Road Trip ...
Það eru góðir gestir í heimsókn og var búið að plana bíltúr með góðum fyrirvara þar sem rúnta átti aðeins um sveitir Bandaríkjanna og kíkja á eitt og annað. Leigður var Chevy til að flytja liðið og dugði ekkert annað en hálfgerð langferðabifreið.
Byrjað var í Six Flags sem er skemmtitækjagarður í New Jersey og býður uppá vatnsleikjagarð, tækja- og rússibanagarð og "drive-thru safari" sem ku vera eitt það stærsta í Bandaríkjunum. Ég og Palli gátum að sjálfsögðu farið í hraðasta og hæsta rússibana í heiminum sem nefnist Kingda-Ka og var skemmtilegt 23 sekúndna kikk ... Hérna var haldið uppá afmælið hennar Ingu Huldar þar sem skvísan varð 8 ára gömul og var boðið uppá köku eldsnemma um morguninn og var síðan skemmt sér í garðinum allan daginn í blíðunni!
Frá Six Flags héldum við til Washington á sjálfum þjóðhátíðardeginum fjórða júlí og vorum komin um kvöldið og náðum í flugeldasýninguna ... daginn eftir var síðan Washington könnuð nema ég lenti í að fara með bílinn í viðgerð þar sem reynt hafði verið að brjótast inní hann og var lásinn skemmdur en ekki höfðu ómennin þó komist inní bílinn sem betur fer.
Eftir að hafa kannað Washington í einn dag var haldið í bæ sem nefnist Hershey (borið fram hörsjí) þar sem Hershey sjálfur þróaði Hershey súkkulaðið og byggði Hershey bæ í kringum Hershey verksmiðjuna sína. Ekki er lengur framleitt Hershey súkkulaði þarna í Hershey heldur er búið að breyta versksmiðjunni í Hershey safn og annað skemmtilegt. Við fræddumst mikið um sögu súkkulaðsins og hvernig það er búið til ásamt því að geta keypt og borðað dáldið mikið af því ...
Eftir tvær nætur í Hershey var haldið til New Hope sem er lítill og huggulegur bær í Bucks County í Pennsylvaniu. Gistum þar á rólegu Bed & Breakfast og var lífinu tekið með miklum rólegheitum áður en haldið var aftur heim til New York eftir 8 daga ferðalag ...