föstudagur, ágúst 25, 2006

Þetta er nú meira draugabloggið ... greinilega ekkert um að vera á þessum bænum!! ... eða hvað?? Í stuttu máli sagt þá:
- endurtrúlofuðum við okkur í París og ákváðum loks giftingu.
- Valdi fluttur til í vinnu til New York.
- Heather Close í London seld til Indverjanna í þarnæsta húsi.
- öllu pakkað í gám og sent þvert yfir Atlantshafið á afmælisdaginn hennar Ingu Huldar.
- gifting með pomp og prakt á Íslandi þann 15. júlí 2006.
- ógleymanleg brúðkaupsferð til Kenýa í ævintýralegt safarí og rómantíska stranddvöl.
- íslensk sumarbústaðadvöl og veiðiferð (3 laxar þetta sumarið).
- allsherjarflutningur til New York þann 6. ágúst frídag verslunarmanna og tekið á móti gámnum þann 7. ágúst.

Síðan hefur New York verið könnuð og skönnuð og við verið að koma okkur fyrir í nýja pleisinu. Skólinn að byrja hjá frúnni og Ingu Huld og við loksins komin með nettengingu heima eftir töluverða bið.

Látum þetta duga að sinni - vonum að einhver sé enn að líta hér við.

Með kveðju frá New York
Valdi, Jóa og Inga Huld

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ, sjúkk.... loksins. Fylgist alltaf með, hef þolinmæði fílsins þar. Bestu kveðjur Hulda and family.

Ziggy sagði...

Kæra fjölskylda, til hamingju með þetta allt saman. Þar sem þið hættuð tímabundið að blogga ákváðum við bara að elta ykkur til New York þar sem við gætum fylgst betur með.

Sjáumst á morgun!
Ziggy, Elín og börn

Skrifa ummæli