GLEÐILEGT NÝTT ÁR !!!
Áramótin hér voru bara nokkuð fjörug - ég og tengdó fórum sérferð í um 40 mílur út frá London í spes búð til að kaupa flugelda á föstudeginum til að það væri nú hægt að sprengja gamla árið og fagna nýju ári á hefðbundinn íslenskan máta. Það var heldur ekki erfitt að toppa nágrannana og vera sprengjukóngur hverfisins þar sem enginn annar var að standa í neinum rakettusýningum. Nágrannarnir voru því límdir með nefið á rúðunni á meðan við sendum upp okkar 24 rakettur og einhvern slatta af tertum - Inga Huld skemmti sér líka konunglega með stjörnuljósin. Kvöldmaturinn var algjört æði - ferskar tiger rækjur í forrétt og í aðalrétt þessi líka magnaði dádýrahryggur sem sló heldur betur í gegn enda var búið að nostra við hann hálfan daginn. Síðan þar sem ekki var nóg af sprengjum hér heima þá skelltum við okkur í bæinn með síðustu lestinni fyrir miðnættu og slógumst í hóp með öðrum 200 þúsund Lundúnabúum og horfðum á flugeldasýningu hjá London Eye. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að þetta var flottasta flugeldasýning sem ég hef séð og sló út menningarnæturflugeldasýninguna hans Alfreðs í Orkuveitunni !! Það rigndi síðan kampavíni á miðnætti þegar fólk í miðri þvögunni var í því að hrista og opna kampavínsflöskur - sem sagt allir í miklu stuði og Inga Huld skemmti sér konunglega á háhesti en sofnaði svo í lestinni á heimleið.
Í gær voru svo allir dáldið þreyttir þannig að við gengum bara um Greenwich og slöppuðum af. Í dag var síðan sprett úr spori og haldið á útsöluna í Harrods sem er nú bara almennileg útsala - fullt af afslætti og var verðið þá orðið viðráðanlegt!! Inga Huld fékk kjól, ég skó og síðan græjaði tengdó fyrir okkur jólagjöfina sem var viðbót í nýja hnífaparasettið. Eftir að hafa rölt síðan aðeins um miðbæinn líka voru allir orðnir dauðuppgefnir og það strax á öðrum degi í nýárinu.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR !!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli