fimmtudagur, október 06, 2005

Var nú nokkuð stoltur af mér varðandi "diy" eða "gþs" á fartölvunni hér. Pantaði um daginn nýtt innra minni þar sem sumum fannst tölvan dáldið hæg ... sérstaklega þegar verið er að vinna í myndvinnslu í nokkrum forritum í einu. Var því keyptur 512 kubbur og bætt við núverandi 256 kubbinn ... þetta virðist hafa gengið upp ... allavega segist tölvan núna hafa 768 í innra minni og hún virðist einnig ganga aðeins hraðar en líklega á eftir að reyna betur á það.

diy = doityourself
gþs = gerðuþaðsjálfur

Annars allt í góðu gengi hér og nóg um að vera - keyptum meira að segja háaloftsgólfplötur í B&Q um daginn og settum þær upp. Þar ætlum við að koma fyrir nokkrum kössum sem eru fullir af bókum, skóladóti og barnadóti frá Ingu Huld. Það er ómögulegt að stútfylla alltaf bílskúrinn af þessu og virðist háaloftið einnig aðeins hreinlegra þó að það sé nú ekki einangrað frá umheiminum. Við vonum allavega að það sé ekki of rakt þarna fyrir bækurnar okkar.

Inga Huld er voða spennt að fara í næsta "spelling test" á morgun og er hún staðráðin í því að gera allt rétt! Hún tilkynnti mér síðan áðan hvort hún fengi þá ekki örugglega dúkku ... ég sagði nú að það væri ekki alltaf en ef hún fengi 10 þá mætti hún allavega kaupa límmiðaspjald. Fannst það sanngjarnt og sættist hún á þessa lausn. Orðin núna enda á "ip" og eru t.d. nip, sip, zip, chip, ship, dip, tip, lip, rip og hip ... hefði aldrei getað giskað á það að það væru svona mörg þriggja/fjögra stafa orð sem enda á "ip". Það hefur reyndar valdið dáldið erfiðleikum að heyra muninn á "sip" og "zip" ... má það kannski rekja til þess að við erum ekki alveg viss um það hvernig bera á fram "zip" ... höfum við reynt að leggja mikla áherslu á zeduna í byrjun og hún virðist allavega heyra einhvern mun ... hvort þetta sé einsog bretarnir segja það hef ég ekki hugmynd um. Þetta kemur allt saman í ljós á morgun en sumt er sem sagt dáldið tricky. Hún er búin að læra triksið með "ch" og er flugfær að skrifa "chip" og finnst mjög gaman að segja núna "dip the chip".

cheers

Engin ummæli: