föstudagur, júní 18, 2004

Klakaheimsókn
Það var nú aldeilis gaman að kíkja í heimsókn á klakann - hittum fullt af fólki og skemmtum okkur konunglega. Eiginlega bara fyrst núna að maður er að ná sér eftir allt fjörið ... Ferðalagið byrjaði á laugardagsmorgni á því að Jóa skilaði lokaverkinu sínu í skólann og svo var brunað á Stansted og Ísland Með Hraði tekið heim. Lending var kl. 14:15, komin á Sunnubraut til að skipta yfir í sparidressið kl. 15:30 og mætt í Fríkirkjuna á slaginu kl. 16:00 - hefði ekki mátt vera tæpara (spurning var þó hvort fólk var farið að bíða eftir okkur eða brúðhjónunum ... Þegar búið var að gefa fólkið saman og allir sögðu "já" og presturinn sagði "Amen" þá söng Eyvi nokkrar ballöður áður en haldið var í veislu nokkru ofar í götunni. Ekki má gleyma því að týpískt íslenskt veður var með 5 gráðu hita og láréttri rigningu. Eftir rauðvín, hvítvín og nokkrar snittur var haldið í grillveislu til Gísla og Halldóru þar sem margt var góðra vina og má til dæmis nefna Vigni og Snorra. Bæjarferðin um kvöldið heppnaðist ævintýralega vel þar sem dottið var inná nýja holu með engri röð fyrir utan og reyndist bara jammið mjög vel - alltaf gaman að koma út um miðja nótt og fá ofbirtu í augin, útlendingum finnst líka alltaf gaman að heyra sagt frá því ásamt því að heyra frá láréttu rigningunni. Á sunnudeginum þurfti síðan borða meira - kökur, brauð og ýmislegt ásamt því að hitta hina ýmsu fjölskyldumeðlimi ... Verst var að Inga Huld virtist hafa náð sér í vírus á laugardagsmorgninum og var því slöpp og með hita á sunnudeginum og mánudeginum. Henni er þó að batna alveg núna - vona bara að henni slái ekki niður núna þar sem það er farið að kólna dáldið hjá okkur !! Þegar ég kom í vinnuna í morgun kl. 7:30 þá sýndi hitamælirinn ekki nema heilar 16 gráður !! ... það var sem sagt hrollur í mann eftir að hafa verið soðinn í a.m.k. 25 gráðu hita á morgnana og kvöldin. Ég slepp alltaf við mesta hitann á daginn þar sem ég sit í loftkælingunni í vinnunni og sötra heitt kaffi til að hlýja mér.

Gobbagobb gleymist
Síðan á leiðinni á flugvöllinn rétt hjá Njarðvíkurafleggjara þegar amma var að keyra okkur þá gerðist sá hrikalegi atburður að Inga Huld uppgötvaði að blessaður gobbagobb gleymdist á Sunnubrautinni ... upphófst mikil sorg og ógleði þar sem alltaf er sofið með blessaðan gobbagobbinn og nú væri bara ekki hægt að sofa þar sem blessaður gobbagobbinn væri bara á Íslandi. Hún var þó sannfærð með miklum erfiðismunum um það að amma myndi nú koma blessuðum gobbagobbinum í póstinn um leið og hún kæmi aftur heim þannig að hún fengi hann aftur áður en hún vissi af. Hún sættist nú á það en átti nú eftir að sakna hans á ákveðnum stundum með tilheyrandi sorg. Hann kom nú loks til okkar í dag þannig að það vandamál er úr sögunni.

Jæja, Gleðilegan Þjóðhátíðardag og stefnum við á það að kíkja á Þjóðhátíðardagsskemmtun Íslendingafélagsins í London á sunnudaginn. Á laugardagskvöldið verðum við með Þjóðhátíðarmat þar sem nældum með okkur íslenskum lambahrygg frá klakanum sem verður skolað niður með Beringer rauðvíni frá USA - mjög viðeigandi þar sem við vorum náttúrulega fyrst til að finna USA ...

Engin ummæli:

Skrifa ummæli