Inga Huld er búin að plana framtíðina - semsagt þegar hún er orðin stór þá ætlar hún að giftast honum Louie sínum og búa í Englandi en mamma og pabbi flytja til Íslands. Ætlar hún að vera í fínum kjól og á þetta allt að vera voðalega fínt og smart. Ekki annað hægt en að brosa að þessum pælingum hennar. Þessar pælingar eftir 15 ár myndu síðan reyndar líklega valda frekar áhyggjum heldur en brosi !!
Ég er orðinn ansi æfður í að komast í og úr vinnu - er núna um 35-40 mínútur hvora leið og er bara nokkuð sáttur við það. Sé alltaf sama fólkið á morgnana að taka sömu lestina í sömu vinnuna - þetta fer bara að verða ansi heimilislegt þarna á brautarpallinum og ætli maður fari svo ekki að pæla í því í framtíðinni hvar í ósköpunum einhver sé sem maður sér að vantar ... hvort hann sé nú nokkuð lasinn eða búið að reka hann ...
Við fengum tilkynningu um daginn að leigusamningurinn okkar rynni út í mars og spurt hvort við vildum framlengja - við óskuðum eftir framlengingu í 1 ár sem við vonum að verði samþykkt. Leigusalarnir eru nefnilega að ferðast um heiminn og styttist í að þau komi aftur þar sem þau klára peningana sína. Allavega nennum við ekki að fara að flytja á næstunni - erum alveg komin með nóg af því - en við þurfum þó líklega að flytja eftir rúmt ár en þurfum nú ekki að hafa áhyggjur af því núna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli