föstudagur, maí 30, 2003

GoKart

Þvílík og önnur eins veðurblíða – þið verðið bara að afsaka hvað ég tala mikið um veðrið, það bara er ekki hægt annað. Húsið er einsog gufubað samt hefur ekki verið kveikt á hitanum hér lengi. Byrjaði daginn á því að taka til ...græjaði tvö herbergi þannig að þau eru alveg klár ... þá eru bara fjögur herbergi eftir !!! (að meðtöldu baðinu). Eftir bað var síðan haldið á leið uppí skóla (þar sem ég stiknaði á leiðinni í sólinni – er farinn að fá brúna litinn aftur eftir páskana) þar sem mæting var rúmlega eitt fyrir gokart !!! Þrjátíuogsjö manns mættir fyrir gokart keppni ISMA – búið var að skipta í níu lið og lenti ég með stelpu sem mætti á háum hælum, tveggja metra háum strák og síðan tveggja metra víðum strák ...þokkalegt lið, alveg ljóst frá byrjun að við myndum ekki lenda ofarlega ; ( ...en skítt með það – ég skemmti mér konunglega þegar ég átti að gera, fékk að taka í tvisvar sinnum þrjátíu mínútur – var alveg búinn eftir þetta og mikið sveittur og þreyttur. Líka ansi heitt þarna og þungt loft þannig að þetta var ansi erfitt. Mikið skipulag þurfti fyrir þetta, við þurftum að taka þrjú pit stops þar sem við þurftum í einu stoppinu að færa einhver dekk á milli prika (átti að vera dekkjaskipting) og þurftum í tveimur stoppum að skrúfa stýrið af bíl sem var fyrir utan pittið. Síðan var einu sinni bensínáfylling og síðan var skipt um bílstjóra öðru hvoru. Brautarverðir flögguðu síðan bláum flöggum á þá sem keyrðu of glannalega (yfir getu), gulum flöggum þegar einhver snérist í brautinni, og svörtum flöggum á þá sem keyrðu ítrekað á aðra eða stunduðu aðra óheiðarlega keyrsluhætti !! Menn þurftu að koma inn og taka út refsingu ef ekki var farið eftir tilmælum brautarmanna. Semsagt meiriháttar skemmtun og mæli ég með þessu sem hópskemmtun !!

fimmtudagur, maí 29, 2003

Brottfarardagur stelpnanna.

Í dag var hitabylgja !!! hitinn var 26 gráður í skugga og þvílík og önnur eins blíða ...heldur betur kveðjuveður sem stelpurnar fengu. Í morgun byrjaði ég á því að ná í bílaleigubílinn, Rover 75 ...það þarf sko engar smádruslur til að keyra alla leiðina á Stanstead. Ástæða þess að flogið var með Iceland Express var sú að hægt er að kaupa miða aðra leiðina þar ...sem ekki er hægt hjá Icelandair nema að kaupa hana á ca. hundraðþúsundkall – skrítið að þurfa alltaf að fljúga báðar leiðir hjá Icelandair. Allavega byrjuðum við á því að kíkja á geymsluhúsnæðið okkar í sumar og var þetta risastór vöruskemma sem búið er að afmarka niður í minni geymslur og fengum við fimmtán fermetra geymslu sem við getum haft aðgang að allan sólarhringinn ...ferlega sniðugt dæmi. Síðan var farið í hádegismat í bænum með Sif og Geir, borðað úti og allir að svitna og stikna í hitanum, alltaf mest fegnir þegar ský dró aðeins fyrir sólu. Við keyrðum síðan í Toys´r us til að kaupa dót í flugvélina fyrir Ingu Huld, fékk hún dúkkulísur (einhverskonar) og var ánægð með það – valdi þær allavega framyfir Playmo dót sem hún er samt mjög hrifin af. Síðan var lagt í hann á Stanstead, átti flugið að fara í loftið kl. 19:50 og þurftum við að vera mætt á völlinn ca. 17:50, lögðum þess vegna af stað frá Reading rétt rúmlega 15:00 til að hafa góðan tíma. Einsgott að gefa sér góðan tíma fyrir hraðbrautina vegna þess að við lentum í dágóðri umferðarteppu vegna umferðarslyss að okkur skildist en loksins þegar leystist úr flækjunni þá keyrðum við ekki framhjá neinu slysi. Yfirleitt er þetta þannig þegar flækjur eru að bara alltíeinu leysist þetta án nokkurrar sýnilegrar ástæðu fyrir flækju. Inga lagði sig á leiðinni, sem betur fer, vegna þess að hún var ekki mjög hrifin af þessum hita, var orðið ansi heitt og var komin á nærbolinn !!! Svaka skutla í gallabuxum, nærbol og með bleik sólgleraugu. Við náðum tímanlega á flugvöllinn og eftir að hafa fundið bílastæðið (sem tók smátíma vegna þess að það var eiginlega of augljóst hvar það var) drifum við okkur í tékkinnið. Auðvelt var að rata þarna og er þetta mjög rúmgott og vel merkt þarna – í rauninni mjög einfaldur og þægilegur flugvöllur. Töskurnar vigtuðu 63 kíló en konan sá sér auman á okkur og rukkaði ekki fyrir yfirvigt sem betur fer, hefur séð að hér voru á ferð bláfátækir námsmenn. Fljótlega var svo komið að kveðjustund ...snökt, snökt ... Inga Huld var mjög sátt við þetta allt saman, kveðja pabba á flugvellinum í Englandi, amma Inga og afi Helgi myndu sækja hana á flugvöllinn á Íslandi og síðan kæmi pabbi heim í afmælið !! Var bara mjög ánægð og fannst þetta allt saman bara mjög sniðugt og kyssti og knúsaði pabba sinn bless. Ég brunaði síðan heim á Rovernum á hundraðinu ... mjög góður bíll, ekkert veghljóð, vélarhljóð eða neitt, sama á hvaða hraða keyrt er – steinliggur og frábær bíll í alla staði nema kannski dáldið þröngt fyrir fæturna frammí. Bílnum síðan skilað eftir að hafa rúntað aðeins um nágrenni háskólans vegna þess að ég tók aðeins of mikið bensín en ég átti að skila honum með. Fékk bílinn með hálfum tanki og á að skila honum eins ...dáldið erfitt að stilla þetta þegar maður veit ekki hvað tankurinn er stór. Var því að reyna að eyða dáldið af bensíninu mínu sem ég var búinn að borga fyrir : ) ...eins vitlaust einsog það nú hljómar !!!

miðvikudagur, maí 28, 2003

Nú er nóg að gera - allt dótið að verða komið ofan í kassa og fötin ofan í tösku. Við erum síðan búin að leigja geymslu þar sem við geymum dótið okkar í sumar og mun ég fara með það þangað á mánudaginn í sendiferðabíl sem ég er einnig búinn að leigja. Einnig leigðum við bíl fyrir morgundaginn til að keyra á Stanstead - eru stelpurnar að fara þaðan annaðkvöld til Íslands. Það er semsagt mikið skipulag í gangi og vonandi að allt gangi upp. Ég fæ að hafa einn disk, gaffal og glas um helgina og er síðan tilbúinn kassi til að setja það ofan í áður en ég flyt á stúdentagarðana. Þar fæ ég eitt herbergi með baði og er síðan sameiginlegt eldhús á ganginum með nokkrum íbúðum ...mikið fjör.

Síðasti dagurinn hennar Ingu Huldar var á leikskólanum í gær og var hún allan daginn á meðan við vorum að pakka. Hún fór með kökur með sér sem hún gaf krökkunum svo með drekkutímanum. Hún kvaddi svo alla voða vel ...var búin að tala um það lengi að hún þyrfti að kveðja alla á leikskólanum og að þetta væri síðasti dagurinn þannig að hún var frekar sátt við þetta. Var reyndar búin að segja að það væri ekki gaman að segja bless og þá sérstaklega ekki við Jack sem var sérstakur vinur hennar sem gaf henni stundum blóm og svoleiðis.

mánudagur, maí 26, 2003

Veðrið búið að vera gott í dag og í gær og er spáð góðu framundan ...enda er líka Eva að fara frá okkur núna eftir langa dvöl og hefur hún verið frekar óheppin með veðrið. Eurovisionpartíið á laugardaginn var þrusugott - byrjuðum við á því að ná í Elvu og Óla á lestarstöðina og labba með þau túr um Reading sem endaði á Bar 38 og fengu stelpurnar þennan líka ofboðslega góða "Toblerone" cocktail. Innihald hans er Beilís, súkkulaðilíkjör, hunang og rjómi !!! sem sagt algjör sjeik. Heima slóust svo í hópinn Sif og Geir (lesist hratt sem Sigurgeir) og var grillað og drukkinn ávaxtabjór í fordrykk - um leið og þessum líka fína mat lauk byrjaði fjörið og vorum við rétt passleg að ná í fyrsta lagið sem var að sjálfsögðu hún Birgitta okkar. Keppnin var geysispennandi : ) ...allavega var þetta hin ágætasta skemmtun og skemmtum við okkur konunglega fram á nótt. Inga Huld dansaði og söng með söngvakeppninni og fannst þetta ekki leiðinlegt. Eurovisionskreytingarnar vöktu líka mikla lukku þar sem búið var að skrifa uppá vegg "áfram Birgitta okkar" og "júróvísion partý 2003". Elva og Óli gistu hjá okkur og byrjaði sunnudagurinn að sjálfsögðu á höfðinglegum morgunmat með hrærðum eggjum, beikoni og pulsum - var þetta fín byrjun fyrir magann svona eftir djúseríið. Eva var orðin leið á að hanga með okkur gamla fólkinu og skellti sér eldsnemma um sunnudagsmorguninn til London að skoða sig um í rólegheitunum, gat þá gert það sem hana langaði til að gera ...farið á McDonalds og svoleiðis !! Við vorum svo samferða Elvu og Óla til Paddington um hádegið þar sem kveðjustund var runnin upp ...við fjölskyldan röltum svo um í blíðunni á Oxford stræti og kíktum í búðir og túristuðumst aðeins. Hittum Evu síðan og fórum með hana um Soho og enduðum á því að fá okkur pizzu áður en við fórum heim.

Í dag mánudag, sem er frídagur hér í Bretlandi þar sem uppstigningardagur er næstkomandi fimmtudag, erum við búin að gera ýmsilegt. Eva byrjaði á því í morgun að fara með Ingu Huld á róló sem var mikið fjör á meðan við byrjuðum aðeins að pakka í kassa - það styttist nefnilega óðum í það að hún Jóa fari heim !!! Við röltum síðan um Reading í dag og fengum okkur að borða og hvítvín með því. Núna er Eva svo farin sæl og ánægð með það að komast heim í afslöppun en við höldum þó að hún hafi bara verið sátt við dvölina svona í heildina litið ...

laugardagur, maí 24, 2003

Próflok

Þá eru prófin búin, var síðasta prófið í gær sem var nú ansi strembið en gekk þetta nú allt saman ágætlega. Í tilefni dagsins var farið með drenginn í bæinn og átti að dressa hann upp með peysu og nýja skóa. Það tók nú heldur betur á vegna þess að þegar Eva sá flotta skó þá fannst Jóu þeir ekki flottir og þegar Jóa sá skó sem henni líkaði við þá fannst Evu þeir ekki nógu góðir og þegar ég fann flotta skóa þá fannst hvorki Jóu né Evu þeir fínir !!! En eftir þriggja tíma verslunarleiðangur þá fundust nú loksins skór sem allir voru sáttir við og voru þetta þá heldur engir aukvisaskór ...heldur betur flottir. Enduðum síðan á barnum til að skola þessum verslunarleiðangri niður áður en við sóttum Ingu Huld á leikskólann. Sif og Geir komu síðan um kvöldið til að passa fyrir okkur á meðan við fórum í bæinn að halda áfram að halda uppá próflokin. Fórum við á meiriháttar indverskan veitingastað (Raj Indian Tandoori), alveg frábær matur og alls ekki dýr - bjór, hvítvín og matur kostaði um 18 pund á mann. Síðan djömmuðum við eitthvað lítillega eftir það en vorum nú samt komin snemma heim vegna þess að við þurfum að vera í stuði í dag og kvöld í Eurovisionpartíinu.

Geir er búinn að fara útá veðmálaskrifstofu og veðja á að Ísland verði í fyrsta sætinu !!! Fékk hann líkurnar 10/1 þannig að hann tífaldar það sem hann lagði undir ef þetta gengur eftir - það virðist sem Ísland sé þá ansi ofarlega á listanum hjá veðmálabönkunum.

Niðurstöður könnunarinnar.
15% bara sigur !!!
23% sextánda
23% er alveg sama
39% fjórða til tíunda sætið

Allavega spáir enginn að við dettum út þannig að þetta á eftir að verða geysispennandi í kvöld ...það á nú örugglega eftir að kenna því um að við erum fyrsta lagið til að spila að allir verða búnir að gleyma laginu þegar kemur að kosningunni.

Jæja, nú þarf að fara að skreyta og svoleiðis fyrir kvöldið og kaupa í matinn. síjúleiter

miðvikudagur, maí 21, 2003

Stelpurnar voru bara ánægðar með leikhúsið í gær fyrir utan það að þær sátu á efstu svölum og stundum skyggðu ljósakrónurnar á útsýnið. Chandler leit ekkert upp á þær og olli hann dáldlum vonbrigðum með það - fréttum reyndar að íbúðin sem hann leigir kostar lítil 4000 (fjögur þúsun) pund á viku !!! ...ágætis íbúð það. Ég og Inga Huld skemmtum okkur konunlega á KFC í gær og fengum okkur Haagen Das í desert, alveg meiriháttar gott ...en ísinn dýr - 4,6 pund fyrir þrjár ískúlur í boxi meðan hægt er að kaupa hálfan líter á 3,6 pund í Safeway. Skvísurnar fóru enn einu sinni að versla í bænum ...hvar endar þetta ?? ...annars bara allt gott að frétta.

Var ég ekki búinn að spá því hér á síðunni að Dabbi myndi hleypa Dóra í aðalstólinn !! Gerðist reyndar fyrr en ég hélt en var samt ljóst að það myndi gerast fyrr en seinna. Ætli Dabbi fari þá í fjármálin og Geir í utanríkisráðherrann ... hvur veit ??

þriðjudagur, maí 20, 2003

4 próf búin - 1 eftir

Jæja, þá fer að styttast í endann á prófunum, var í prófi í gær og einu í dag - síðasta prófið á föstudaginn og þá verður maður klár í slaginn í eurovisionpartíið !! Núna sit ég bara í rólegheitunum einn heima þar sem Inga Huld er á leikskólanum og frænkurnar í London - það er smápása og afslöppun hjá mér í dag. Nóg er búið að vera að gera hjá skvísunum sem fóru til London á sunnudaginn á markaði og annað skemmtilegt og síðan fóru þær í bæinn í gær að versla ...það kemur að því að Eva þurfi að kaupa auka ferðatösku einsog tengdó þurfti að gera. Ég og Inga Huld ætlum svo á Kentucky í kvöld þar sem frænkurnar verða í London framá kvöld - eru að fara í leikhús að sjá Matthew Perry og Minnie Driver í Sexual Perversity in Chicago. Einnig leikur þar Hank Azaria sem talar nokkrar raddir í Simpson þættina - sem sagt einvalalið sem leikur þarna. Vonast þær til að þetta verði hin besta skemmtun og vonast ég til að þetta verði hin mesta afslöppun fyrir mig ... að vera laus við þær !! Veðrið hér er nú ekki búið að vera að leika við hvern sinn fingur - það er reyndar mjög hlýtt en síðan mjög skyndilega öðruhvoru brestur á með þessum líka rosalegu skúrum ásamt þrumum og eldingum einstaka sinnum. Síðan þornar á milli og mikil blíða - en þetta getur valdið leiðindum einsog í gær þar sem Jóa var að fara með Ingu Huld á leikskólann þá var það mikil blíða að Inga þurfti að hafa sólgleraugun með sér. Síðan leggja þær af stað og fyrr en varir verður bara einsog hellt úr fötu þannig að þær urðu ansi blautar á leiðinni í leikskólann. Stoppuðu reyndar undir tré á leiðinni til að skýla sér fyrir mestu dembunni. Mjög fyndið að sjá bretana stundum þegar gengur á með þessum skúrum - það er einsog þeir megi ekki blotna og spenna upp regnhlífina á meðan þeir skjótast úr bílunum og inní hús ...þeim virðist frekar illa við bleytuna.

Niðurstöðurnar úr könnuninni liggja fyrir og mér til mikillar ánægju þá kusu 100% lesenda þessarar síðu D-listann í kosningunum heima. Mjög ánægður með það ...það er þá ljóst að ótti minn var ástæðulaus varðandi allt þetta vinstri sinnaða fólk. Greinilega bara verið að reyna að fá mig til að rífast eitthvað !! En ég kem náttúrulega úr svo vernduðu umhverfi heima innan um alla þessa frjálshyggju hagfræðinga að ég átta mig ekki á því hversu nauðsynlegt það er upplýsa fólk betur um kosti þess að ríkið skipti sér ekki of mikið af hlutunum. En þá er bara að taka þátt í nýju könnuninni (þ.e.a.s. ef mér tekst að koma henni inn).

Have a good one.

laugardagur, maí 17, 2003

2 próf búin - 3 eftir

Líklega erfiðasta prófinu lokið - allavega var þetta erfiðasta námsefnið, prófið gekk samt ágætlega enda var ég líka vel lærður. Var að til klukkan 4 í nótt og vaknaði síðan klukkan 7 fyrir prófið sem byrjaði klukkan níu. Stúlkurnar fóru í bæinn í dag að versla á meðan að ég lærði fyrir prófið sem er á mánudaginn - stefni svo að því að fara snemma í bólið í kvöld til að vera endurnærður á morgun. Grilluðum annars nautasteik í kvöldmatinn og höfðum rauðvínt með - voða fínt. Þurfti að hlaupa með grillið í miðju grilleríi framfyrir hús þar sem smáskyggni er á húsinu vegna þess að rigning kom á okkur. Evu fylgir ekki nógu gott veður - en það er kannski bara af því að hún er vön að vera inní verslunum ...þannig að veðrið skiptir hana ekki miklu máli ?!

En endilega að taka þátt í könnuninni minni (sem verður spennandi að sjá niðurstöðurnar úr) þar sem ég þarf að fara að taka hana niður til að koma fyrir Eurovisionkönnun.

föstudagur, maí 16, 2003

1próf búið - 4 eftir

Ég fór með Ingu Huld snemma í leikskólann í morgun þar sem Jóa og Eva fóru til London. Ætluðu þær að kíkja á söfn og skoða sig um - fóru á eitt safn en gátu varla séð nokkuð fyrir fólki. Síðan var rigning þannig að þær gengu eiginlega bara á milli bara og fengu sér rauðvín !! Prófið í morgun gekk annars ágætlega og nú er verið að undirbúa sig fyrir það næsta í fyrramálið - er það erfiðasta fagið þannig að nóttin verður löng ......

Ingu Huld fannst rosa gaman að vera allan daginn á leikskólanum og var hún líka þreytt þegar heim var komið. Fengum okkur indverskan mat í kvöldmat frá indverska staðnum sem er hér í götunni vegna þess að allir komu svo seint heim.

fimmtudagur, maí 15, 2003

Eva tekin í verslunarleiðangur um Reading í dag og þurfti hún að labba. Hún er farin að átta sig á því að þetta er ekki afslöppunarfrí sem hún er komin í. Það á síðan að horfa á bíómyndir í kvöld sem Stjáni sendi okkur - hann sendi almennilegar myndir núna ...síðast sendi hann ekkert af því sem við vildum, bara einhverjar leiðinlegar myndir.

Var að setja nýjan fídus á síðuna - eða tvo nýja fídusa ...greinilega brjálað að gera hjá manni í próflestrinum !! En allavega þá er ég kominn með teljara til að fylgjast með því hversu margir lesa þetta hjá mér og síðan skoðanakönnun. Þar sem mér finnst vera svo mikið af samfylkingarfólki í kringum mig þá vildi ég athuga hversu mörg prósent lesenda kusu D-listann í kosningunum núna um daginn - þannig að endilega að kjósa. Einnig fann ég þetta í dag á rápinu mínu um netið og er þetta algjör snilld !! Sýnist reyndar að þetta sé eitthvað gamalt vegna þess að það átti að skila inn svörum fyrir 1. maí ... en það er hrikalega upplýsandi að fara í gegnum þetta.

En í ljós hefur komið að heildarskuldir Reykjavíkurborgar hafa aukist um 20% á síðasta ári !!! ...og er það álíka mikið og launahækkun forsætisráðherrans ...skyldu málin vera skyld ?? Skelfing feginn að vera fluttur úr Reykjavík - mun flytja í Kópavoginn þegar heim kemur aftur ef sama lið verður við völd í höfuðborginni ...ekki ætla ég að borga niður þetta fjármálasukk.

miðvikudagur, maí 14, 2003

Nú er gesturinn kominn !! Mikil gleði ríkjandi hér og sérstaklega hjá Ingu Huld sem var ekki lengi að meðtaka Evu eftir að hún fékk hjá henni Playmo dót. Annars er búið að þræla Evu greyinu út hérna, Jóa sótti hana á lestarstöðina og gekk ferðin vel. Þær byrjuðu síðan á því að fara í Safeway til að kaupa sér hvítvín, bjór og ýmislegt góðgæti og þurfti Eva að hjálpa til við að bera þetta heim !! Þegar heim var komið var hún látin hjálpa til við að undirbúa kvöldmatinn og skræla kartöflur. Síðan löbbuðu þær uppí háskóla til að sækja Ingu Huld og náðu í mig í leiðinni. Þessi göngutúr fór endanlega með Evu og er hún alveg búin á því. Þær ætla svo fljótlega að byrja að plana Eurovision partí sem er daginn eftir síðasta prófið mitt. Búumst fastlega við því að keppnin verði sýnd á BBC1 eða BBC2 sem við erum með, þannig hér verður mikið fjör - grillað og svoleiðis !! Endilega að panta sér flugmiða fljótlega ...

En kíkið á þessa frétt - það er alveg magnað hvað fólki dettur í hug :) Sorglegu tíðindi dagsins að Reading tapaði í dag seinni leik sínum í Play-offs og komast því ekki uppí úrvalsdeildina.

þriðjudagur, maí 13, 2003


Þrumur, eldingar og haglél

Þegar ég fór í skólann í morgun á bókasafnið að lesa þá var þessi sama veðurblíða og verið hefur - hafði helst áhyggjur af því hvort ég ætti að fara í peysu eða ekki. Eftir hádegi byrjaði svo að ganga á með skúrum og síðan koma þetta rosalega þrumuveður og eldingar sem stóð yfir í um klukkutíma með mikilli rigningu og hagléli. Risa haglél sem kom þannig að annað eins hefur nú varla sést.

Jóa annars byrjuð að baka fyrir gestinn sem kemur á morgun ...munur að fá svona gesti í heimsókn !! Inga Huld er orðin voða spennt. Hún vill alltaf fara núna í leiksólann í regngallanum þannig að við teljum að fóstrurnar haldi að við séum eitthvað klikkuð að dressa barnið svona upp í stígvél, pollabuxur og regnjakka. Hún er greinilega bara einsog flestir aðrir Íslendingar sem klæða sig eftir veðri.

Hverjir eru annars þessi Kjaradómur ?? Hvernig dettur þeim í hug að geta rökstutt hátt í 20% hækkun á launum á þessum tímum núna þegar búið er verið að halda aftur af launum í almennum kjarasamningum, verðbólgan er lág og atvinnuleysi að aukast. Maður einsog Helgi Hjörvar er að fá yfir 600 þúsund í laun á mánuði - þvílíkt rugl - fyrir að vera varaborgarfulltrúi (hvað gera þeir annars ??) og alþingismaður. Fyndnast samt að þeir sáu ekki ástæðu til að hækka laun forsetans - enda er hann líka bara með um 1,4m á mánuði fyrir að gera ekki neitt.

mánudagur, maí 12, 2003

Inga Huld var með hita í gærkvöldi - vitum ekki alveg ástæðuna fyrir því en hún vaknaði allavega hress í morgun. Ætli hún hafi bara ekki verið svona dauðþreytt að hún hafi verið farin yfirum. Fór á leikskólann í dag og er í fínu lagi - bíður nú bara eftir að Eva komi í heimsókn núna á miðvikudaginn ...þá verður nú fjör !! Það var hópmyndataka í dag hjá Valda í skólanum og þurfti hann að fara í sínu fínasta pússi í ausandi rigningu uppí skóla - á leiðinni heim var síðan orðið þurrt og komið þetta bara ágætasta veður.

Súrt að missa núna af formönnum flokkanna lýsa yfir sigrum sínum í kosningunum - allir eru sigurvegarar og "þjóðin" er væntanlega búin að lýsa vilja sínum og koma skoðunum sínum á framfæri um hitt og þetta. T.d. telja frjálslyndir væntanlega að "þjóðin" vilji umbylta sjávarútvegskerfinu vegna þess að 7,4% þjóðarinnar kusu þá. Einnig hefur þjóðin eflaust líka sýnt þann vilja að sjálfstæðisflokkurinn eigi að hverfa úr ríkisstjórn og mynda skuli tveggja flokka ríkisstjórn samfylkingar og framsóknarflokks þar sem 48,7% þjóðarinnar kusu þessa flokka en svo vildi til að þeir fengu samtals 32 þingmenn. Líka skemmtilegt að lesa sér til um það að Halldór eigi að vera forsætisráðherra þar sem flokkurinn hans var kosinn af helmingi færra fólki heldur en kusu sjálfstæðisflokkinn !! Ýmislegt misgáfulegt en bráðskemmtilegt er hægt að lesa svona á netinu - bendi á þessa vefsíðu. Það var líka bráðfyndið þegar Bogi benti á það í miðju kosningasjónvarpinu að ef framsóknarflokkurinn fengi 189 atkvæðum fleiri í einhverju kjördæminu þá kæmist solla inná þing sem jöfnunarmaður - alveg bráðskemmtilegt kerfi ...muna það bara næst þið sem styðjið sollu að kjósa framsókn !! En jæja, það er ljóst að markaðshagkerfið fær að njóta sín áfram heima og ég get vænt þess að fleiri höft verði leyst af einstaklingnum og skattar verði lægri þegar ég kem heim. En ef þið vitið um einhverja góða atvinnu heima þá veit ég um einn sem er að leita að vinnu ...hringið í 55-solla !!

sunnudagur, maí 11, 2003

Kosningavakan í gær var ágæt - Sif og Geir komu og var grillaður lax og borðuð súkkulaðiostakaka í desert. Síðan var tölvan tengd og stillt á kosningavöku sjónvarpsins - var tengingin bara nokkuð góð og gekk hljóðið mjög vel og myndin gekk einnig ótrúlega vel þó hún væri dáldið óskýr. Samt sáust súluritin vel og prósentutölurnar - var þetta því bara nokkuð fínt. Var síðan rétt í þessu að hlusta á rás 1 þar sem lokaniðurstaðan var kynnt - magnað að núna sést að hvert einasta atkvæði skiptir máli, lokaniðurstaðan valt á nokkrum atkvæðum. Úrslitin reyndar ákveðin vonbrigði en samt ekki svo slæm - ríkisstjórnin heldur með 34 mönnum gegn 29, það er nú ekki svo slæmt að stjórna með 5 manna meirihluta. Spurning hvað gerist með Dóra - hann á möguleika á að sænga með Sollu...eða þ.e.a.s. Össuri af því að Solla komst ekki á þing. Ætli að Davíð stigi ekki niður fyrir honum eftir 2 ár og leyfi honum að taka stjórnartaumana ?? Vonbrigði kosninganna er að Davíð lýsti því yfir að þetta væri líklega síðasta kjörtímabilið hans :( Gaman reyndar að sjá Sollu í sjónvarpinu lýsa því yfir í sjónvarpinu að takmarkinu þeirra hefði verið náð þ.e. að brjóta 30% múrinn - aldrei heyrði ég um það takmark ...hélt að takmarkið hefði verið að fella ríkisstjórnina. Skil því ekki alveg þennan glæsisigur - ríkisstjórnin stendur og Solla er úti.

En hvenær og þá hverjum skyldi verða sparkað af þingi til að Solla fái þar sæti ?? ...svo hún geti nú byrjað að taka þar til hendinni einsog hún gerði síðast þegar hún sat þar.

föstudagur, maí 09, 2003

Jæja, í dag var síðasti tíminn, upplestrarfríið byrjað sem er ein vika. Í tilefni dagsins var farið í klippingu svo að hárið væri nú ekki að trufla útsýnið á námsbækurnar !! Við vorum síðan áðan að prófa útvarpstækið okkar til að athuga hvort við næðum stuttbylgju á því - gátum ekki fundið fréttirnar á rás 1 sem eiga að vera sendar út á stuttbylgju um sexleytið. Við erum heldur ekki með gervihnattadisk þannig að við verðum að horfa á dagskrána í gegnum nettenginguna okkar sem er dáldið slöpp. Horfðum reyndar á fréttirnar áðan og er hljóðið fínt þó myndin gangi dáldið hægt og er lítil. Það verður látið duga fyrir kosningavökuna annaðkvöld og erum núna að horfa á kappræður formanna flokkanna, eða þ.e.a.s. kappræður formanna flokkanna og sollu ...hvar er Össur ??

(óska reyndar eftir upplýsingum um það af hverju sendingar á stuttbylgju draga lengra en sendingar á langbylgju, svar sendist á valdiogjoa@hotmail.com)

Fimmtudagurinn

Kosningaferð til höfuðborgarinnar.

Vorum búin að plana á föstudaginn að fara í sendiráðið að kjósa en komumst þá að því í hádeginu að þegar búið er að kjósa í sendiráðinu þá fær maður atkvæðið sitt í umslagi. En það er víst ekki nóg að kjósa bara, atkvæðið verður að komast á kjörstað fyrir lokun þeirra á laugardaginn - því hefði það ekki náðst á föstudaginum. Var reyndar loksins búinn að komast að því að sendiráð geta virkilega komið að gagni, sá að það er hægt að nota þau ...varð því fyrir miklum vonbrigðum með að það gat ekki græjað atkvæðin heim að kosningu lokinni. Varð því að taka skjótar ákvarðanir og var ákveðið að drífa sig að kjósa - höfðum því samband við Elvu og Óla sem við ætluðum að hitta í London og létum þau vita af þessum breyttu plönum. Á leiðinni í sendiráðið hittum við síðan Sif og Geir og slógust þau í hópinn með okkur og sýndu okkur hvar sendiráðið er staðsett, ekki fer mikið fyrir því og er það statt í einu horninu á danska sendiráðinu. Þegar búið var að kjósa var farið með öll atkvæðin á næstu hraðpóstþjónustu og voru þau send heim í kjörkassann. Eftir þetta var sest niður á Starbucks til að spjalla um heima og geima áður en tekinn var göngutúr um Soho og endað á víetnömskum veitingastað sem var alveg frábær. Enduðum síðan í Covent Garden þar sem við sátum úti til kl. 10 í blíðunni og skemmti Inga Huld sér konunglega yfir þessu öllu saman. Var reyndar orðin ansi þreytt þegar heim var komið og er enn dáldið eftir sig eftir þetta allt saman.

miðvikudagur, maí 07, 2003

Smástund á milli stríða - síðasta skyndiprófið á morgun og síðan byrjar alvöru alvaran á föstudaginn í næstu viku. Garðurinn okkar er orðinn einsog frumskógur þar sem ekki er hægt að slá, ...ástæðan fyrir því að ekki er hægt að slá er sú að ef ykkur rekur minni til þá var sláttuvélinni stolið um daginn !! Ég er mjög feginn að ég skyldi ekki fara að læra til suðlægari landa þar sem erfitt er að halda einbeitingu inni yfir bókunum þegar úti er yfir tuttugu stiga hiti og sólarblíða. Einnig erum við í bölvuðum vandræðum með kyndinguna þar sem hún heldur ekki einhverju ákveðnu hitastigi í íbúðinni heldur fer hún í gang tvisvar á sólarhring á tímum sem við ákveðum og kyndir í ákveðinn tíma. Húsið er síðan ekki alveg vindhelt þannig að þegar úti er smágola þá kólnar hratt inni - á nóttunni er því annaðhvort alltof heitt hjá okkur eða of kalt. Við kyndum á nóttunni vegna þess að hitinn fer þá alveg niður í fimm gráður, að hugsa sér ... Jóhanna komst að því í bænum í dag að sér til mikillar furðu þá eru tvær íslenskar stelpur að selja myndir í göngugötunni okkar, hún fór nú reyndar ekki að spjalla við þær heldur er það komið á dagskrá hjá okkur.

Inga Huld fékk ný stígvél í dag og af því tilefni fór hún í þeim útí garð að leika sér, var það frekar skondið að sjá hana í frumskóginum með sólgleraugu og í stígvélum, rauðum með bleikum hjörtum.

Samkvæmt nýjustu könnunum er ríkisstjórnin naumlega fallin, vona að fólk sé bara að bulla í spyrjendum sínum : ) ...en ótrúlegt að fólk ætli að kjósa flokk sem veit ekki einu sinni hvað hann ætlar að gera. Eða kannski réttara sagt að hann veit einu sinni hvað hann ætlar að gera en breytir því síðan !! ...en hvar er Össur, ég hélt fyrst að þessar Tapað-Fundið auglýsingar varðandi Össur væru eitthvað grín, en allavega þegar maður les fréttirnar heima þá er einsog hann sé ekkert í þessari baráttu en það er kannski bara af því að hann er með typpi sem Solla er svo heppin að vera laus við...

sunnudagur, maí 04, 2003

Í gær fóru Jóa og Inga Huld í bíó á Jungle Book 2, og fannst Ingu það mjög gaman í byrjun en var að missa áhugann í endinn - var dáldið hrædd við Seri Kan sem er tígrisdýrið og leit stundum kringum sig í salnum þegar læti komu í hátalarakerfið. Síðan fékk hún bók sem fjallaði um það sama og myndin og er hægt að ýta á myndir í henni og spilast þá hljóð - fyrst mátti enginnn ýta á tígrisdýrið en svo fór hún að verða sátt við hljóðið í því. Um kvöldið fórum við í matarboð til Sif og Geir, rosafjör og góður matur, Inga Huld lognaðist útaf um kvöldið og var þá sett í ból húsráðenda og svaf hún þar langt fram á nótt þangað til foreldrunum datt í hug að haska sér heim. Þau hönnuðu þessa fínu síðu ef þú hefur áhuga á því að sjá hvaða stefnuskrá ber þín mál fyrir brjósti.

Undanfarið er annars búið að ganga á með rigningarskúrum hér- hefur því ekki verið mikið útivistarveður eftir að amma og afi yfirgáfu okkur en í dag var loksins aftur mjög gott veður og mikil hlýindi - stelpurnar fengu sér því göngutúr í bæinn og fengu sér ís og svoleiðis.