sunnudagur, september 24, 2006

Þetta var hálfgerð letihelgi hjá okkur núna, allavega hjá mér og Ingu Huld þar sem Jóa þurfti að læra og vinna í hópverkefnum. Í gær fórum við í Madison Square Park á scooternum og Inga Huld lék sér í leiktækjunum heillengi áður en við hittum Jóu á Union Square og versluðum í matinn. Ég eldaði nautafillet í kvöldmatinn sem við keyptum hjá butchernum á 2nd avenue milli 22nd og 23rd street - höfðum við ekki verslað við hann áður en nokkrum sinnum kíkt á úrvalið í borðinu.

Í dag var svo enn meira letilíf ... bókalestur og sjónvarpsgláp. Dröttuðumst út um kaffileytið og röltum þá uppá Times Square þar sem stefnan var sett á Toys´r us ... Inga Huld er nefnilega að fara í afmæli hjá Rosie á miðvikudaginn eftir skóla. Var nú hægt að eyða smá tíma í dótabúðinni að skoða og spuglera ... t.d. var komið dáldið af nýju playmoi og nóg var úrvalið af Barbie ... Inga Huld er nefnilega byrjuð að plana jólagjafalistann og er líklega af nógu að taka þar sem hún sér oft og iðulega eitthvað í auglýsingatímanum á teiknimyndastöðunum sem henni langar í. Það er þó merkilegt að á einni stöðinni, líklega Disney stöðinni, þar eru oft bílatryggingaauglýsingar og Inga Huld er orðin ansi þreytt á þeim gæja og dæsir og stynur hvað í óskpöpunum hann sé að gera þarna að trufla það sem hún sé að horfa á ... í raun og veru er ég alveg sammála henni, er ekki alveg að ná markhópnum hjá fyrirtækinu. Sé kannski tvo hópa - annar er heimavinnandi húsmæður (-feður) sem sitja yfir skjánum með börnunum og hinn er sá að þeir reyna að sannfæra kaupandann snemma að kaupa sínar vörur ... sú tækni virðist þó fara öfugt í dóttur okkar þar sem ekki er séns á því að hún eigi eftir að skipta við þetta bílatryggingafyrirtæki. Allavega fengum við okkur síðan snemmbúinn kvöldmat á "Olive Garden" sem er á Times Square - er sá staður allt í lagi í hallæri en ekkert sérstaklega spes.

cheers

laugardagur, september 23, 2006

Það er mikil öryggisgæsla á Manhattan núna, sérstaklega í kringum hús sameinuðu þjóðanna þar sem nú er allsherjarþing hjá þeim. Bygginguna þeirra má t.d. sjá á myndinni fyrir neðan í bakgrunni frá skólanum hennar Ingu Huldar. Mér skilst að það sé óvenju mikil gæsla núna og margar götur lokaðar og slatti af lögregluþjónum á hverju götuhorni - fínu hótelin eru víggirt þar sem allir þjóðhöfðingjarnir gista ...

Annars þá er Herra Níels með kvef - fór til læknis í dag í nokkrar sprautur og fékk meðal í leiðinni ... að öðru leiti var hann við góða heilsu. Inga Huld keypti fyrir hann enn eitt nammið í dýrabúðinni þar sem hann er svo matvandur að hann borðar ekkert nema bara standard matinn sinn og ekkert annað ... loksins núna fann hún eitthvað sem honum líkaði.

cheers

miðvikudagur, september 20, 2006

laugardagur, september 16, 2006

Það var heilmikil dagskrá fyrir daginn. Við vorum komin á fætur fyrir klukkan níu og fyrsta verk var að prófa tölvusímann sem við hlóðum niður og fengum loksins í gegn hjá Símanum. Prófuðum að hringja í Unufellið og Sunnubrautina og allt virkaði í himnalagi. Allavega þá er símanúmerið 499-0606 og þeir sem eru á Íslandi eða með aðra tölvusíma geta hringt í þetta númer og borga íslenskt innanlandssímtal fyrir - við svörum ef við erum heima og kveikt er á tölvunni ... dáldið sniðugt. Síðan var stefnan tekin á að skrá Ingu Huld í ballet - við vorum búin að finna ágætis skóla, Joffrey Ballet School, sem er á Avenue of the Americas, öðru nafni 6th Avenue á milli 9th og 10th street sem er ca 30 mínútna gangur frá okkur - hingað mun hún koma í einn og hálfan tíma eftir skóla á fimmtudögum og nema þá list að dansa ballet. Eftir skráninguna þurftum við að kaupa balletföt og var okkur bent á að fara í Danskin á milli 67th og 68th og kaupa "Light Blue Leotard", "Pale Pink Tights" og "Pink Leather Ballet Slippers". Þetta fannst Ingu Huld nú ekki leiðinlegt verkefni og hlakkar mikið til að byrja í alvöru ballet skóla! Heimleiðin frá búðinni gekk þó ekki vel og virtist ekkert ganga upp hjá okkur í metróinu - við lærðum að A línan er express línan fyrir C línuna og stoppaði ca 60 götum ofar heldur en þar sem við ætluðum að fara út. Síðan voru tvær línur lokaðar þannig að heimferðin sem var áætluð 30 mínutur tók 90 mínútur.


Jóhanna þurfti að skreppa í skólann að vinna í einhverju hópverkefni og ég og Inga Huld höfðum það verkefni að kaupa dót fyrir Herra Níels, hann var nefnilega búinn að bókstaflega slátra músinni á veiðistönginni, bæði búinn að slíta allar fjaðrir af henni og loks naga teygjuna í sundur af sjálfri stönginni. Við fundum ýmislegt sniðugt, meðal annars bolta fastan innan í hring þar sem Herra Níels getur ýtt í boltann og snýst hann þá í hringi, eltir hann boltann og reynir að ná honum en boltinn fer bara hraðar og Herra Níels nær honum ekki - þannig gengur þetta áfram endalaust og finnst honum þetta mjög sniðugt. Ingu Huld fannst samt ekki sniðugt þegar við löbbuðum upp Park Avenue að það var lokað að hluta vegna þess að það var verið að taka upp bíómynd - þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem við lendum í því að þurfa að taka á okkur krók vegna bíómyndaupptöku. Á götuna var búið að raða drulluskítugum bílum og stilla upp grasi og stráum svona hér og þar - síðan var rauður og glæsilegur Ford Mustang með áfastar myndavélar tilbúinn til að vera filmaður - í honum var stór hundur í framsætinu sem var reyndar ekki alvöru. Við erum þó spennt að sjá hvort við munum sjá þessa mynd í bíó en allavega sáum við engan frægan á svæðinu. Inga Huld var þó alveg viss um að það væri ekki verið að filma Ice Age 3 þar sem að það þyrfti að gerast uppi í fjöllum þar sem snjórinn væri en það væri þó ekki gott að þurfa að loka skíðasvæðinu á meðan filmað væri ... ýmsar pælingar í gangi ...


Í kvöldmatinn var síðan grillaður skötuselur með kartöflum og salati. Í tilefni laugardagsins var einnig desert - ávextir með rjóma ... namminamm ...

cheers

föstudagur, september 15, 2006

Nenntum ekki að eyða tíma í matarinnkaup og eldamennsku þar sem við vorum bæði svo seint á ferðinni þetta föstudagskvöldið. Ég hitti því skvísurnar á Dos Caminos sem er mexíkóskur veitingastaður sem við höfðum nokkrum sinnum framhjá hér í nágrenninu á Park milli 25th og 26th og leist vel á. Var maturinn mjög góður, sérstaklega guacamole sósan - við fengum okkur quesedillas og enchiladas - getum alveg mælt með þessum. Staðurinn var ótrúlega stór og flottur og var hann stútfullur þegar við komum kl. 7 og enn fyllri þegar við fórum 2 tímum seinna. Hefði verið til í að prófa margaríturnar þarna ... gerum það seinna.

Svo er bara helgin framundan - aldeilis ágætt það!

cheers

þriðjudagur, september 12, 2006

Inga Huld og Herra Níels eru orðnir bestu vinir (nema þegar Herra Níels ruglar öllu playmoinu) og hlaupa saman fram og tilbaka í íbúðinni. Á myndinni má sjá uppáhaldsleikfangið sem virkar eiginlega einsog veiðistöng - þetta finnst Herra Níelsi voðalega gaman að elta og stökkva á eftir og er í miklum veiðiham, hefur hann nokkrum sinnum "slátrað" músinni sem er á endanum. Hann er líka mjög forvitinn og skoðar allt sem kemur heim og treður sér ofaní og gegnum ýmislegt. Við vorum t.d. farin að sofa í gær þegar mjög veiklislegt mjálm heyrðist öðru hvoru. Nokkrum sinnum fór ég að leita að Herra Níelsi til að athuga hvað væri að en hann fannst hvergi. Að lokum ákvað ég að tékka í fataskápinn og viti menn, þar var Herra Níels ekki alveg ánægður með tilveruna.



Loksins, loksins byrjar Inga Huld í skólanum á morgun og hlakkar hana mikið til - fengum hluta af skólabúningunum í kvöld en þó ekki allt þar sem fyrsta sendingin var alltof stór. Sumarkjóllinn hennar er bleikur og lítur alveg ágætlega út en vetrarbúningurinn er rauðgrá köflóttur kjóll sem er ekki alveg okkar tískulitur en virðist mjög klassískur breskur skólakjóll ... það verður bara að venjast.

Barnfóstra byrjaði hjá okkur á mánudaginn og verður helsta verkefni hennar að sækja Ingu Huld í skólann og koma með heim þar sem Jóhanna er alltaf svo seint í skólanum sínum. Henni og Ingu Huld kemur mjög vel saman og eru þær búnar að fara út á leikvöll og í göngutúra á scooternum. Stefnan er einnig sett á að nýta hana sem barnapíu einhver kvöld þannig að það sé hægt að fara að kíkja á lífið hér í NYC!!

Ætli maður reyni ekki núna að kjósa hann Magna Rockstar Supernova nokkrum sinnum í viðbót á rockstar.msn.com - það er nokkuð merkilegt að fólk hér virðist taka eftir honum og þeirri staðreynd að hann sé Íslendingur ... nú er það ekki bara Björk og Sigurrós frá Íslandi heldur einnig Magni.

cheers

sunnudagur, september 10, 2006

Ég og Inga Huld fórum með Jóu ég skólaverkefnisferð í gær. Hún þurfti að skoða svæðið þar sem hún á að hanna byggingu samkvæmt fyrirmælum kennarans. Staðurinn er ekki svo langt frá en er þó á Long Island - gátum við því tekið subway þangað. Við röltum um svæðið og svo niður að ánni þar sem við gátum notið útsýnisins yfir á Manhattan og var gaman að sjá turnana frá öðru sjónarhorni.

föstudagur, september 08, 2006

Inga Huld fór aðeins í skólann sinn í gær - það var kynningardagur og fengu foreldrar að mæta með og hitta kennarana, skoða skólastofurnar, bókasafnið og svoleiðis. Þetta leit allt saman voðalega vel út og fyrsta verkefnið hjá krökkunum var að taka verðmiðana af dótinu þar sem allt er nýtt. Einnig þurftum við að skipta öllum skólabúningsfötunum og fá minna þar sem skólabúningssalinn klúðraði málunum ... við vorum ekki þau einu sem lentu í þessu og virtist þetta hafa farið út um þúfur hjá manninum. Við eigum að fá nýtt sent fyrir fyrsta skóladaginn á miðvikudaginn í næstu viku. Inga Huld er orðin spennt að byrja í skólanum og er það vel skiljanlegt að hún sé orðin leið á því að hanga svona. Hún fór á scooternum sínum í skólann og virðist það ætla að verða framtíðarferðamátinn hjá henni og er hún farin að renna sér af miklum móði á þessu apparati.

Annars virðist vera ágætis veðurspá fyrir helgina og hefur hlýnað hér aftur ... ég þarf að fara að taka sængina mína úr sængurverinu aftur þar sem það er orðið svo heitt hér inni.

cheers

miðvikudagur, september 06, 2006

Eftir vinnu fórum ég og Inga Huld útað Hudson River og var Inga á scooternum sínum. Við fórum með nokkur blöð í skólann hennar Ingu Huldar og síðan fengum við okkur göngutúr meðfram ánni. Sáum við þar ýmislegt sniðugt - flugvél lenti á ánni og lagði síðan að árbakkanum, leigubílabátur þeysti nokkrum sinnum framhjá og síðan voru menn að veiða. Þeir voru dáldið spaugilegir með nokkrar stangir fastar við grindverkið og búnir að hengja upp bjöllur á stangarendana. Við sáum einn fisk veiddan - ég bjóst nú ekki við að sá væri glæsilegur en hann var alveg silfraður og fínn. Maðurinn sem veiddi hann var mjög stoltur og sagðist hafa verið þarna í 13 klukkutíma og ekki fengið neinn fisk. Hann hélt því fram á meðan að hann var að hala inn að hann væri 80 pund ... en mér sýndist hann svona ca 20 sinnum smærri en það ... samt ágætis fiskur.

Á myndinni má sjá Empire State til vinstri - í hægri turninum beint fyrir aftan Ingu Huld er skólinn hennar sem er á jarðhæð alveg við ánna og lengst til hægri er bygging UN.

mánudagur, september 04, 2006

Á laugardaginn gekk Ernesto yfir með ausandi rigningu og tilheyrandi leiðindum. Okkur tókst þó að finna nokkrar bókabúðir í nágrenninu þar sem Jóa þurfti að kaupa arkitektúrabækur fyrir skólann. Ein var nálægt Union Square sem ku vera með besta úrval listabóka í New York - ekki dugði það til og fannst ekki allt sem til þurfti. Um kvöldið komu svo Elín, Sigurgeir, Sandra og Unnur í kvöldmat. Kisinn vakti mikla lukku og hrifningu og fékk mikla athygli. Í matinn var túnfisk og laxa sashimi í forrétt, síðan kjúklingabitar á rósmarínstilkum í aðalrétt og að lokum var heimagerður broddgaltavanilluís með berja og makkarónu mauki ... algjört nammi!! Þrátt fyrir lítið eldhús þá virtist alveg ganga að galdra þar fram góðan mat. Stelpurnar dunduðu sér langt fram eftir nóttu við leik og virtust ánægðar að fá leikfélaga. Skólinn byrjar í næstu viku hjá Ingu Huld þannig að fríinu fer að ljúka fljótlega hjá henni sem ég held að henni hlakki mikið til að gerist - alveg búin að fá nóg af þessu hangsi.

Á sunnudeginum sváfum við lengi og hvíldum okkur vel og vandlega - það var líka einhver þreyta í liðinu. Seint og síðar meir drösluðumst við út og fórum á Guggenheim safnið og kíktum á sýningu hjá arkitektinum Zaha Hadid og sáum einnig sýningu á málverkum Jackson Pollock ... mjög menningarlegur dagur hjá okkur. Fundum síðan þetta líka fína austurríska kaffihús tveimur götum frá og fengum okkur heitt kakó, samlokur og súkkulaðikökur - engan kvöldmat þurfti eftir þetta!

Kisinn er búinn að fá nafn - hann heitir Herra Níels og valdi Inga Huld það nafn.

cheers