þriðjudagur, maí 20, 2003

4 próf búin - 1 eftir

Jæja, þá fer að styttast í endann á prófunum, var í prófi í gær og einu í dag - síðasta prófið á föstudaginn og þá verður maður klár í slaginn í eurovisionpartíið !! Núna sit ég bara í rólegheitunum einn heima þar sem Inga Huld er á leikskólanum og frænkurnar í London - það er smápása og afslöppun hjá mér í dag. Nóg er búið að vera að gera hjá skvísunum sem fóru til London á sunnudaginn á markaði og annað skemmtilegt og síðan fóru þær í bæinn í gær að versla ...það kemur að því að Eva þurfi að kaupa auka ferðatösku einsog tengdó þurfti að gera. Ég og Inga Huld ætlum svo á Kentucky í kvöld þar sem frænkurnar verða í London framá kvöld - eru að fara í leikhús að sjá Matthew Perry og Minnie Driver í Sexual Perversity in Chicago. Einnig leikur þar Hank Azaria sem talar nokkrar raddir í Simpson þættina - sem sagt einvalalið sem leikur þarna. Vonast þær til að þetta verði hin besta skemmtun og vonast ég til að þetta verði hin mesta afslöppun fyrir mig ... að vera laus við þær !! Veðrið hér er nú ekki búið að vera að leika við hvern sinn fingur - það er reyndar mjög hlýtt en síðan mjög skyndilega öðruhvoru brestur á með þessum líka rosalegu skúrum ásamt þrumum og eldingum einstaka sinnum. Síðan þornar á milli og mikil blíða - en þetta getur valdið leiðindum einsog í gær þar sem Jóa var að fara með Ingu Huld á leikskólann þá var það mikil blíða að Inga þurfti að hafa sólgleraugun með sér. Síðan leggja þær af stað og fyrr en varir verður bara einsog hellt úr fötu þannig að þær urðu ansi blautar á leiðinni í leikskólann. Stoppuðu reyndar undir tré á leiðinni til að skýla sér fyrir mestu dembunni. Mjög fyndið að sjá bretana stundum þegar gengur á með þessum skúrum - það er einsog þeir megi ekki blotna og spenna upp regnhlífina á meðan þeir skjótast úr bílunum og inní hús ...þeim virðist frekar illa við bleytuna.

Niðurstöðurnar úr könnuninni liggja fyrir og mér til mikillar ánægju þá kusu 100% lesenda þessarar síðu D-listann í kosningunum heima. Mjög ánægður með það ...það er þá ljóst að ótti minn var ástæðulaus varðandi allt þetta vinstri sinnaða fólk. Greinilega bara verið að reyna að fá mig til að rífast eitthvað !! En ég kem náttúrulega úr svo vernduðu umhverfi heima innan um alla þessa frjálshyggju hagfræðinga að ég átta mig ekki á því hversu nauðsynlegt það er upplýsa fólk betur um kosti þess að ríkið skipti sér ekki of mikið af hlutunum. En þá er bara að taka þátt í nýju könnuninni (þ.e.a.s. ef mér tekst að koma henni inn).

Have a good one.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli