fimmtudagur, apríl 21, 2005
Stelpurnar fóru til læknis í dag eftir skóla þar sem Inga Huld er búin að vera að hósta svo mikið og lengi. Fékk hún uppáskrifað pensilín til að losna við bakteríurnar. Jóu leið nú samt hálfilla af því að hún fékk ekki að borga neins staðar ... enginn vildi taka við peningum ... hvorki á læknastofunni, þar sem læknaþjónustan er "ókeypis" og ekki heldur í apótekinu af því að það er "frítt" fyrir börnin ... það er ekki furða að heilsukerfið hér sé í hálfgerðu lamasessi og fjársvelti!! Finnst það sjálfsagt mál að borga fyrir þjónustu sem þessa þar sem þetta er líklega sú þjónusta sem ég vil helst hafa í góðu lagi og gott fólk í ... vil ekki láta einhvern útlenskan amatör krukka í okkur og skrifa uppá eitthvað sull?!
mánudagur, apríl 18, 2005
Það var sól og blíða um helgina ... gátum nú ekki notið þess of mikið þar sem Jóa er á fullu að læra þessa dagana - þetta fer alveg að verða búið !!
Ég og Inga notuðum tækifærið og plöntuðum þremur plöntum sem eru búnar að bíða eftir gróðursetningu í nokkrar vikur, settum upp tvö ljós sem voru eftirstandandi síðan í vetur (eitt á baðið niðri og eitt í vinnuherbergið hennar Jóu) og síðan var grillað á nýja gasgrillinu ... ekki amalegt - marineraðar kjúklingabringur á laugardaginn og epla&furuhnetu fyllt svínalund á sunnudeginum, namminamm. Grillið klikkaði ekki og það er eitthvað svo afslappandi við það að standa úti í garði í ferska loftinu og friðsælli nátturinni með bjór og grilla ...
Skrapp annars til Lissabon um daginn ... þar var sko heldur betur þetta líka fína sumarfrísveður ...
cheers

miðvikudagur, apríl 13, 2005
Við áttuðum okkur á því að við höfum ekki borðað 3 saman kvöldmat hér á Heather Close síðan á Skírdag. Inga Huld varð eftir á Íslandi, síðan kom Ingó með hana á föstudaginn og var hjá okkur framá mánudag og ég var í Lissabon í gær ...
Inga Huld var bara ánægð með Íslandsdvölina en hafði þó orð á því við ömmu sína að hún ætlaði nú ekki aftur að dvelja svona heima á Íslandi án mömmu og pabba! ... allavega ekki svona lengi ... Um helgina með Ingó var nú ýmislegt brallað, fórum og dressuðum drenginn upp, keyptum gasgrill svo það væri hægt að grilla fyrir hann nautasteik, fórum í Madam Tussaud, horfðum á Valiant í bíói á Leicester Square og borðuðum á Rainforest Cafe ... allt saman alveg meiriháttar og Inga Huld spurði í sífellu hvað væri næst á dagskránni !! Það var líka dáldið sniðugt að kaupa gasgrillið með Ingó hérna þar sem hann var að sjálfsögðu settur í samsetningardeildina á meðan ég þurfti að "redda" gasinu ... spurning samt hvort samsetningin hafi verið rétt gerð þar sem það stóðu eftir nokkrar skrúfur og skífur ... en allavega stendur grillið og það grillaði nautasteikina bara mjög vel.

sunnudagur, apríl 03, 2005
Þá er páskafríi 2005 lokið og líður að heimferð. Veðurfarið er aldeilis búið að vera víðtækt og er nú allt á kafi í snjó ... hvern hefði grunað að við ættum eftir að upplifa smá íslenskan vetur hér áður en við færum heim.
Fimmtudagskvöldið var frábært - byrjuðum á 101 hótel með hvítvíni og forrétt, síðan var smíðaverkstæðið þar sem við sáum Grjótharða og var það bara nokkuð gott, þaðan lá leiðin á Sjávarkjallarann sem er alveg hreint mjög vel heppnaður veitingastaður og mælum við með honum við hvern sem vill láta mæla fyrir sig ...
Við erum búin að gúffa í okkur hér og er nokkuð ljóst að ekki hefur maður grennst í fríinu, enda er það sosum ekki markmiðið, og erum við búin að vera í skipulögðum kvöldverðar og hádegisverðar boðum flesta daga vikunnar, sem er einsog það á að vera! Nýsjálenskar nautalundir, íslenskt lambafillet, karfi, skötuselur, langa, bleikja, túnfiskur, búri og að lokum grillaðir hamborgarar ... gæti bara ekki verið betra.
Inga Huld ætlar að fá að vera eftir hjá ömmu og mun Ingó koma með hana um næstu helgi ... hún er í svo löngu páskafríi í skólanum sínum að hún hefur voða lítið að gera heima í næstu viku þannig að henni leist mjög vel á að dvelja aðeins lengur á klakanum ... sérstaklega eftir að snjórinn kom.
Við óskum okkur góðrar ferðar heim til London.