
Fræðatröll
Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.
Hvaða tröll ert þú?
og svo hans Valda ...

Viðskiptajöfur
Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.
Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: "Peningana eða lífið!?" Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.
Það er toppurinn að vera í teinóttu.
Hvaða tröll ert þú?
... þetta er nú bara dáldið smellið ... en þetta má sem sagt finna hjá Stílbroti sem er hjá þeim framtakssömu Sif og Geir í Ipswich - flott síða!! Líklega skemmtileg bók ... ætli mörgum finnist hún ekki skemmtilegri en sú sem er hér aðeins neðar á síðunni. (ps. Sif ef þig vantar bók til að þýða á íslensku þá er hún upplögð!).
cheers
1 ummæli:
Hí, hí... Inflation-Linked Products bókin verður þokkalega næsta bók sem ég þýði ;) Til hamingju með bókina!
Kv. Sif.
Skrifa ummæli