Þá er stelpan bara orðin fjögurra ára ... alveg magnað ... Inga Huld átti sem sagt fjögra ára afmæli í gær og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Hún byrjaði nú reyndar á því á föstudaginn að fara með sveppaköku í leikskólann, (vil taka það fram að sveppir komu ekkert við sögu í innihaldi kökunnar, heldur var það einungis lag kökunnar sem var einsog sveppur í laginu), vakti hún mikla lukku og var sungið og allt. Á laugardagsmorgninum var náttúrulega vaknað snemma eða kl. 7:30 og var ekki hægt að sofna eftir það. Tilbúinn var þriggja hæða pakki í svefnherberginu með blöðrum og ýmsum skreytingum sem var fljótlega tekinn í sundur og skoðaður. Þar leyndist ýmislegt sem búið var að óska sér þ.e. Playmo, bleik regnhlíf og síðan bættust sundföt við sem hún var einnig ánægð með. Síðan réðst hún á pakkana frá ömmum sínum og voru þar stuttermabolur og stuttbuxur á Babyborn sem var búið að vanta lengi og einnig Barbie kall sem var prins, passaði hann því vel í giftingaleikinn hennar og var hann umsvifalaust nefndur King Louie. Var hún voða ánægð með þetta allt saman. Við fórum síðan í bæinn eftir hádegi í leikhús og sáum við Lion King - alveg frábær sýning og má mæla með henni fyrir alla aldurshópa. Við sáum töluvert af fólki sem var ekki með börn með sér og má dást að ýmislegu í sýningunni og hefur mikið verið lagt í sviðsmynd, búninga og tónlistina. Leikritið er sett upp nákvæmlega einsog teiknimyndin þannig Inga Huld þekkti söguþráðinn og persónurnar og sat stjörf yfir sýningunni. Vildi reyndar fara heim þegar ljónakóngurinn dó ... fannst það frekar dapurlegt. Var einnig orðin þreytt þegar seinni hálfleikur var hálfnaður enda var þetta tæpra þriggja tíma sýning. Ég og Jóhanna skemmtum okkur einnig stórvel yfir sýningunni og var þetta bara alveg meiriháttar fjör. Í kvöldmatinn heima voru síðan grillaðar SS pylsur með afmælistertu í desert. Var Inga Huld ánægð og þreytt eftir daginn, en bíður nú spennt eftir að halda afmælisveislu á Íslandi fyrir alla saman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli