vinsamlegum ábendingum á framfæri um það að sumt yrði einfaldað þá komumst við að sameiginlegri niðurstöðu um málið og hafist var handa. Ég er sem sagt búinn að vera að dunda mér við það núna á kvöldin að moka upp grasið úr garðinum og síðan þarf ég að "levelera" hann þar sem hann er í dáldlum halla sem við viljum ekki hafa. Garðinum mun verða skipt í tvennt, upp við húsið verður pallur og fjær á neðra leveli verður stétt og verða tröppur á milli ... allt er þetta áætlað að muni líta alveg mjög vel út ... hvort sem það verður litið á það úr fjarska eða þegar nær dregur.

cheers

laugardagur, júní 18, 2005

Við fórum í fyrsta skipti í mjög langan tíma út að skemmta okkur í gærkvöldi. Inga Huld gisti hjá stórfjölskyldu Sigurgeirs og skemmti sér konunglega og er ólm í að fara aftur. Planið hjá okkur var að hitta frænda hennar Jóu og sýna honum aðeins menninguna í London en það plan fór út um þúfur þar sem frændinn og kona hans náðu sér í vírus og lágu því fyrir allan föstudaginn á hótelherberginu ... skemmtileg byrjun það á helgarferðinni. Við létum það ekki skemma fyrir okkur og héldum okkar striki - fórum með Halldóru og byrjuðum á veitingastaðnum Hakkasan sem er erfitt að fara svikinn frá, alveg hreint meiriháttar flottur staður með mjög góðum mat. Síðan var haldið á einhvern VIP klúbb sem Gísli hennar Halldóru var búinn að græja og fengum við að fara þar inn og setjast við borðið (var reyndar ekki borð heldur frekar flatsæng ...) sem búið var að panta eftir nokkurt þras við dyraverðina. Tantra hét staðurinn og var alveg hægt að skemmta sér þar og dansa - vorum með okkar einkabar við borðið og þurfti því ekki að standa í röð á barnum og glata þar dýrmætum tíma.

Ónákvæmni veðurspáa
Einsog venjulega þá rætast ekki veðurspár ... það var sem sagt búið að spá hér 27 stiga hita einsog fram kemur neðar á síðunni. Í dag er búið að vera 32 stiga hiti og nefnist þessi helgi hjá bretunum "sticky weekend" þar sem mikill raki fylgir þessari hitabylgju!

miðvikudagur, júní 15, 2005

Las á blogginu hans Sigurgeirs að leigubílstjóri hefði tjáð honum að góðu veðri væri spáð um helgina ... það fékk ég síðan staðfest á "5 daga spá" linknum hér á vinstri hlið síðunnar. Væntanlegur er 27 stiga hiti og glampandi sól !!! Það er sem ég hef áður sagt að það er kominn tími til að fjárfesta í sólgleraugum!!

Er annars byrjaður á nýrri bók - kláraði nefnilega um daginn 3 mánaða lesningu minni á "Atlas Shrugged" eftir Ayn Rand. Ég las ca. 10 blaðsíður á dag í þeirri bók - náði t.d. 5 blaðsíðum á hvorri leið í lestinni á leiðinni í og úr vinnu en bókin var sem sagt 1067 blaðsíður á lengd með letri sem er töluvert minna en letrið í mogganum ... í henni var til að mynda lengsta eintal sem ég hef nokkurn tímann séð, heyrt eða heyrt um getið eða u.þ.b. 67 blaðsíður ef ég man nákvæmlega rétt. En ég mæli hiklaust með bókinni og var þetta alveg frábær lesning fyrir alla sem hafa gaman af vel rituðum bókum. Til að gera langa sögu stutta þá fjallar hún um mann sem vill stöðva hjól efnahagskerfisins í mótmælaskyni ... who is John Galt?!

cheers

sunnudagur, júní 12, 2005



Smávegis viðbót við bloggið áðan þar sem minnst var á skyrtuþurrkstraujarann - skoðið hann hér ... þetta fer á toppinn á JÓLAGJAFAÓSKALISTANN minn !!!
Posted by Hello
Í morgun var haldið á sýningu í ExCel sem er stærðarinnar sýningarhöll í austurhluta London. Þar var Grand Designs Live haldið og var allt um eldhús, bað, innanhúshönnun, byggingar og garða ... sem sagt allt allt sem á þarf að halda fyrir Grand Design!! Sumt var nú bara einsog að labba um í B&Q og var heldur ómerkilegt en annað vakti skemmtilegar hugmyndir og var nú hægt að sjá ýmislegt fyrir sér.

Einna best sem við sáum voru alveg þrælflottir rafmagnshitarar í garðinn sem bæði var hægt að hengja uppá vegg og hafa á standi ... leist okkur (mér) svo vel á þá að fjárfest var í tveimur á staðnum og þurfti síðan að rogast með þá höllina endilanga útí bíl ... vorum þá sem betur fer líka búin að skoða alla sýninguna þannig að haldið var heim á leið eftir heila 5 klukkutíma! Það er nú samt ekki hægt að segja að við höfum verið eitthvað að slæpast þarna heldur var farið tiltölulega hratt yfir og kom því á óvart hversu mikill tími fór í þetta. Skoðuðum helst garðasýninguna (þar sem við ætlum að reyna að fríska uppá garðinn okkar), einstaka eldhúsinnréttingar (t.d. voru tækin frá Siemens flott, sérstaklega skyrtuþurrkstraujarinn sem þurrkaði og straujaði skyrtuna þína á 6 mínútum!!!) og síðan eitt og annað sem áhuga vakti.

laugardagur, júní 11, 2005

Fórum í fyrsta skipti í langan tíma öll saman fjölskyldan í bæinn. Tókum við lestina á Charing X og löbbuðum upp Leicester Square og Piccadilly Circus og síðan af Regent Street inn á Carnaby Street. Þar eru dáldið skemmtilegar búðir og huggulegra umhverfi heldur en á Oxford Stræti. Á heimleiðinni var staldrað við á Borough market sem er hjá London Bridge - sá markaður er alveg magnaður og er sem sagt matarmarkaður. Til dæmis ef einhver mundi vilja heilgrilla dádýr þá er þetta staðurinn þar sem þau hanga þarna uppá veggjum án hausa og annarra útlima við hlið kanína og annarra dýra. Okkur heillaði þó frekar alls konar grænmeti og ávextir, fiskur og kjöt, ostar og brauð o.s.frv. ... við keyptum okkur allavega íslenska lúðu, grænmeti og síðan pie í desert - ekki amalegt. Einnig steikja þeir þarna hamborgara og aðrar steikarsamlokur sem ég mæli hiklaust með enda má sjá af fjölda þeirra sem mæta á markaðinn og standa þar í löngum röðum að gæðin eru góð!!

þriðjudagur, júní 07, 2005


Inga Huld með nammipokann sinn á laugardaginn. Posted by Hello

mánudagur, júní 06, 2005


Inga Huld lék þennan líka fína skunk í skólaleikriti sem hét "The bad tempered ladybird". Posted by Hello
Gill var hent út sem link hér á vinstri hlið síðunnar þar sem hann er löngu hættur að blogga ... í staðinn er hægt að lesa stórskemmtilegar "Sögur úr holtinu ...". Það má einnig geta þess að "Óskabókalistinn" á hægri hlið síðunnar er ekki útrunninn og vantar allar þessar bækur í safnið - svona ef ske skyldi að einhverjum vantaði að kaupa eitthvað handa mér?!

Jóa skilaði inn öllum sínum blöðum á laugardaginn og er nú á fullu í módelgerð fyrir morgundaginn - stóra stundin sem er yfirferð með kennurunum er eldsnemma í fyrramálið og er hún fyrst af öllum !! Í næstu viku er síðan kynning fyrir utanaðkomandi dómara og fyrst eftir það kemur afrakstur erfiðins í ljós (þ.e.a.s. annar afrakstur en allt dótið sem fylgir náminu og hleðst upp heima ...).

sunnudagur, júní 05, 2005

Ég var að keyra um helgina og sá auglýsingu á tannlæknastofu sem innihélt þau skilaboð að það væri frítt fyrir ófrískar/óléttar konur hjá tannlækninum. Mundi þá að ég hafði einmitt hugsað það áður hversu furðulegt það er að konur þurfi ekki að borga fyrir tannlæknaþjónustu á meðan meðgöngu stendur ... get bara ekki komið fyrir mig nokkurri röksemd þar á bakvið ... en kannski er það bara ég ...

fimmtudagur, júní 02, 2005

Í dag var skyndilega óskað eftir því að ég myndi verða viðstaddur kvöldverðarfund með stórgóðum viðskiptavini - 5 voru á leiðinni frá ABN og 6 frá kúnnanum -> átti ég því að verða tólfti aðilinn!! Inga Huld var spurð að því hvort hún vildi gista hjá Halldóru (Gísli ekki heima þessa dagana ... bissnessvesen á honum ...) eða hvort ég myndi sækja hana seint ... ekki var hún lengi að tjá mér það að hún vildi gjarna gista hjá Halldóru. Allir virtust sáttir við það þannig að ég fór á fundinn og var sosum ekki svikinn þar sem haldið var á Hakkasan - það er alveg á hreinu að þangað þarf ég að fara aftur til að geta notið staðarins og matarins aðeins betur ... var djúpt sokkinn í samræður allt kvöldið og áttaði mig á því að ég var í rauninni svangur þegar ég kom heim eftir allt saman þó að maturinn sem ég þó borðaði var alveg afbragðsgóður!

miðvikudagur, júní 01, 2005

Dagur í lífi Valda:

6.00: Á fætur, gamli ...
6.29: Sturtan og fleira búið.
6.30: Inga Huld ræst á lappir. Þar sem líður að skilum hjá Jóu og í ofanálag þá er frí í skólanum hennar Ingu þessa vikuna ... leit út fyrir erfiða viku ... sem betur fer þá bjargar Halldóra okkur í þessari krísu.
7.00: Jóa skutlar okkur á lestarstöðina til að spara okkur 10 mínútur.
7.45: Mætt til Gísla og Halldóru með Ingu Huld.
7.50: Ég lagður af stað á City Airport þar sem ég á flug kl 8.55 til Dusseldorf.
8.35: Mættur á City Airport og hleyp í tékkinn þar sem ég yfirmaðurinn bíður.
8.55: Flugtak.
10.30 (11.30 Dusseldorf tími): Lentur í Dusseldorf.
11.00 (12.00): Hádegismatur og upphitun fyrir fundinn.
12.45 (13.45): Fleiri frá ABN mæta á svæðið og lagt er af stað á fundarstað.
13.00 (14.00): Fundur hefst ...
14.30 (15.30): Fundi lýkur og taxi tekinn á völlinn.
15.00 (16.00): Mættur á völlinn og flugmiða breytt til að taka fyrra flug heim til London.
15.35 (16.35): Flugtak.
16.10: Lentur á Heathrow.
18.00: Eftir langa ferð í Piccadilly línunni til Holborn þar sem Inga Huld var í pössun hjá Halldóru.
19.00: Komin heim!
19.30: Upphitaður kvöldmatur úr frystinum þar sem enginn hafði tíma til að elda - Inga í bólið - sjónvarpsgláp í nokkrar mínútur - bólið ...