miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Það var ekkert smávegis fjör á mánudaginn !! Fórum á Notting Hill Carnival og var rosaleg stemning. Við mættum mjög snemma og vorum líklega með þeim fyrst - löbbuðum því um svæðið og sáum fólkið mæta. Skrúðgangan byrjaði síðan dáldið seint og vorum við orðin langþreytt á biðinni. Svo loksins þegar allt fór í gang þá var þetta allt saman alveg rosalega flott - í miðri skemmtuninni löbbuðum við inn í hverfið þar sem ýmsir götubásar voru að selja alls konar varning - það var algjör þjóðhátíðarstemmning í gangi og meira að segja þá seldi fólk aðgang að klósettunum á heimilunum sínum. Sumir settu upp grillið og aðrir bala með drykkjum ... t.d. bjór sem löggan var þó eitthvað að reyna að stöðva því það ku vera bannað nema að vera með leyfi! Ingu Huld fannst upplifunin skemmtileg og dansaði, klappaði og flautaði í flautuna sem keypt var á meðan hún var á háhesti á mér ... erfitt annars að lýsa öðru eins húllumhæi og mannhafi ...

Ég er hér annars einn núna þar sem skvísurnar eru farnar á klakann ... ég fer heim á föstudaginn og verðum við saman yfir helgina. Hér er annars alltof heitt!! ... það var enn 25 stiga hiti þegar ég kom heim klukkan 22 í kvöld og var vel yfir 30 gráðurnar í dag ... það verður því gott að koma heim og kæla sig aðeins ... eða hvað ??

cheers

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Sóttum Evu á Kings Cross lestarstöðina á föstudagskvöldið og partýhelgin byrjaði ... fórum þó tiltölulega snemma af stað á laugardagsmorgninum og var haldið á London Borough food market til að versla fyrir kvöldið. Það er alltaf jafnskemmtilegt að koma á þennan matarmarkað og að sjálfsögðu keyptum við okkur steikarsamloku - núna vorum við meira að segja svo snemma á ferðinni að við keyptum hjá þessum sem er alltaf uppseldur þegar við erum á svæðinu. Við áætluðum að hann hlyti að vera mjög góður fyrst það selst alltaf upp. Þetta voru grillaðar chorizo pylsur í brauði með salati og papriku ... algjört nammigott og síðan voru súkkulaðibananar og kókos í desert og öllu saman skolað að lokum niður með hvítvíni ... ekki amalegt. Kvöldmaturinn var síðan algjört æði - snöggsteiktur túnfiskur í forrétt og grilluð lúða í aðalrétt með heimagerðum kókosís í desert. Nýr gestur í heimsókn með Gísla og Halldóru sem nefnist Loki og skemmti hann sér konunglega með Ingu Huld og hljóp hann fram og tilbaka í blómabeðunum og hafði greinilega þörf fyrir mikla hreyfiútrás!

Tókum því síðan rólega í dag í blíðunni en drösluðumst þó í Greenwich garðinn þar sem Eva hafði ekki áður séð núllbauginn og Cutty Sark ...

cheers

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Skrapp til Hollands í dag á tvo fundi ... einn í Haag og einn í borg sem ekki er hægt að hafa nafnið eftir sem er á milli Haag og Amsterdam. Þurfti því að fara snemma á fætur þar sem ég þurfti að taka flug frá Heathrow klukkan 6.30 í morgun ... eini kosturinn við það er að ferðin á flugvöllinn er þægileg vegna þess að traffíkin er lítil. Flugið tilbaka seinnipartinn var síðan ekkert voðalega þægilegt ... fokkerinn hristist nánast alla leiðina og minnti mig á flug til Akureyrar um hávetur!

Annars er ég í fríi á morgun föstudag þar sem við ákváðum að eiga langa helgi ... mánudagurinn er lögbundinn frídagur hér þannig að þetta er svona nokkurs konar verslunarmannhelgi þeirra breta. Eva er síðan á leiðinni til okkar í heimsókn og er von á henni annaðkvöld með tilheyrandi látum ...

cheers

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Haldið ekki bara að tröppurnar séu komnar saman og er nú hægt að ganga á milli hæða í garðinum !! Við drifum okkur í B&Q í morgun til að kaupa það sem á vantaði og gátum nú meira að segja skilað sumu sem við höfðum ofkeypt fyrr í sumar. Síðan var að sjálfsögðu haldið í Sainsbury þar sem við versluðum gómsæti í kvöldmatinn ... túnfisk, sverðfisk og merlin fisk ... þurfum reyndar að finna eitthvað meira um þennan merlin fisk en allavega þá bragðaðist hann ekki síður en hinir fiskarnir. Marineraðir að hætti Jóu og grillaðir að hætti Valda ... namminamm ...

mánudagur, ágúst 22, 2005

Veðrið í dag ekki jafngott og í gær en líklega á að birta aftur til með glampandi sól og 25 stiga hita á morgun !!! Vona það þar sem ég er í fríi ...

Annars fór bíllinn í bifreiðaskoðun um daginn og kom nú ekki vel útúr því ... mengar of mikið og var bremsulaus ... en jæja, þetta er víst bara venjulegt viðhald og lítið hægt að gera en að brosa og borga. Runóinn er nú orðinn 6 ára gamall og hefur staðið sig bara sæmilega ... líklega fer þó að koma tími til að skipta.

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Það er á hreinu að moldin sem við keyptum í beðin var næringarrík einsog okkur var lofað ... allavega sprettur í henni alls konar gróður og arfi og dafnar og lifir þar góðu lífi!!

Hófumst handa í dag við næstsíðasta stig garðsins sem var sem sagt að gera tröppurnar ... það tekur nú sinn tíma að smíða verkið en hönnuninni er löngu lokið. Það þarf að mæla, saga, máta og alls konar vesen ... ættu nú líklega að klárast á næstu dögum. Eftir það er bara að laga nokkrar hellur sem eru ekki alveg fastar, steypa undir eina hellu sem var eftir og steypa einnig í kringum þær svo þetta fari nú ekki allt úr skorðum og skrúfa nokkrar skrúfur í viðbót í pallinn ... hmmm eftir að hafa talið þetta allt saman upp þá virðist nú vera eitt og annað eftir ...

Inga Huld er orðin svo dugleg að hjóla núna án hjálparhjólanna að hún hjólar eftir gangstéttinni núna án þess að maður sé mjög óttasleginn ... annars er þetta enn dáldið "wibbly wobbly" en er allt að koma.

cheers

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Komin heil á höldnu heim aftur frá norðurlandinu. Á sunudeginum kíktum við til York og fórum m.a. í ferð um Jórvík sem var þetta líka fína víkingasafn. Þar var búið að byggja yfir fornleifauppgröft af víkingaþorpi og setja upp eftirlíkingu af gömlu þorpi með brúðum og öllu saman. Um þetta var maður síðan leiddur í vagni til að geta séð herlegheitin - til að tryggja að stemmningin væri góð þá var þessi líka megna fýla yfir öllu saman sem var talin hafa legið yfir þorpinu. Einnig tókum við eftir því að einhverjar brúðurnar ræddu saman og við nánari athugun þá skildum við það allt saman vegna þess að þær ræddu saman á hvaða tungumáli öðru heldur en íslenskunni !! ... skemmtum okkur konunglega yfir því og hefur öðrum túristum við heldur skrítin að hlæja svona mikið í ferðinni.´

Í York er einnig stærsta gotneska kirkja í norður-evrópu þannig að við strolluðum að sjálfsögðu þangað. Ótrúlegt að einhverjum hafi dottið í hug að byggja þessa óþarfa byggingu árið tólfhundruðogeitthvað ... við löbbuðum meira að segja uppí turninn sem voru 275 þrep og var Inga Huld í miklu stuði og þrammaði þetta allt saman með okkur og var líklega alls ekkert þreyttari en Eva eftir puðið þó að þrepin hafi náð henni Ingu í hnéhæð.

Á mánudeginum hélt familían síðan heim á leið og keyrðum við ekki hraðbrautina til baka heldur einhverja sveitavegi sem er mjög skemmtilegt - liggur leiðin þá í gegnum lítil þorp og rómantískar sveitir ... við stöldruðum við í þorpi sem heitir Lincoln og ætluðum að skoða þar kastala og kirkju meðal annars. Meðan við vorum að leita að bílastæði í Lincoln þá heyrðum við á það minnst í útvarpinu að mikið væri um að vera í Lincoln og kirkjan lokuð þar sem Tom Hanks væri að leika þar í upptökum á kvikmyndinni Da Vinci Code ... það tók okkur smátíma og heilabrot að átta okkur á því að við værum stödd sem sagt í þeim sama Lincoln bæ og á var minnst í útvarpinu!! Þegar við komum að kirkjunni þá var þar töluverður fjöldi fólks og bíla og var kirkjan sem sagt lokuð ... fólk var þar að bíða eftir að leikararnir gengu inní kirkjuna. Við nenntum ekki að vera í einhverju celebrity spotting þannig að við ákváðum að skoða kirkjuna allavega utanfrá. Þegar við vorum komin hringinn þá var fólk hlaupandi í allar áttir og kom þá í ljós að Tom Hanks var nýfarinn þar hjá ... hann fetaði sem sagt í orðsins fyllstu merkingu í okkar spor !! Gaman er að því að við eigum mynd af nunnunni sem var að mótmæla fyrir utan kirkjuna ...

En einsog venjulega þá var gott að koma heim þó að dvölin hjá Evu hafi verið frábær ...

cheers

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Þá erum við í heimsókn hjá Evu í Leeds sem samkvæmt bókum á að vera "most fashionable city up north". Það tók nú sinn tíma að koma sér uppeftir og vorum við að lokum 5 tíma á leiðinni frá vinnunni minni - þar af var 1 klukkutími bara í það komast útúr London - umferðin var líka mjög mikil og var hún alltaf að stoppa á hraðbrautinni ... þótt við hefðum lagt af stað klukkan 2 til að reyna að losna við umferðina.

Í gær sáum við Arla sem er vinnustaður Evu og tókum síðan strætó í bæinn. Hann kom nú bara nokkuð á óvart hversu fínn hann er og í raun er alveg hægt að versla þarna ... fundum okkur veitingastað fyrir kvöldið "Chino Latino" sem var meiriháttar góður. Þetta var asískt fusion í stíl Nobu og Hakkasan og voru kokkarnir þarna eitthvað tengdir Nobu ... við mælum með svarta þorskinum ... Inga Huld eignaðist þjóninn sem þennan líka þvílíka vin og var hann alltaf að koma með djúskokteil handa henni, blóm, konfekt og svoleiðis ... hún var líka mjög ánægð með allt þarna og þó við vorum þarna í 3 tíma þá skemmti hún sér konunglega og var aldrei leið.

Við erum svo á leið til víkingaþorpsins York í dag ...

cheers

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Það var eithvað blað sem laug því að mér í morgun að það væri yfirvofandi hitabylgja hér og að hitinn um helgina myndi slá hitamet sumarsins fyrir tveimur árum!! Þegar ég kíkti síðan á 5 daga spána hér til hliðar þá er þar bara spáð 20 stiga hita og ekkert voðalega spennandi ... aldrei neitt að marka þessar veðurspár ...

Lífið er annars tekið hér á sig nokkuð venjulega mynd nema Inga Huld og Jóa eru að sjálfsögðu heima á daginn og dunda sér við leik og störf. Í dag fóru þær t.d. útað hjóla meðal annars og hjólaði Inga Huld bara á einn mann í þetta skiptið ... Við erum síðan á leiðinni í langferðalag á bílnum okkur norður til Leeds á föstudaginn í heimsókn til hennar Evu, ætli ég bæti ekki nokkrum frídögum við helgina ... maður er orðinn svo ansi vanur þessu fríeríi. Það er líka alveg skelfilegt að þetta eru fyrstu dagarnir án þess að bjór er teigaður og útskýrir það líklega slappleikann ... hálfgerður "cold turkey" í gangi og einhver fráhvarfseinkenni finnanleg.

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Héldum áfram sumarfrísfílingnum og fórum á Portobello markaðinn í gær - reyndar á bílnum þar sem við ætluðum að kíkja í fleiri búðir á heimleiðinni ... leitin að sófaborðinu er nefnilega hafin ... Í dag flatmögum við síðan í sólinni núna þó að það sé dáldið kalt, rétt um 20 gráður en fer hlýnandi þó. Við ætlum síðan í Greenwich garðinn þar sem Inga Huld er að læra að hjóla án hjálpardekkjanna - finnst henni það mikið sport og er jafnvægið alveg að koma þó að það sé dáldið erfitt að stýra í hvaða átt verið er að hjóla ... þetta er því allt dáldið "wibbly wobbly" einsog Inga Huld orðar það. Hún er búin að detta nokkrum sinnum en harkar þetta af sér og er harðákveðin í því að læra að hjóla einsog stóru krakkarnir ... mjög dugleg.

cheers

föstudagur, ágúst 05, 2005

Komin heim frá Ljubljana ... amma og afi farin til Íslands ... og síðasti frídagurinn í dag þannig að á mánudaginn byrjar venjuleg vinnuvika. Við erum búin að eyða síðustu tveim dögum bara hér heima í afslappelsi og gátum aðeins sólbaðað okkur í gær - líður lítillega einsog við séum uppi í sumarbústað og er tilfinningin góð!

Ljubljana var annars alveg frábær og er upplögð fyrir stutt frí þar sem markmiðið er að slappa af og rölta á milli kaffihúsa, bara og veitingastaða ... verðlagið líka ekki í verri kantinum þar sem stórt bjórglas lagðist á 150 kr og léttvínsflaskan á 1000 kr ... þ.e.a.s. á veitingastöðum! Skemmtum okkur semsagt konunglega og erum endurnærð eftir sumarfríið - mælum með þessum stað ... Inga Huld skemmti sér einnig konunglega með ömmu og afa og var einnig hæstánægð með sitt sumarfrí.

cheers