fimmtudagur, apríl 29, 2004

Það er heldur betur langt síðan síðast var skrifað. Það er einnig heldur betur mikið búið að vera um að vera síðan skrifað var síðast. Síðan síðast er ég búinn að fara tvisvar til Frakklands, borða undir Eiffelturninum, baða fjölskylduna í sólinni og 25 stiga hita um síðustu helgi, koma tengdó heim til klakans, taka til eftir tengdó, taka síðan aftur til núna fyrir næstu heimsókn ... svo fátt eitt sé nefnt !!

Ferðin okkar til Frakklands með tengdó heppnaðist mjög vel. Vorum heppin með veður og gaman var að keyra um sveitir Frakklands. Eyddum einum degi í Le Mont Saint Michel sem er stórt klaustur á kletti úti á firði sem að umkringist vatni (fyrir utan malbikaða veginn sem búið er að leggja) þegar sjórinn flæðir að. Þetta er mjög merkilegur staður og merkilegt að einhverjum hafi dottið í hug (eftir smá skilaboð frá Guði, ... sms ??) að byggja risastórt klaustur uppi á þessum risastóra kletti. Síðan voru verslaðir ostar (ísskápurinn lyktar ennþá !!), ciderar, rauðvín og ýmislegt franskt góðgæti. Greinilegt er þó að Englendingum finnst mun ódýrar í Frakklandi þar sem margir hverjir voru með drekkhlaðna bíla á leið aftur í ferjunni til Englands. Síðasta daginn fengum ég og Helgi okkur Fruit de la Mar sem er ýmislegt góðgæti úr sjónum, ostrur, krabbi, humar, kuðungar svo fátt eitt sé nefnt ... stelpunum leist ekki vel á þetta þegar við vorum að slafra þessu í okkur (ostrunum er nú einmitt hreint og beint slafrað í sig).

London var einnig að sjálfsögðu skoðað í bak og fyrir, góður matur borðaður og á stundum slappað af en mest megnis var liðið nú drifið áfram í búðir og á skoðunarstaði.

Tengdó var síðan dauðfegið að komast heim á laugardeginum eftir páska og er búið að læra af reynslunni að fara heim á laugardegi svo hægt sé að hvílast og slappa af fyrir vinnu á mánudegi !!

Í byrjun þessarar viku var ég sendur til Parísar mér til mikillar ánægju en öðrum ekki til svo mikillar ánægju - þar var ráðstefna á hóteli við hliðina á Eiffelturninum. Ég fékk að sjá helstu gersemar Frakka á ferð minni í leigubílum frá flugvelli á hótel, hótel á ráðstefnu og síðan ráðstefna á lestarstöð. Arc de Triomph og hið fræga stóra hringtorg þar við hliðina á - botna nú ekki í því hringtorgi, allar reglur hringtorga fannst mér einhvern veginn að giltu alls ekki þar, engar línur á götunni og ekki hefði ég verið hissa þó að einhverjir á innsta hring hafi verið þar í nokkra daga. Þetta var hin ágætasta skemmtun og ráðstefnan gekk vel. Þar var meðal annars einn bankinn að gefa hlaupahjól og tók ég eitt fyrir Ingu Huld. Það er nú reyndar í stærri kantinum fyrir hana en hún var hæstánægð með það og er búin að dröslast á því hérna framogtilbaka um íbúðina þangað til að foreldrar hennar fengu nóg af því að hafa áhyggjur af því að hún myndi brjóta eitthvað, húsmuni eða sjálfa sig.

En nú þarf að gera klárt fyrir næstu gesti og hlakkar Ingu Huld mikið til að fá Þórunni Evu í heimsókn og er búin að plana ýmislegt brall með henni. Annars er Inga Huld alltaf að giftast honum King Louie í leikskólanum og sönglar brúðarmarsinn hér hægri og vinstri.

cheers

Engin ummæli:

Skrifa ummæli