Mikið var um það í fréttunum í gær að það hafi þurft að fresta hinum ýmsu áramótaskemmtunum í Bretlandi vegna veðurs - einnig var einhverju frestað í London þó mest allt hafi farið fram samkvæmt dagskrá. Ástæða frestunar var veðurfarið - það var semsagt rok og rigning og kalt ... samkvæmt fréttunum - skiljum það ekki alveg þar sem ágætisveður var allavega hér hjá okkur og þegar við horfðum á BigBen slá áramótin inn í sjónvarpinu þá virtist nú ekki vera mjög slæmt veður. Þetta eru nú meiri aumingjarnir ... hefðu ekki dug í sér að skjóta upp flugeldum á klakanum í frostinu og hálkunni og snjónum !!!
Við héldum tvisvar uppá áramótin, ensk og íslensk - vorum nefnilega með dagskrána í ríkissjónvarpinu í gangi í tölvunni og var mun betra samband eftir að skaupinu lauk, líklega bara mikið álag á því. En semsagt klukkan 12:10 þá sáum við árið 2003 fara á íslenskan hátt og 2004 koma - þurfti þá náttúrulega að skála aftur og var þetta allt saman voðalega skemmtilegt. Inga Huld fór síðan fljótlega í bólið eftir þetta og var fljót að sofna - hún hafði farið út með stjörnuljós og skemmti sér konunlega um kvöldið. Fluttum stjörnuljósin með okkur frá Íslandi þar sem lítið er um svona áramótavarning hér - var reyndar selt hjá kaupmanninum á horninu eitthvað af svona drasli en það var frekar ómerkilegt og rándýrt !!
Fórum í bæinn í dag - löbbuðum Oxford og kíktum í búðir, Inga Huld fékk Nike skó í Nike búðinni ... rosa flotta. Höfðum séð skó í Nike búðinni á Íslandi og kostuðu þeir 4.990 krónur og fannst okkur það fullmikið. Sáum sömu tegund af skóm í búðinni hér og áttu þeir að kosta 20 pund en voru á 16 pund á útsölu og að auki þar sem þetta var gömul lína þá voru þeir ekki til í litnum sem við vildum !!! Okkur fannst verðið 4.990 krónur heldur mikið okur á gamalli skólínu á Íslandi. Við fundum þó aðra skó ... sem var ný lína á nýju verði ... Inga verður nú að vera smart í London !! - kostuðu 23 pund og fannst okkur það ekki slæmt, allavega ekki miðað við íslenskt verðlag. Spurning hvort flutningskostnaðurinn til Íslands sé 2000 krónur ...
Í matseðli gamlárskvölds gleymdist að fordrykkur kvöldsins var Mojito - því miður heppnaðist hann ekki alveg nógu vel hjá okkur (var þó vel drekkanlegur) og þess vegna ætlum við okkur að experimenta með hann í kvöld. Á Jamie dagatalinu hennar Jóu er nefnilega uppskrift af Mojito og þurfum við að prufa hana - semsagt næst þegar við fáum heimsókn þá getum við boðið uppá góðan Mojito !!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli