laugardagur, apríl 26, 2008

Stelpa frá Ástralíu byrjaði nýlega í bekknum hennar Ingu Huldar. Ég og Inga Huld hittum hana ásamt systur sinni og föður og fórum í Central Park Zoo þar sem við nutum veðurblíðunnar og höfðum það gott ...

sunnudagur, apríl 20, 2008

Nú er Jóa öllum stundum í skólanum þar sem hún og hennar hópur leggja lokahönd á lokaverkefni sitt sem er risastórt módel, um 15 metra hátt, af þremur háhýsum sem þau hafa hannað af mikilli natni í vetur. Í dag bakaði Inga Huld fullt af rískökum og okkur fannst upplagt að koma færandi hendi í kaffitímann til mömmu ... leigðum okkur því ZipCar og komum að auki við í WholeFoods og keyptum íste og límonaði (mjög amerískt það ...). Ingu Huld fannst þó ekki sniðugt að keyra um með blæjuna niðri þar sem hárið hennar ruglaðist og það var líka dáldið erfitt að sjá á tölvuspilið ... fannst pabbi sinn greinilega ekkert sérstaklega svalur á blæjubílnum ...

cheers

miðvikudagur, apríl 16, 2008

sunnudagur, apríl 13, 2008

Inga Huld gerði alveg útaf við mig um helgina þar sem hún var svo viljug að fara út að hjóla og var ég hlaupandi á eftir ... hún hefur greinilega styrkst mikið frá því í fyrra og heldur því góðum meðalhraða núna. Við fórum bæði laugardag og sunnudag að Brooklyn Bridge. Veðrið er tekið að hlýna og er komið gott vorveður með um 15 stiga hita og heitara þegar sólin brýst fram. Nú líður að lokum vorannarinnar hjá Jóu og var hún því alla helgina í skólanum - ég og Inga Huld tókum svo ZipCar á laugardaginn og sóttum hana við mikinn fögnuð. Nú er ekkert sem stoppar grillmeistarann og voru grillaðar lambalærisneiðar töfraðar fram á sunnudagskvöldinu ...

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Amma og afi fóru í dag og erum við þrjú í kotinu aftur hér eftir en það er næstum mánuður síðan við vorum þrjú hér þar sem við vorum öll saman á Íslandi, svo var Inga Huld eftir á Íslandi og svo voru amma og afi hjá okkur. Það er því orðið langt síðan við höfum eldað okkar heimilismat og haft það rólegt fyrir framan sjónvarpið ... Ýmislegt var brallað með ömmu og afa og gat Inga Huld platað þau í ýmislegt, meðal annars á National History Museum og Guggenheim ásamt því að fara á kaffihús og fá sér smoothies ... við fórum líka á góða veitingastaði og var Smith & Wollensky góður sem endranær og klikkar ekki Prime Rib steikin þar og er óbreytt í gæðum frá því í fyrra og frá árinu 1978 þegar sumir komu þangað og er enn í fersku minni ...

laugardagur, apríl 05, 2008

Inga Huld kom til okkar í gær með ömmu og afa sem ætla að dvelja hjá okkur í viku og voru miklir fagnaðarfundir!! Við byrjuðum á rólegu nótunum og tókum bílaleigubíl og keyrðum upp til Greenwich til að sýna liðinu nýja vinnustaðinn og við röltum síðan um huggulegt þorpið í meiriháttar blíðu. Þegar komið var tilbaka til Manhattan var ég kominn með vorlegan grillfíling og leist liðinu vel á að kaupa steik á grillið. Það heppnaðist bara mjög vel og var meira að segja splæst í að opna Beringer Private Reserve frá 1997 og BV frá 1995 og var sammælst um að þau væru mjög góð.

miðvikudagur, apríl 02, 2008

Þegar við vorum að bíða eftir jökkunum okkar á Dos Caminos eftir alltaf jafngóðan mexíkóskan kvöldmat sagði ég við Jóu, "sjáðu þessu huggulegu skælbrosandi konu þarna að panta borð ... hún er alveg einsog Julia Roberts" ... "já, kannski" sagði Jóa og hélt áfram "sjáðu manninn sem stendur þarna við hliðina á henni ... hann er alveg einsog hvað hann þarna heitir maðurinn hennar Juliu Roberts" ... "guð minn góður, þetta er Julia Roberts og maðurinn hennar" sögðum við svo bæði :) ... dáldið spaugilegt. Fengum svo staðfestingu á því þar sem yfirþjónninn kom fljótlega hlaupandi að og spurði þann sem vann í afgreiðslunni "er þetta sú sem ég held að þetta sé" ... og var fljótlega svarað "já, þetta er hún!!" og þar með hljóp yfirþjónninn aftur inní sal til að redda borði. Jóa mundi svo að þau væru að taka upp mynd núna hér í NY þannig að þetta stemmdi allt saman. Þau voru bara líbó á málinu og voru hress með málin en hafa mjög líklega fengið borð fljótlega ... en mikið ótrúlega getur konan brosað :)

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Jæja, þá er maður orðinn starfsmaður RBS GCM ... Royal Bank of Scotland, Greenwich Capital Markets ... og er ABN AMRO að líða undir lok. Þeir þurfa endilega að vera staddir í næsta fylki, Connecticut, nánar tiltekið í Greenwich sem er huggulegur bær í um 45 mínútna lestarferð frá Manhattan. Ferðatíminn í vinnuna er því orðinn rúmur klukkutími í stað hálftíma göngutúrs eða korter í subway ...