Það mætti halda að við værum hætt að fara útað borða á þessum bænum ... ég hef þó komist að hvað er málið ... ég held að ég nenni ekki að skrifa svona mikinn texta um staðina og ákvað að prófa að stytta mál mitt. Hér kemur því upptalning á stöðum sem ég man í augnablikinu eftir því að við höfum farið á ...
Per Se (10 Columbus Circle, Time Warner Center)
Franskur 9 rétta matseðill ... ekki viss um hvort eða hvernig hægt sé að gera betur. Best að vera ekki í tímapressu á þessum stað því það er ekki verið að flýta sér og líka betra að njóta lífsins vel í þessari matarhimnasælu. Þrjár Michelin stjörnur ... fimm stjörnur frá mér ...
Del Posto (10th Av, á milli 15th &16th St)
Meiriháttar ítalskur staður - rosalegur ítalskur vínlisti. Tvær Michelin stjörnur ... fimm stjörnur frá mér ...
Buddah Bar (Little West 12th, á milli Washington St & 9th Av)
Flottur staður til að fara í hóp á ... stór og mikill staður og dáldil læti en maturinn góður sem er asískt fusion. Fjórar stjörnur ...
Vezzo Pizza (Lexington, á milli 31st & 32nd)
Frábær thin crust pizza ... höfum þó bara prófað heimsendinguna. Fjórar stjörnur fyrir pizzu ...
Nobu 57 (57th St, á milli 5th & 6th Av)
Nobu klikkar aldrei! Asískt fusion einsog það gerist best ... verður að panta Black Cod í miso sósu ... algjört nammi! Fimm stjörnur ...
Koi (40th St, á milli 5th & 6th Av)
Skemmtilegur og flottur staður hjá Bryant Park sem býður uppá asískt fusion. Fjórar og hálfa stjörnu ...
Gordon Ramsey at the London (54th St, á milli 6th & 7th Av)
Klassískt franskt með Ramsey tvisti. Tvær Michelin stjörnur og fimm stjörnur frá mér ...
Union Square Cafe (16th St, á milli 5th & Union Sq. West)
Zagat segir að þetta sé vinsælasti staðurinn í New York. Mjög góður og hefðbundinn matur hjá Danny Meyer sem veldur því líklega að maður vill koma aftur ef oft er farið útað borða. Fjórar stjörnur ...
Aquavit (55th St, á milli Madison & Park)
Eini skandinavíski veitingastaðurinn á Manhattan - flott skandinavísk hönnun. Fórum einmitt hér fyrir jólin og fengum síld og þessháttar góðgæti. Fjórar og hálfa stjörnu ...
Ben Benson´s (52nd St, á milli 6th & 7th Av)
Týpiskt amerískt steikhús þar sem gott er að fá skelfisk í forrétt og stóra steik í aðalrétt. Virðist vera einn af fáum stöðum þó í Manhattan þar sem hægt er að fá sneið af ekta-heilelduðu prime rib. Fjórar stjörnur ...
City Crab (Park, á milli 19th & 20th)
Góður amerískur sjávarréttastaður ... humar, krabbi, ostrur og þannig háttar. Þrjár og hálfa stjörnu ...
Momofuku Noodle Bar (1st Av, á milli 10th & 11th)
Ódýr, góður og vinsæll núðlubar með ótrúlega góðar núðlusúpur! Þrjár og hálfa stjörnu ...
Shilla (32nd St, á milli 5th & 6th Av)
Skemmtilegt kóreanskt BBQ þar sem steikin er grilluð á borðinu þínu. Nokkrir svona staðir í þessari Kóreugötu og eru ef laust flestir í svipuðum gæðum. Þrjár og hálfa stjörnu ...
þriðjudagur, febrúar 26, 2008
sunnudagur, febrúar 24, 2008
Hér snjóaði töluvert á föstudeginum og voru komnir litlir skaflar á tímabili en svo breyttist snjókoman í ísrigningu með tilheyrandi frostkulda og svo fór að rigna. Við erum að reyna að vera umhverfisvænni og verslum stundum mjólk í glerflöskum á Union Square markaðnum beint frá bóndanum ... síðan er hægt að skila glerflöskunni og er $1 í skilagjald ... við gleymum náttúrulega alltaf flöskunum heima og tókum því 5 með okkur á laugardaginn og keyptum svo flösku af súkkulaðimjólk og venjulegri mjólk og greiddum bara $1,5 fyrir ... ekki svo vitlaust ef munað er eftir flöskunum.
Fengum góða gesti í heimsókn á laugardagskvöldið og skemmti Inga Huld sér vel með Brynju vinkonu sinni langt frameftir kvöldi. Við áttum íslenskt lambalæri sem við höfðum hlakkað lengi til að bjóða uppá. Byrjuðum á antipasti þar sem við keyptum sneiðar af hinum ýmsustu pylsum í Whole Foods ... best var að afgreiðslumaðurinn (sem var af stærri gerðinni) gaf alltaf tvær sneiðar að smakka þegar hann var búinn að sneiða niður, maður var því vel mettur eftir verslunina. Síðan var lambalærið eldað á ítalskan máta að hætti Jamie og kom vel út en komumst þó að þeirri niðurstöðu að við þurfum að fjárfesta í kjötmæli svo fylgjast megi betur með steikinni. Í desert var pavloa sem Jóa er búin að mastera svo vel. Gátum lokið við tvær koníaksflöskur (það má kannski taka fram að það var ekki mikið í þeim fyrir ...) og ljóst að það þarf að fjárfesta í nýjum birgðum. Með matnum prófuðum við ágætis rauðvín frá Sterling í Napa Valley, árgerð 2004 ... virkaði mjög vel!
Jóa þurfti svo að fara í skólann á sunnudeginum ... ekki hægt að treysta hópnum til að sjá um þetta án hennar! Ég og Inga Huld bókuðum Mini Cooper hjá Zipcar og sóttum hana ... notuðum svo tækifærið og fórum í smárúnt um Manhattan áður en við skiluðum bílnum. Ekki mátti vera sein heim þar sem útsending frá rauða teppinu á Óskarnum byrjaði klukkan 6 og ekki mátti missa af því! Pöntuðum okkur thin-crust pizzu og held ég bara að við höfum loksins fundið góðan stað, Vezzo pizza á 31st og Lex ...
cheers
mánudagur, febrúar 18, 2008
Það var feðginahelgi hjá okkur feðginunum þar sem Jóa skellti sér til Íslands á fimmtudagskvöldið til að mæta í brúðkaup. Við byrjuðum því tvö á því að fara í Virgin megastore á föstudaginn eftir skóla og vinnu og keyptum okkur bíómyndir og geisladiska til að dunda okkur við yfir helgina ... horfðum meðal annars á allar Indiana Jones myndirnar sem Ingu Huld fannst bara mjög skemmtilegar þar sem hún er nýbúin að vera að læra um sögu Egyptalands og ýmis konar fornleifauppgröft í tengslum við það. Á laugardaginn fórum við í bíó á Hannah Montana og fengum okkur svo kvöldmat á Chocolate by the bald man þar sem desertinn var að sjálfsögðu aðalatriðið, súkkulaðifondue með ávöxtum og marshmallows ... ekki amalegt! Í dag var svo frí í vinnunni og skólanum hjá Ingu vegna Presidents Day sem opinberlega heitir líka Washington´s Birthday og er haldinn árlega þriðja mánudag í febrúar. Ákváðum því að gera eitthvað menningarlegt og skelltum okkur á safn ... hmmm sem sagt Madame Tussaud og sáum ýmislegt skemmtilegt þar.
sunnudagur, febrúar 10, 2008
Stelpurnar komu og hittu mig eftir vinnu á föstudeginum og fórum við á lokaútsöluhnykkinn hjá Saks ... var hægt að finna eitt og annað þar á góðu og hagstæðu útsöluverði ásamt sumu sem ekki var á útsölu. Við röltum svo niður á Kóreugötuna sem er á 32 stræti á milli 5th og 6th avenu ... völdum einn stað þar, Shilla, sem var með um 20 mínútna bið eftir borði og fengum okkur kóreanskt BBQ sem fer þannig fram að komið er með steikina eða fiskinn sem þú pantar og þjónninn grillar það á grilli sem er innbyggt í mitt borðið. Fengum okkur júmbó rækjur og rib eye strips, var bara merkilega gott og drukkum kóreanskan plómulíkjör með ...
Annars róleg og góð helgi - ég fór með Ingu Huld í afmæli til bekkjarsystur sinnar í dag ... á meðan fór ég í göngutúr og kíkti í Bang & Olufsen og Apple búðina ... stórhættulegt að sleppa manni einum svona lausum, ég sá nú ýmislegt sem bráðvantaði á heimilið einsog til dæmis nýju fartölvuna frá Apple sem er alveg ótrúlega lítil, nett og flott ...
miðvikudagur, febrúar 06, 2008
Ekkert saltkjöt var hér á sprengidaginn en við gátum þó endað á bollaköku í desert en bollurnar voru því miður búnar ... af öllum þessum bollakökum og bollum er maður nú orðin hálfgerð bolla sjálfur og spurning hvort það þurfi ekki að fara að hrista þetta af sér áður en maður verður feitabolla.
Hér er öskudagurinn tekinn hátíðlegur og margir fara í kirkju og fá kross teiknaðan á ennið með svartri ösku ... markar þetta upphaft Lent og byrjar einmitt 40 dögum fyrir páska. Þessi siður er lítið tíðkaður í Evrópu og sumum hér finnst fyndið hversu heiðið fólk er í raun og veru í Evrópu en nota samt tækifærið og nota alla kristnu frídagana til að sleppa við vinnu. Þeir skildu heldur ekkert í því þegar ég sagði þeim að heima á Íslandi klæddust krakkar í grímubúninga og sníktu nammi einsog á Halloween ... sló það allt út!
mánudagur, febrúar 04, 2008
Bolludagurinn sló í gegn ... í gær ákvað Jóa að baka bara bollakökur þar sem það væri eitthvað svo hefðbundið hér í bandaríkjunum (athugið að þetta eru sem sagt cupcakes en ekki bollukökur). Eftir að þær voru komnar úr ofninum þá fannst henni samt ómögulegt að fá ekki alvöru íslenskar bollur heldur bara amerískar bollakökur þannig að hún tók sig til og setti saman bollur á svipstundu og var því nóg af góðu bakkelsi hér í tvo daga ... bæði bollur og bollakökur ...
sunnudagur, febrúar 03, 2008
Það var mikil dagskrá þessa helgina þar sem við byrjuðum föstudagskvöldið á því að hitta góða vini á Nobu 57 og héldum síðan á Hairspray söngleikinn sem var bara nokkuð skemmtilegur með "Norm" í hlutverki mömmunar. Á laugardaginn héldum við svo tvö á ballet í Lincoln Center ... mjög skemmtileg uppsetning sem kallaðist Double Feature og voru tvær sögur, The Blue Necklace og Makin´Whoopee, þar sem dansinn var saminn af sama höfundi og sá um The Producers og Young Frankenstein þannig að þetta var í mjög léttum dúr og með tilvísun í þöglu myndirnar. Á eftir héldum við svo á Gansevoort og var drukkið kampavín frameftir nóttu í góðra vina félagsskap ...
Horfði svo að sjálfsögðu á SuperBowl þar sem New York Giants kepptu við New England Patriots ... Patriots voru ósigraðrir á leiktíðinni og voru taldir mun sigurstranglegri ... leikurinn var bara spennandi og skemmtilegur og endaði með sigri The Giants. Það virtist allt verða vitlaust í borginni í kjölfarið og gátum við heyrt í bílflautum og fólki klappa, hrópa og æpa langt frameftir kvöldi !!