Margt og mikið er búið að gerast síðan síðast ... Palli bróðir kom í heimsókn um þarsíðustu helgi og gisti hjá okkur ásamt Hönnu Siggu sinni. Þau gátu nú verslað og var farið með þau í þeim eina tilgangi í Bluewater mallið á föstudeginum ... enda er pundið svo ódýrt núna ... Við fórum síðan útaðborða á meiriháttar veitingastað Nobu og vorum við ekki svikin (okkur Jóu fannst þó Hakkasan eilítið betri), síðan var farið á barrölt í kringum Trafalgar Square þar sem við fórum á bar með stærsta Bourbon framboð í London og enduðum síðan í dansandi stuði á Mint Leaf þar sem spilandi saxófónleikari fór villtur um á dansgólfinu!! Á meðan var Inga Huld í góðu yfirlæti hjá Gísla og Halldóru og fór með þeim útaðborða á Gaucho Grill og svo í Ben & Jerry´s ... ekki amalegar barnfóstrur það.
Um þessa helgi kom svo Eva á laugardeginum og var barnfóstra fyrir okkur ... ég og Jóa skelltum okkur á miða á The Producers og fórum síðan að borða á Babylon roof gardens og dönsuðum síðan inní vetrartímaskiptin á næturklúbbi þeirra. Það er skemmst að segja frá því að stykkið (sem er í raun farsi, leikrit, söngleikur og kabarett) er alveg frábært og hægt að skemmta sér konunglega yfir því. Núna notfærðum við okkur lærdóminn frá því við fórum á ballettinn og beið eftir okkur hvítvínsflaska í hléinu ... alveg bráðsmellið ... hléið var reyndar dáldið stutt fyrir drykkinn en þá var bara boðið uppá plastglös og gat maður síðan sötrað kalt hvítvín á meðan sýningarinnar var notið!
Jóa byrjar svo í fyrstu arkitektavinnunni sinni á morgun og er mikill spenningur í gangi! Við erum búin að finna barnfóstru fyrir Ingu Huld sem mun sækja hana í skólann, tvisvar í viku til að byrja með, og koma með heim. Vinnan hennar Jóu er nefnilega ekki svo langt frá minni vinnu og er því dáldið ferðalag á hverjum degi að koma Ingu Huld í Blackheath, taka svo lestina í vinnuna og sækja Ingu Huld síðan aftur í Blackheath á leiðinni heim ... alveg ljóst að þetta mun taka á til að byrja með ... ég hef t.d. miklar áhyggjur af því að Jóa hafi núna ekki tíma til að galdra fram sína góðu kvöldrétti á hverju kvöldi ... en kannski er það bara gott fyrir mínar línur.
Það er nánast búið að pakka inn öllum jólapökkunum þetta árið!! Var pínu jólalegt núna þar sem bretarnir eru að sprengja flugelda í tilefni Guy Fawke dagsins sem er um næstu helgi, en þegar bankað var á hurðina áðan og tvær stúlkur sögðu "trick or treat" þá hvarf öll jólastemmning ...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli