Þá er páskafríi 2005 lokið og líður að heimferð. Veðurfarið er aldeilis búið að vera víðtækt og er nú allt á kafi í snjó ... hvern hefði grunað að við ættum eftir að upplifa smá íslenskan vetur hér áður en við færum heim.
Fimmtudagskvöldið var frábært - byrjuðum á 101 hótel með hvítvíni og forrétt, síðan var smíðaverkstæðið þar sem við sáum Grjótharða og var það bara nokkuð gott, þaðan lá leiðin á Sjávarkjallarann sem er alveg hreint mjög vel heppnaður veitingastaður og mælum við með honum við hvern sem vill láta mæla fyrir sig ...
Við erum búin að gúffa í okkur hér og er nokkuð ljóst að ekki hefur maður grennst í fríinu, enda er það sosum ekki markmiðið, og erum við búin að vera í skipulögðum kvöldverðar og hádegisverðar boðum flesta daga vikunnar, sem er einsog það á að vera! Nýsjálenskar nautalundir, íslenskt lambafillet, karfi, skötuselur, langa, bleikja, túnfiskur, búri og að lokum grillaðir hamborgarar ... gæti bara ekki verið betra.
Inga Huld ætlar að fá að vera eftir hjá ömmu og mun Ingó koma með hana um næstu helgi ... hún er í svo löngu páskafríi í skólanum sínum að hún hefur voða lítið að gera heima í næstu viku þannig að henni leist mjög vel á að dvelja aðeins lengur á klakanum ... sérstaklega eftir að snjórinn kom.
Við óskum okkur góðrar ferðar heim til London.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli