miðvikudagur, janúar 21, 2009

miðvikudagur, janúar 14, 2009

Það er kalt þessa dagana hjá okkur og fer kólnandi. Á föstudaginn á að vera 10 gráðu frost þegar hlýjast er yfir daginn!!



laugardagur, janúar 10, 2009

Á skíðum skemmti ég mér tra la lalla la tra la lalla la ... hoppsa bomm

föstudagur, janúar 09, 2009

Síðasta skíðadeginum lokið! Ég fékk að fá smá útrás í morgun og fór upp á toppinn og skíðaði þar niður í nýföllnu púðrinu. Verst að lyftan fer ekki alveg á toppinn og þarf að ganga síðustu metrana með skíðin sem tekur á í loftleysinu en var að lokum vel þess virði en ég kýs nú frekar lyftuna.


fimmtudagur, janúar 08, 2009

Það hefur gengið á með hinum ýmsu veðrabrigðum hjá okkur. Í gær var snjóstormur og tókum við okkur því frí frá skíðum og skoðuðum gamla gullnámu hér í nágrenninu. Það er víst gull enn til í námunni fyrir um $50m en það kostar meira að vinna það úr henni. Við fundum ekki mola á leiðinni en ferðin var gulls ígildi!


Það er líka búið að vera kalt með um 20 gráðu frosti og var allur hlífðarfatnaður notaður ásamt því að stoppa reglulega til að hlýja sér á heitu kakói og þvíumslíku. Snjóinn vantar sosum ekki og einnig hefur brostið á með sólskini og blíðu!

mánudagur, janúar 05, 2009

Við erum enn á skíðum og hefur bætt aðeins í snjóinn sem er vel. Á móti hefur þó kólnað ansi mikið og hefur verið um 20 gráðu frost og þarf því að stoppa reglulega til að hlýja sér og forðast frostbit. Það er þess vegna ekki gott að sitja í 2,5km í lyftu í 9 mínútur upp fjallið og frjósa í hel áður en hægt er að skíða sér til hita. Lyfturnar, og þar af leiðandi brautirnar líka, eru ansi langar og virðist svæðið að öllu leyti sett upp til að hafa langar brautir. Fækkað hefur töluvert af fólki núna eftir að jólafríið er búið og eru því nánst engar raðir í lyfturnar.


fimmtudagur, janúar 01, 2009

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Við flugum 5 klukkutíma í vesturátt og komum til Breckenridge í Colorado þann 30. desember. Breckenridge er gamall námubær í 2.926m hæð sem er nú orðinn skíðastaður og býður uppá 155 skíðabrautir sem eru þjónustaðar með 30 lyftum. Hér er lyfta sem nær hæstu hæð í Norður-Ameríku um 3.963m sem er töluvert hærra en trjálína og er umhverfið þar dáldið líkt Bláfjöllum ... Veðrið er búið að vera gott hér með glampandi sól og um 5 stiga frosti og hefur gengið vel að skíða til að byrja með.