þriðjudagur, mars 27, 2007

Þar kom að því ... það bættust við nýjir fjölskyldumeðlimir í dag!! Loksins, loksins og þeir gera meira að segja gagn!! Fyrst má nefna Rúmbuna frá irobot sem mun framvegis sjá um ryksugun á heimilinu ... ekki veitir af þar sem hann Herra Níels dreifir líkamshárum sínum um allt heimilið og pælir lítið í því að þrífa eftir sig þó hann megi nú eiga það að hann þrífur sjálfan sig ágætlega ...


Síðan var fengið sjálfþrífandi klósett frá litter-robot fyrir Herra Níels ... hmmm aldeilis hvað sumir eru orðnir þurftamiklir og kröfuharðir ... en þetta sparar mér sosum smávegis tíma og fyrirhöfn líka.


... aldeilis hvað hann Herra Níels er orðinn tæknivæddur ... hann býður ykkur velkomin á gervihnattaöld !!

cheers

mánudagur, mars 26, 2007

Inga Huld þrælar út gamla settinu og sýndi þeim skólann sinn í dag .. fékk að fara á scooternum og lét þau hlaupa á eftir sér á milli leikvalla. Sýndi þeim síðan hvar helstu búðirnar eru í nágrenninu og plataði þau á Dunkin Donuts!

Fórum í sextugsafmæli í gær hjá Elton John sem spilaði í sextugasta skipti í Madison Square Garden og var hann þar meðtekinn í klúbb sextugra af Bill Clinton. Elton spilaði síðan stanslaust frá klukkan átta til hálftólf ... ansi gott úthald hjá þeim gamla ... lagði sig stundum uppá flyglinum til að ná andanum!! Afmælissöngurinn var síðan sunginn með Whoopi Goldberg og Robin Williams ...

sunnudagur, mars 25, 2007

Þá eru tengdó komin í heimsókn og mættu þau í öllu sínu valdi á föstudagskvöldið og verða hjá okkur fram yfir páska. Komu þau færandi hendi með ost, pylsur, remúlaði og páskaegg. Inga Huld var búin að bíða spennt og hlakkar til að eyða páskafríinu með ömmu og afa. Við byrjuðum rólega í gær og sýndum þeim nánasta nágrenni og fórum svo í gærkvöldi á Cabaret og sáum KT Sullivan og Mark Nadler söngla í dimmu bakherbergi á hóteli rétt hjá Times Square. Cabarettinn hér er öðruvísi en sú evrópska ímynd sem ég hef af cabaret þar sem löng lína af stúlkum spriklar fótunum fram og tilbaka heldur er þetta meiri jazz fílingur þar sem söngvararnir segja sögu með samtali, spili og söngvum. Þetta var bara skemmtilegt og féll í kramið hjá gestunum.

sunnudagur, mars 18, 2007

Fórum í gær á alveg meiriháttar þorrablót sem haldið var í gamalli kirkju "Landmark on the Park". Matur í hágæðaflokki, hangikjöt, sviðasulta, hrútspungar, harðfiskur, flatkökur, rófustappa, kartöflur, lifrarpylsa, blóðmör, bringukollar, reyktur lax, grafinn lax og þannig lagað ... ekki má heldur gleyma hákarlinum og brennivíninu. Utan brennivínsins var kvöldið BYOB þ.e. Bring Your Own Booze og mátti þekkja Íslending á Manhattan í mílufjarlægð í sínu fínasta pússi með kippu í poka ... alla vega litum við ekkert út einsog sveittir Írarnir sem voru að halda upp á St Patricks Day og voru komnir í röð fyrir utan pöbbana klukkan ellefu í gærmorgun. Kræsingarnar enduðu á NY skyri framleiddu af Sigga skyr sem kom vel út! Síðan voru íslenskir söngvar sönglaðir og Ragga Gröndal tók lagið einsog henni er lagið ... málsháttur var hafður eftir Sverri Stormsker í einni ræðunni og var hann hafður að leiðarljósi það sem eftir var kvöldsins ... betra er að teyga sopann heldur en að teygja lopann ...

hikk

föstudagur, mars 16, 2007

Þvílíkt og annað eins ... hér snjóar bara einsog ekkert sé sjálfsagðara. Það er eilítið minna hér inná Manhattan en í úthverfunum eru komnir skaflar. Skrítin úrkoman á stundum, er einsog haglél en eru alveg glærar kúlur ... semsagt réttnefni að kalla þetta frostrigningu! Að sjálfsögðu allt í rugli á svæðinu og margir skólar og þvíumslíkt lokað ...

... þetta er að sjálfsögðu undanfari þorrablótsins sem er á morgun !!

mánudagur, mars 12, 2007

Á föstudaginn var lagt af stað í fjölskylduskíðaferð til Stratton í Vermont - framundan var 220 mílna akstur eða um 4 klukkutímar sem urðu 5 vegna þess að það tók 1 klukkutíma að komast fyrstu 10 mílurnar út af Manhattan. Við rifum okkur eldsnemma á fætur og í skíðafötin á laugardagsmorgninum þar sem byrja þurfti á því að leigja skíðaútbúnað ... síðan var hafist handa við að kenna Ingu Huld á skíðin. Byrjað var á "magic carpet" sem er snilldar barnalyfta þar sem einfaldlega er stigið á gúmmífæriband sem kemur manni mjúklega upp brekkuna.



Fyrsta stig var að læra plóginn (eða pizzuna einsog kaninn kallar það) og venjast því að renna á skíðunum ... og þá mátti alls ekki sleppa!!



... en á sunnudeginum eftir kennslu og meiri æfingar þá var sjálfstraustið farið að aukast og var hún farin að renna sér eilítið sjálf en þó ekki nema einhver væri innan handar ef skíðin myndu ekki láta að stjórn. Á mánudaginn gat fjölskyldan þó öll skíðað saman og var einsog hún hefði aldrei gert annað!


Nú er þegar byrjað að plana næstu ferð og hefur verið óskað eftir því að hún verði lengri en þessi.

... á skíðum skemmti ég mér trallalalllala ...


miðvikudagur, mars 07, 2007

Hér snjóar meira ... ekki hefur nú komið mikill snjór hjá okkur í þetta skiptið en þó smá fjúk til að minna á veturinn. Þetta er í rauninni bara fínt að fá svolítinn vetur þó að 10 stiga frostið sé nú fullmikið. Annars erum við á leiðinni á skíði um helgina upp til Stratton í Vermont ... erum búin að leigja bíl, uppfæra skíðafötin okkar og alles ... útlitið er bara gott samkvæmt "snow reportinu" og er um meters snjólag á svæðinu en þeir búa einnig til mikið af snjó í brautirnar ef á vantar.

cheers

sunnudagur, mars 04, 2007

Skelltum okkur í gær út á lífið ... byrjuðum á skemmtilegum Tapas stað sem er staðsettur í ABC home & decor store ekki langt hér frá. Síðan var haldið á tónleika þar sem við sáum Scissor Sisters spila og syngja í Madison Square Garden ... mikið fjör og gaman enda spila þau skemmtilegt gleðipopp!

Ég hélt í gær að vorið hefði komið ... það var um 15 gráðu hiti (celcius) og var greinilegt að fólk geymir sumarfötin ekki langt inni í skáp þar sem sumir voru í stuttbuxum, aðrir í stuttermabolum og sandölum ... heitt og gott veður sem sagt ... nema hvað að í dag var orðið kalt aftur og spáð er meira frosti, snjókomu og roki í vikunni ...

laugardagur, mars 03, 2007