sunnudagur, janúar 15, 2006

Það er hálftíðindalaust héðan úr London - gengur á með hitasveiflum, allt frosið einn morguninn og síðan uppí tíu stiga hiti um helgina. Grillaði úti nautalundir í gær og voru þær súper góðar ... ætlaði nú ekki að leggja í það að grilla vegna þess að það var hálfkalt og síðan voru smávegis dropar ... hugsaði svo með mér að þetta væri nú bara mjög gott grillveður á íslenskum mælikvarða þannig að ég skellti mér bara í dæmið. Annars var bara mikil afslöppun um helgina og kláraði ég meðal annars jólabókina mína, Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason. Var bara nokkuð góð þó það sé dáldið spaugilegt að lesa um Sigurð Óla, Elínborgu og Erlend leysa mjög dularfullt morðmál í Breiðholtinu ... einhvern veginn hálfótrúlegt ...

Ég verð síðan á ferðalagi í vikunni og skil stelpurnar bara eftir - byrja í stóra eplinu NY en flýg síðan suður á bóginn og verð á ráðstefnu ekki langt frá Miami ... skilst að veðrið þar sé bara nokkuð gott - gengur á með sólskini og hlýindum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli