mánudagur, nóvember 21, 2005

Heljarinnar leiðangur var farinn í bæinn í gær - við tókum lestina í bæinn og svo túbuna í Knightsbridge þar sem haldið var í íslenska sendiráðið. Þar fór Inga Huld í íslensku skóla þar sem hún lærði að skrifa íslenska stafi, syngja íslenska söngva og fara í íslenska leiki. Fannst henni það mjög skemmtilegt og leit þetta bara vel út. Á meðan röltum við um Sloane Street, kíktum í gluggana og fórum síðan í Harvey Nichols sem er shopping mall þarna. Sosum ekki mikið verslað en þeim mun meira skoðað ... eftir að hafa sótt Ingu Huld og satt hungur okkar á nærstöddu hóteli á klúbbsamloku og frönskum þá var haldið í Harrods. Nóg um að vera þar og í rauninni alltof mikið af fólki ... keyptum þar kaffi sem ku vera voða fínt jólakaffi ... kólumbískt með brandy keim ... ekki amalegt. Ingu Huld fannst náttúrulega voða gaman í dótadeildinni enda er líka svo mikið um að vera þar, alls konar tæki og tól á fleygiferð um allt svæðið. Við kíktum ekki á jólasveininn núna enda var rúmlega klukkutíma bið í röð eftir því að komast til hans ... enginn var í stemningu fyrir því!!

Í kvöld vorum ég og Inga Huld bara ein í kvöldmat þar sem Jóa fór á skólakynningu ... við fengum okkur afganginn af lambalærinu frá því á laugardaginn, skelltum smá íslensku remúlaði á ristað brauð og spældum okkur egg ... hálfgerður bistro matur ... Ingu Huld fannst þetta bara nokkuð gott eftir að hún fékk að gera samloku úr þessu öllu saman.

cheers

Engin ummæli: