Fórum í göngutúr í gær í Greenwich Park, eða sem sagt ég og Jóa gengum á meðan Inga Huld hjólaði. Þurfti að taka hjólið í gegn og hækka hnakkinn og þvíumslíkt - greinilegt að sumir eru að stækka. Okkur finnst síðan best að hjóla bara beint áfram og er hún þess vegna alltaf langt langt á undan okkur nema að við sprettum úr spori - æfing dagsins var því að hjóla í hringi, snúa við og beygja og svoleiðis ... gekk það bara nokkuð vel.
Annars er jukkan okkar hálfdöpur þessa dagana - virðist þetta hafa byrjað áður en jólatréinu var fleygt úr stofunni þannig að ekki virðist hún sakna jólatrésins. Kannski er það frekar sú staðreynd að hún var flutt útí hornið á stofunni og fékk ekki eins mikla athygli og jólatréið sem olli því að hún varð niðurdregin. Enn ein skýringin er sú að jólatréið hafi reynt að drepa jukkuna ... ekki veit ég hvaða aðferðum jólatréið beitir til þess en sumir hafa þessar kenningar. Við vonum að hún hressist við núna með því að hún er vökvuð sérstaklega vel og alltaf nægri athygli beint að henni ...
cheers
mánudagur, janúar 30, 2006
laugardagur, janúar 28, 2006
Ennþá kalt í London þó það sé ekki eins kalt og á meginlandi Evrópu þar sem fólk frýs úr kulda í orðsins fyllstu merkingu. Vorum með veislumat í kvöld þar sem tengdapabbi var á ferðinni - dáldið spaugilegt að fá svona kvöldmatarheimsókn en mjög notalegt ... buðum uppá roastbeef með heimagerðu remúlaði, steiktum rauðlauk og frönskum kartöflum, alltof gott og ekki gaf súkkulaðikakan í desert neitt eftir!
cheers
cheers
miðvikudagur, janúar 25, 2006
Það er eitthvað lítið um skriftir um þessa dagana - best að skrifta dáldið núna. Ástæða þessa skriftaleysis er vegna ferðalaga en nú eru allir heima. Hér er bara skítakuldi og var allt í klakabrynju í gærmorgun og sýndi mælirinn mínus tvær heilar gráður! ... og var það meira að segja á mælinum sem yfirleitt er frekar hagstæður ... Það var nú aðeins skárra veðrið á Boca í Flórída þar sem ég þurfti (því miður ...) að vera viðstaddur ráðstefnu - erfitt stundum að vera í vinnunni - sérstaklega þarna þar sem það var svo kalt inni að það þurfti að fara út fyrir í 25 stiga hitann og sólskinið til að hita sig.
Annars bara lítið um að vera og fátt um fréttir ... allir bara í góðum gír og lífið í vanagang ...
cheers !!

sunnudagur, janúar 15, 2006
Það er hálftíðindalaust héðan úr London - gengur á með hitasveiflum, allt frosið einn morguninn og síðan uppí tíu stiga hiti um helgina. Grillaði úti nautalundir í gær og voru þær súper góðar ... ætlaði nú ekki að leggja í það að grilla vegna þess að það var hálfkalt og síðan voru smávegis dropar ... hugsaði svo með mér að þetta væri nú bara mjög gott grillveður á íslenskum mælikvarða þannig að ég skellti mér bara í dæmið. Annars var bara mikil afslöppun um helgina og kláraði ég meðal annars jólabókina mína, Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason. Var bara nokkuð góð þó það sé dáldið spaugilegt að lesa um Sigurð Óla, Elínborgu og Erlend leysa mjög dularfullt morðmál í Breiðholtinu ... einhvern veginn hálfótrúlegt ...
Ég verð síðan á ferðalagi í vikunni og skil stelpurnar bara eftir - byrja í stóra eplinu NY en flýg síðan suður á bóginn og verð á ráðstefnu ekki langt frá Miami ... skilst að veðrið þar sé bara nokkuð gott - gengur á með sólskini og hlýindum.

mánudagur, janúar 09, 2006
Í gær fórum við Inga Huld í bæinn að dunda okkur - byrjuðum á því að kíkja hvort eitthvað væri í bíó á Leicester square en fundum ekkert spennandi. Röltum því í bókabúð á Oxford Street og keyptum þar Narnia bók fyrir Ingu Huld - í HMV gátum við síðan keypt okkur geisladiska, keyptum meðal annars disk með Emilíönu Torrini sem verður spennandi að heyra í. Við fórum í fyrsta skipi í Apple búðina á Regent Street og þvílík búð !! Ingu Huld fannst feikigaman á efri hæðinni þar sem voru nokkrar tölvur með krakkaforritum og hún dundaði sér heillengi þar á meðan ég fann mér hulstur utan um nýja ipoddinn minn. Við fengum okkur svo hamborgara og kjúklinga fingra með "smælí feis" kartöflum á TGI Fridays á leiðinni heim en gátum ekki yfirgefið Leicester square þó á heimleiðinni án þess að fá okkur smávegis Haagen Daz í desert ... nammi namm !!
Núna í dag vorum við svo aftur saman og held ég að Ingu Huld langi þó bara að fara að byrja aftur í skólanum. Hún var þó hörkuduleg á scooternum sínum og æfði sig að ýta sér áfram og láta sig svo renna bara. Við reyndum líka að láta gera við útvarpið í bílnum en einsog áður hefur komið fram þá er það læst þar sem þurfti eitthvað pin númer á það. Ég fann hér nálægt búð sem virðist gera ýmislegt í bílarafmagni og spurði hvort hann gæti hjálpað mér - hann sagðist geta reddað málunum og "decodað" útvarpið fyrir mig fyrir "twenty quitt" - ég samþykkti það og tók hann þá útvarpið úr bílnum og ég má sækja það á morgun ... ég er mikið að spá í því hvort ég eigi nokkurn tímann eftir að sjá þetta útvarp aftur.

laugardagur, janúar 07, 2006
Lífið fer nú bráðum allt að færast í samt horf eftir jóla- og áramótagleðina. Inga Huld byrjar í skólanum á þriðjudaginn og hlakkar mikið til þess - orðin þreytt á því að hanga svona heima þótt að henni hafi fundist á jólunum gleði og gaman hóhóhó ... á jólunum gleði og gaman hóhóhó.........
Mamma er á fullu að huga að umsóknum fyrir næsta ár því að stefnt er að masters gráðu ... þannig að ég og Inga Huld þurftum að leyfa henni að nota tímann í að undirbúa möppu og annað þvíumslíkt. Þess vegna fórum við í Sainsbury og vorum síðan með "surprice party" sem að Inga Huld stakk uppá. Hún heimtaði að kaupa kort í Sainsbury og skrifa í það til mömmu og svo var snakk í forrétt ásamt bjór (sem hjálpaði vonandi til við sköpunargleðina í möppuvinnunni milli forréttar og aðalréttar) og í aðalrétt kokkaði ég einhverja kjúklingalundir í nir-pir sósu sem kom tókst nú bara nokkuð vel ... þó ég segi sjálfur frá. Annars tókst okkur að klára smákökurnar í dag fyrir utan nokkrar marsipankökur sem eru nú alltaf góðar bara svona á kvöldin þannig að þær teljast varla með sem jólasmákökur ... þetta var sem sagt mjög passlegt.

mánudagur, janúar 02, 2006
GLEÐILEGT NÝTT ÁR !!!
Áramótin hér voru bara nokkuð fjörug - ég og tengdó fórum sérferð í um 40 mílur út frá London í spes búð til að kaupa flugelda á föstudeginum til að það væri nú hægt að sprengja gamla árið og fagna nýju ári á hefðbundinn íslenskan máta. Það var heldur ekki erfitt að toppa nágrannana og vera sprengjukóngur hverfisins þar sem enginn annar var að standa í neinum rakettusýningum. Nágrannarnir voru því límdir með nefið á rúðunni á meðan við sendum upp okkar 24 rakettur og einhvern slatta af tertum - Inga Huld skemmti sér líka konunglega með stjörnuljósin. Kvöldmaturinn var algjört æði - ferskar tiger rækjur í forrétt og í aðalrétt þessi líka magnaði dádýrahryggur sem sló heldur betur í gegn enda var búið að nostra við hann hálfan daginn. Síðan þar sem ekki var nóg af sprengjum hér heima þá skelltum við okkur í bæinn með síðustu lestinni fyrir miðnættu og slógumst í hóp með öðrum 200 þúsund Lundúnabúum og horfðum á flugeldasýningu hjá London Eye. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að þetta var flottasta flugeldasýning sem ég hef séð og sló út menningarnæturflugeldasýninguna hans Alfreðs í Orkuveitunni !! Það rigndi síðan kampavíni á miðnætti þegar fólk í miðri þvögunni var í því að hrista og opna kampavínsflöskur - sem sagt allir í miklu stuði og Inga Huld skemmti sér konunglega á háhesti en sofnaði svo í lestinni á heimleið.
Í gær voru svo allir dáldið þreyttir þannig að við gengum bara um Greenwich og slöppuðum af. Í dag var síðan sprett úr spori og haldið á útsöluna í Harrods sem er nú bara almennileg útsala - fullt af afslætti og var verðið þá orðið viðráðanlegt!! Inga Huld fékk kjól, ég skó og síðan græjaði tengdó fyrir okkur jólagjöfina sem var viðbót í nýja hnífaparasettið. Eftir að hafa rölt síðan aðeins um miðbæinn líka voru allir orðnir dauðuppgefnir og það strax á öðrum degi í nýárinu.