laugardagur, maí 31, 2008

Á fimmtudaginn kom hér fríður hópur ungra kvenna og mun dvelja í nokkra daga í vellystingum í New York. Fimm vinkonur Jóu lögðu svæðið undir sig og gerðu sitt besta til að smyrja hjól bandaríska efnahagslífsins og koma hringrás peningamálanna í sitt fyrra horf ... að sjálfsögðu var gætt að tollamörkum og innflutningshömlum ... Ég hef nú lítið orðið var við hersinguna þar sem ég er farinn í vinnuna áður en þær hefja sig á fætur og kominn í bólið þegar þær koma aftur heim. Annars sýnist mér að allar sex hafi þær hafa náð að skemmta sér vel á þessum stutta tíma ... búið er að borða á Rosa Mexicano, Pure Food and Wine og á Morimoto og hápunkti ferðarinnar var svo náð á frumsýningu Sex and the City hér í borg þar sem allar voru á háum hælum. Nú líður þó að endalokum og haldið er heim á morgun og þurfti að passa að panta leigubíl með stærra skotti en þeim sem sótti þær á flugvöllinn þar sem það hafði bæst í töskufjöldann.
Það var langur dagur hjá Ingu Huld í dag. Við mættum í sal á 138th street lengst uppi í Harlem klukkan 11 um morguninn þar sem Inga Huld þurfti svo að vera allan daginn við æfingar fyrir tap dance sýningu. Ég og Jóa mættum síðan á svæðið klukkan fjögur þegar sýningin sjálf byrjaði og stóð hún yfir í ca 2 klukkutíma. Sýningin samanstóð af ýmiskonar dansatriðum hjá krökkum í ýmsum aldurshópum t.d. ballet, jazz, hip-hop og svo tap ... held ég hafi í raunar aldrei séð tap dansaðan á sviði áður ... mjög hresst og skemmtilegt!


mánudagur, maí 26, 2008

Við ákváðum að nota tækifærið þessa löngu helgi og fara í borgarferð til Boston. Tókum lestina eldsnemma á laugardagsmorgni og brunuðum með Acela Express á rúmum þremur tímum á áfangastað. Gistum á Taj Boston sem er borið fram Tash Boston og olli nokkrum vandræðum í upphafi ferðar til að koma leigubílstjóra í skilning um það hvert í ósköpunum við vildum fara ... allavega var bara mjög gaman í Boston sem virðist vera róleg og afslöppuð borg með ýmislegt að sjá og skoða. Ítalíuhverfið með fjölda ítalskra staða, kaffihúsa og bakaría var einna vinsælast ... einn leigubílstjórinn sagði að í hverfinu væru 107 ítalskir staðir og einn tour guide sagði að þar væru rúmir 90 ítalskir staðir ... líklega rétt um 100 ítalskir staðir þá í þessu hverfi. Fundum að sjálfsögðu Cheers en tveir þeirra eru til ... annar er eftirlíking af staðnum í þáttunum og hinn er er fyrirmyndin og var notað til að taka upp utanvið en er síðan öðruvísi að innan. Notuðum annars bara tækifærið til að slappa af og vera í rólegheitunum og röltum mikið um hverfin og nutum lífsins vel og vandlega. Við komum svo heim seinnipartinn á mánudeginum og var bara þægilegt að skjótast svona með lestinni og þurfa ekki að ganga í gegnum flugvallarstressið.

cheers

sunnudagur, maí 18, 2008

Fyrir tveimur vikum síðan fórum við á sýningu Ólafs Elíassonar í MoMA og skoðuðum ýmsar skemmtilegar innsetningar hans.


Í dag skelltum við okkur á hinn hluta sýningar hans sem er í PS1 í Queens, rétt hinum megin við eystri ána.

Þar mátti sjá nokkur verk í viðbót ásamt töluvert af tilraunamódelum og myndaröðum af náttúru Íslands ... mjög skemmtilegt og áhugavert.


Hittum aftur Magga & Bryndísi og núna á Chocolate by the Bald Man þar sem við gátum gætt okkur á ýmislegu lostæti og belgt okkur út! Enduðum daginn á bíóferð að sjá nýju Narnia myndina sem olli ekki vonbrigðum ...

laugardagur, maí 17, 2008

Það var farið eldsnemma á fætur í morgun og drifum við okkur út á Farmers market á Union Square þar sem við gátum verslað ferskt grænmeti og ávexti ... kláruðum svo innkaupin fyrir helgina í Whole Foods þar sem nú er Frú Jóhanna tekin til hendinni í eldhúsinu og farin að kokka ýmislegt góðgæti þar sem nú gefst tími til eftir að það léttist aðeins vinnuálagið í skólanum. Inga Huld þurfti að fara á æfingu fyrir tap dance sýningu sem er í lok mánaðarins og fórum við með hana til vinkonu hennar þar sem þær ætluðu að verða samferða. Á meðan hittum við góða vini í heimsókn frá Íslandi, Magga & Bryndísi, og fórum í hádegismat á Maze sem Gordon Ramsey er með á The London ... eftir matinn gátu konurnar síðan verslað skó - að sjálfsögðu - í lítilli huggulegri búð sem er í sömu götu. Við sóttum síðan Ingu Huld sem var búin að dansa allan eftirmiðdaginn og var því orðin frekar þreytt og lúin ...

sunnudagur, maí 11, 2008

Inga Huld dröslaði okkur út eldsnemma í morgun á nýja veitingastaðinn á horni 24th og 3rd, Bar Milano sem er partur af nýju hóteli. Þetta var sem sagt í tilefni mæðradagsins að móðurinni var boðið uppá morgunmat ... og hafði Inga Huld haft augastað á þessum stað í dáldinn tíma til að fara annaðhvort með mömmu sína í kvöldmat eða morgunmat á mæðradaginn.

Það er dáldið síðan að við ákváðum að það væri orðið of þröngt um okkur í íbúðinni ... leigðum okkur því ZipCar og fylltum bílinn af drasli sem við notum aldrei og skelltum því í geymslu útí bæ. Þarna leyndist ýmislegt sem mátti náttúrulega alls ekki henda og því vissara að geyma það aðeins lengur þrátt fyrir að vera aldrei notað. Ætluðum svo að nota tækifærið og stoppa í Magnolia á leiðinni heim til að kaupa bollakökur með kaffinu en nenntum ómögulega að standa í 40 mínútna röðinni sem var einsog iðulega um helgar. Höfðum vonast til að röðin væri styttri þar sem klukkan var einungis um tvöleytið. Skiluðum því bílnum og löbbuðum á kaffihús á Union Square þar sem hægt var að fá góða köku. Við versluðum síðan í Garden of Eden en Inga Huld var búin að plana matinn í tilefni mæðradagsins ... í forrétt var reyktur lax á litlu ristuðu brauði með rjómaosti ... síðan voru grillaðar hamborgarar og í desert var sumarávaxtadraumur. Ég hjálpaði aðeins til en Inga Huld sá um þetta mest allt saman sjálf og gekk meira að segja frá líka.

cheers

mánudagur, maí 05, 2008

Í kvöld var kynning 'Proto-Urban Tower Space' lokaverkefninu í masternáminu. Kynningin gekk vel og ýmar áhugverðar spurningar og skoðanir voru ræddar meðal nemenda og prófessora.



Verkefnið var samvinna 11 nemenda sem byggðu 8 metra hátt turnrými með þremur hangandi lóðréttum turnum og einum hallandi turn sem skar í gegnum hina þrjá.



Áherslan var lögð á rýmið milli turnanna og upplifunina af turnrýminu frekar en ytra skinn þeirra. Stærsta þrekraunin reyndist oftar en ekki vera sú að komast að sameiginlegri niðurstöðu en einnig voru tíðar umræður um hvort turnarnir myndu standa.



Samvinnan og verkefnið sem stúdíóið fékkst við var virkilega gefandi og hiklaust besta stúdóið sem ég tók þátt í í Pratt.

mkv
Jóa