Lítið um að vera á Lullingstone Lane núna. Fór með Jóu í skólann á mánudaginn til að hjálpa henni að prenta út verkefni. Vorum við þar í um 4 klukkutíma að prenta 5 bls þar sem prentarinn tók sinn tíma í verkið. Jóa er síðan að fara á morgun í 5 daga námsferð með skólanum til Portúgal - eiga þau að vafra um Porto og teikna merkileg hús og aðrar byggingar. Verðum við Inga Huld því bara tvö í kotinu.
Inga Huld sá í gær risastóran jólasvein í Tesco - fannst henni ekki amalegt allt jólaskrautið og jólaljósin sem búið var að hengja þar upp, bæði úti og inni. Maður fer bara að komast í jólaskapið ... hvað er eiginlega langt til jóla?
Rafmagninu er eitthvað farið að slá saman í runónum, þegar ljósin eru kveikt og ég bremsa þá kviknar á vinstra stefnuljósinu að aftan - einnig blandast þokuljósin að aftan eitthvað inní málin þegar ég gef stefnuljós !! Greinilega allt í flækju og ekki nóg með það þá kemur í ofanálag enginn blástur á framrúðuna - var það ansi bagalegt hér í kuldakastinu um daginn þegar þurfti að skafa framrúðuna að fá ekki heitan blástur á rúðuna. Þarf að skjótast með bílinn til bílasalans og sjá hvað hann segir - meðfylgjandi var þriggja mánaða ábyrgð þannig að hann ætti að redda þessu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli