Það var verslunarleiðangur fyrir Jóu í dag - ýmislegt sem kaupa þurfti fyrir námið, blöð hér, penna þar og teikniborð hinu megin. Sett var upp mikið plan og byrja átti á Atlantis sem er rétt hjá Liverpool Street Station, síðan lá leiðin í eina búð nálægt Tower Gateway og London Graphic Centre hjá Covent Garden og endað var í Paperchase á Tottenham Court Road. Þetta var mikið ferðalag en gekk nú allt vel - alltaf jafn gaman að fara og keyra í miðbænum. Bílastæðið hjá Covent Garden var svona í dýrari kantinum fannst okkur - setti 2 pund í mælinn og mátti þá vera í heilar 25 mínútur !! 40 pence fyrir 5 mínútur - ekki gefins bílastæði það ... okkur minnti að við fengjum nú allavega hálftíma fyrir 1 pund.
Inga Huld er búin að týna farsímahleðslutækinu mínu - var að leika með það í einhverjum innkaupaleik um daginn og var komin með það í poka ásamt öðru dóti - finnst ekki núna og ég sem er að verða batteríslaus ... Einnig er heimilissíminn eitthvað bilaður þannig að ekki vera hissa ef að það er alltaf á tali - finnst líklegt að einhver símastaur hafi fokið niður þar sem það er búið að vera töluvert rok í dag og þetta töluverða rok telst sem stormur hér að ég held.
Núna er í sjónvarpinu þátturinn, I´m a Celebrity - Get me out of here, sem er svona hálfgerður Survivor nema þetta á að vera frægt fólk. Eina þekkta fólkið þarna sem að ég þekki er Johnny Rotten og Jordan - (þyrfti nú að setja upp könnun til að athuga hversu margir þekki þetta fólk). Rotten virðist fíla sig mjög vel þarna í frumskógum Ástralíu og Jordan er að afhjúpa eitthvað af leyndarmálum sínum (afhjúpar nú svona ýmislegt annað einnig í leiðinni) sem að eiga koma fram í bók hennar sem kemur út núna bráðlega. Þar ætlar að hún að birta eitthvað af nöfnum á þekktum mönnum í sviðsljósinu sem að hafa gert eitthvað dónó með henni. Hún virðist vera að gera það mjög gott og virðist hafa gert samning við The Sun þar sem hún hefur verið á forsíðunni undanfarnar 2 vikur.
Annars er alltof mikið að gera í því að fylgjast með fréttum, Blair rétt vann atkvæðagreiðslu um skólagjöld og síðan var hann fríaður af því að hafa átt einhvern þátt í dauða helsta vopnaleitarsérfræðings þeirra (sem framdi sjálfsmorð - Kelly) heldur var öllu klínt á BBC og hafa helstu stjórnendur þar sagt af sér í kjölfarið. Síðan eru kosningar í sumar og vorum við að fá staðfestingu á því að við værum á kjörskrá hér í Lewisham - kosið verður um borgarstjóra í London, The London Assembly og Evrópuþingið ... það þarf að fara að fylgjast með pólitíkinni ...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli