Skólinn hjá Jóu er að byrja en Inga Huld byrjar ekki fyrr en í næstu viku og hlakkar mikið til. Það hefur því verið feðginatími hjá mér og Ingu Huld ... í gær löguðum við til hjólið hennar sem hefur ekki verið notað lengi, hækkuðum hnakkinn og stýrið, pumpuðum í dekkin og þurrkuðum af því rykið ... svo fékk ég scooterinn hennar lánaðan og við skelltum okkur út. Það var dáldið erfitt að hjóla fyrst en svo kom þetta allt saman og var það svipuð saga hjá mér, dáldið erfitt að höndla þennan scooter til að byrja með svo að vel færi en svo var ég orðinn ansi lunkinn. Við höfðum ekkert takmark í sjálfu sér og áður en við vissum af þá vorum við komin niður að Williamsburg bridge ... þannig að þá var stefnan að sjálfsögðu sett á Manhattan bridge og þegar þangað var komið þá var náttúrulega ekkert annað en að fara að Brooklyn bridge. Það er einmitt góð leið til að muna í hvaða röð brýrnar koma að neðanfrá talið er það Brooklyn, Manhattan, Williamsburg sem sagt BMW ... en það er nú aukafróðleikur. Í dag kom ég svo heim eftir hádegi og þá var að sjálfsögðu farið í annan hjólatúr nema að núna var ég á hlaupaskónum ... kominn tími til að hreyfa sig aðeins núna eftir sumarið. Það er ansi langt síðan ég hef farið út að hlaupa og þá sérstaklega í 32ja stiga hita ... það kom þó svalandi vindur af East River þannig að þetta var ekki svo slæmt. Við stefndum aftur að Brooklyn Bridge og hvöttum hvort annað áfram ... Inga Huld vildi snúa við þegar við vorum hálfnuð og svo vildi ég snúa við þegar við vorum komin 3/4 leiðarinnar þannig að á endanum komumst við alla leiðina með reglulegum hvíldum og stoppum á leiðinni ... heimleiðin var í rauninni einhverra hluta vegna styttri þrátt fyrir að vera nákvæmlega sama leiðin. Þetta ferðalag tók okkur einn klukkutíma og fjörutíuogfimm mínútur sem er ekki svo slæmt miðað við að samtals voru þetta um 6.8 mílur eða rétt tæplega 11 kílómetrar ... ágætis æfing það fyrir bæði okkur.
fimmtudagur, ágúst 30, 2007
sunnudagur, ágúst 26, 2007
Á föstudeginum hætti ég tiltölulega snemma í vinnunni og hitti stelpurnar í bíóhúsi á Times Square þar sem við fórum að sjá Ratatouille ... skemmtileg mynd sem er alveg hægt að hlæja að. Annars gerðum við ekki mikið um helgina annað en að slappa af, njóta lífsins og borða góðan mat ... Jóa heldur áfram að útbúa nýja framandi og spennandi matrétti fyrir okkur !! Við fórum svo í góðan göngutúr í dag og röltum um Moma þar sem við skoðuðum skemmtileg verk Richard Serra. Á heimleiðinni keyptum við okkur svo japanska græn-te köku sem bragðaðist mjög vel ... við hliðina á Rockefeller Center er einmitt japanskt bakarí sem selur kökur og annað góðmeti frá Japan.
föstudagur, ágúst 24, 2007
Rosa Mexicano
Þessi rosa-legi mexikanskí staður er á 18th á milli 5th og Broadway og opnaði frekar nýlega þarna en er fyrir með tvo aðra staði á Manhattan. Staðurinn er mjög flottur og er stór bar þar sem gott er að byrja á Margaritu áður en lengra er haldið. Annars er hann mjög líkur Dos Caminos nema að matseðillinn hér er líklegra ívíð stærri og ég mæli með því að panta borð. Matseðillinn býður ekki bara uppá burritos og tacos heldur er hann mjög fjölbreyttur og býður upá marga möguleika. Einsog á Dos Caminos byrjuðum við á að fá ferska guacamole sósu, sem er útbúin við borðið, og nachos ... klikkar ekki. Í aðalrétt fengum við okkur heilsteiktan karfa sem var mjög góður og réttur sem ég taldi að væri nokkurs konar fajitas en þeir kölluðu tacos al asador ... allavega var það niðurskorin steik á pönnu og ýmis konar meðlæti með sem hægt var að setja í mjúka tacos köku. Maturinn var mjög góður og ekki var slæmt að núna var í boði aukalega í desert ísveisla sem við gátum ekki látið fara framhjá okkur. Við fengum okkur því guacamole ís sem var avocado sorbet ís létt maukaður með jarðarberjum og myntu ... yfir þetta var síðan bætt við súkkulaði sósa og með voru djúpsteiktar tacos kökur með súkkulaðimylsnu.
Staðurinn er frískur og flottur ... ekta til að fara á ef leiðin liggur á lífið, mun ekki valda vonbrigðum. Ég á erfitt með að gera upp á milli Rosa Mexicano og Dos Caminos og ef staldrað er við stutt við hér þá er nóg að prófa bara annan staðinn ... gef honum fjórar stjörnur.
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
Herra Níels fékk nýtt dót um helgina. Hann var mjög upprifinn yfir nýja dótinu sem var mús með bjöllu á og var fest með teygju á stutta plaststöng ... nokkurs konar veiðistöng ... þetta skoppaði hann og hoppaði á eftir í smá tíma. Dótið var svo skilið eftir á gólfinu í smástund og þegar að var komið þá var Herra Níels búinn að naga músina af teygjunni ... sem og naga teygjuna af stönginni ... og það sem meira er að teygjan er horfin ... þykir líklegt að hún sé nú einhvers staðar í meltingarveginum hans.
laugardagur, ágúst 18, 2007
Þá erum við bara þrjú í kotinu aftur og er þetta fyrsta helgin síðan í júní sem við erum hér ein í rólegheitum. Jóa sýndi bræðrum sínum Manhattan, gaf þeim að borða og hugsaði vel um þá og nutu þeir dvalarinnar bara vel. Meðal annars var farið í dýragarðinn í Bronx, tívolíið og ströndina á Coney Island, frelsistyttuna, Empire State svo eitthvað sé nefnt.Maturinn fór vel í þá og virtust hamborgararnir og nautasteikurnar fara vel í þá. Það var líka byrjað á því að grilla dry-aged Porterhouse sem sló í gegn ... í rauninni var þetta ein sú best heppnaða nautasteik sem við höfum sjálf boðið uppá. Þeir gátu líka verslað eitt og annað af fötum og raftækjum og var allt á kostakjörum. Inga Huld nýtti tækifærið að hafa rafvirkja í heimsókn og var lagt rafmagn í Playmohúsið og er nú hægt að lýsa upp öll herbergin.
fimmtudagur, ágúst 16, 2007
Butai
Við höfum séð þennan huggulega japanska veitingastað oft á leið okkar heim frá Union Square á 18th á milli Park og Irving Place og það var kominn tími til að prófa. Butai er "Robata Japanese cuisine" sem lauslega merkir grillaður japanskur matur. Það er erfitt að velja af matseðlinum úr fjölda rétta en eftir útskýringar þjónsins og sú staðreynd að verðið á hverjum rétti var ekki hátt þá kom í ljós að réttirnir eru mjög mjög litlir ... mun minni heldur en t.d. á Nobu eða öðrum japönskum stöðum þar sem ætlast er til að réttunum sé deilt einsog hér. Mikið er um grillaðan mat á teini, sushi og sashimi. Við pöntuðum slatta og prófuðum ýmislegt ... það sem stóð uppúr var túnfisk-sashimi, sushi með ál og makríl, skirt-steik og nautalund grilluð á teini, önd, lambakótilettur, risarækjur, quail egg og túnfiskrúllan. Það sem olli einna helst vonbrigðum var að soft shell crab var ekki uppá sitt besta þarna ... mæli með því að sleppa honum. Þjónninn stóð sig einnig miður vel, talaði illa ensku og var lengi að koma með drykkina ... ekkert er hægt að kvarta yfir matnum og held ég að við höfum einfaldlega verið óheppin með þjón, líklega var hann nýr. Þetta er ekta staður til að sitja á lengi og drekka gott sake og borða rólega mikinn fjölda af mjög góðum smáréttum á alveg ágætis verðlagi - ég gef þessum fjórar og hálfa stjörnu.
mánudagur, ágúst 13, 2007
Keens Steakhouse
Við höfðum fyrir því að finna nýtt steikhús til að fara á og fundum Keens Steakhouse, á 36th milli 5th og 6th, eða Keens Chophouse einsog stendur utan á staðnum og leit afskaplega vel út. Staðurinn er frá 1885 og er frá þeim tíma þegar leikhúshverfið var á þessu svæði. Fram til 1901 var staðurinn einungis fyrir karlkynið þangað til bresk leikkona lögsótti þá fyrir að meina sér aðgöngu. Staðurinn býður uppá formlegan veitingastað þar sem panta þarf borð en hluti af barnum er einnig með sama matseðil og veitingastaðurinn og þar er borðum úthlutað á "first come, first serve basis". Loftið á staðnum er fyllt gömlum pípum og var það þannig áður fyrr að menn geymdu pípurnar sínar á stöðunum og þjónarnir sóttu síðan pípuna sem maður átti. Það er einkar skemmtileg steikhúsastemning á staðnum og maturinn er fyrsta flokks. Sjálfur fékk ég mér "Keens legendary mutton chops" sem var hálfur lambahryggur af 10 mánaða gömlu lambi ... mjög gott og held ég að ég hafi ekki prófað svona "gamalt" lamb áður, en kjötið af því var aðeins grófara heldur en af því sem ég hef prófað áður. Nautalundinni er hægt að mæla með og er fyrsta flokks! Ef kjöt fellur ekki í kramið þá eru nokkrir sjávarréttir í boði og fengum við okkur risarækjur líka sem voru mjög ljúffengar. Það var lítið pláss fyrir desert en þó var pantaður ís með heitri súkkulaðisósu og rjóma þ.e. hot fudge sundae og berjatart. Desertinn var ekki jafngóður og aðalrétturinn og er betra að fá sér bara kaffi og kannski einn viskí en það er hægt að velja úr meira en 200 single-malt tegundum. Mæli með staðnum ef einhver vill góða steik og gef honum fjóra og hálfa stjörnu.
miðvikudagur, ágúst 08, 2007
Það var ausandi rigning þegar ég vaknaði í morgun en sem betur fer var búið að stytta upp þegar ég lagði af stað í vinnuna ... það dugði nú skammt þar sem metróið var lokað vegna flóða. Ekki var hægt að sjá lausan leigubíl í mílufjarlægð og raðirnar í strætóana voru ævintýralega langar. Ég lagði því að stað í ca. 30 mínútna göngu upp Park Avenue frá 23ja stræti til 52rs strætis sem er sosum ekki frásögur færandi nema að eftir 5 mínútur var ég orðinn kófsveittur og útlitið ekki gott í ca 85% raka og 30 stiga hita. Það var ekki um annað að ræða en að hægja á sér og reyna ekki of mikið á sig og mikið skelfing var gott þegar ég labbaði í gegnum loftkælda Grand Central bygginguna ... þessi skúr í morgun olli hinsvegar miklum samgöngutruflunum og ýmsir sem komust yfirhöfuð ekki í vinnuna í dag ...
Herra Níels er líklega ekkert of ánægður að vera skilinn eftir einn svona lengi þar sem að hann vekur mig undanfarnar nætur um klukkan 5 með miklu mjálmi og vill fá athygli ... það er ágætt að á morgun koma stelpurnar og með þeim koma bræður Jóu og verður þá nóg um að vera í kotinu.
þriðjudagur, ágúst 07, 2007
Vong
Vong er í eigu Jean-Georges Vongerichten sem á nokkra staði í New York, meðal annars Spice Market og flaggskipið Jean-Georges sem skartar þremur Michelin stjörnum. Þessi fær eina Michelin stjörnu, var opnaður 1992 og er staðsettur á 54ða stræti við 3ja avenue skreyttur asísku ívafi. Eldamennskan er franskt/tælenskt fusion og kemur bara vel út. Mér fannst forréttirnir þó betri heldur en aðalrétturinn en það var sosum ekki hægt að kvarta neitt mikið yfir svarta bassanum sem ég fékk í aðalrétt með kókoshnetusafa og parsnip. Í forrétt fengum við ýmsa smárétti og runnu þeir ljúft niður án nokkurra vandkvæða ... vorrúllur með krabbakjöti, túnfiskrúllur með grænmeti og avocado, Quail læri og pork satay. Eftirrétturinn var einnig samsafn rétta og bragðaðist tapioka búðingurinn mjög vel ásamt mjög ljúffengri heitri súkkulaðiköku. Þjónustan var eilítið fyrir ofan garð og neðan þar sem þeim lá stundum á að vilja taka diskana af okkur þrátt fyrir að við værum ekki búnir. Annars mjög góður staður og mæli eindregið með honum - gef honum fjórar stjörnur.
mánudagur, ágúst 06, 2007
Ég kom heim í gær frá London eftir smávegis útúrdúr um helgina til Kaupmannhafnar þar sem ég hitti Jóu og við heimsóttum Evu og hennar danska kærasta. Það er skemmtilegt að koma til Köben um sumar og geta notið veðurblíðunnar á hafnarkantinum í Nyhavn sötrandi Carlsberg úr dós sem keyptur var í Nettó ... hygge sig ... það er það sem málið snýst um. Við borðuðum smörrebröd, drukkum öl, skelltum okkur í Tívolí, röltum upp og niður Strikið og keyptum fallega skandenavíska hönnum sem ég dröslaði síðan heim í handfarangri langt umfram leyfilegri handfarangursvigt þar sem kertastjakarnir sem Jóa keypti eru níðþungir. Kertastjakarnir fengu meira að segja hrós frá öryggisvörðunum á Heathrow vegna þess að glerið í þeim er svo massíft að gegnumlýsingartækið þeirra sá ekki í gegnum þá ... þurftu þeir þar sem að handleita sérstaklega í mínum farangri.
Eftir vinnu sótti ég svo Herra Níels sem var ánægður að sjá mig ... stelpurnar í afgreiðslunni hrópuðu upp yfir sig þegar ég opnaði dyrnar ... "ææ ertu kominn að sækja Niels ..." ... hann er alveg búinn að heilla þær upp úr skónum!
cheers