Á laugardaginn gekk Ernesto yfir með ausandi rigningu og tilheyrandi leiðindum. Okkur tókst þó að finna nokkrar bókabúðir í nágrenninu þar sem Jóa þurfti að kaupa arkitektúrabækur fyrir skólann. Ein var nálægt Union Square sem ku vera með besta úrval listabóka í New York - ekki dugði það til og fannst ekki allt sem til þurfti. Um kvöldið komu svo Elín, Sigurgeir, Sandra og Unnur í kvöldmat. Kisinn vakti mikla lukku og hrifningu og fékk mikla athygli. Í matinn var túnfisk og laxa sashimi í forrétt, síðan kjúklingabitar á rósmarínstilkum í aðalrétt og að lokum var heimagerður broddgaltavanilluís með berja og makkarónu mauki ... algjört nammi!! Þrátt fyrir lítið eldhús þá virtist alveg ganga að galdra þar fram góðan mat. Stelpurnar dunduðu sér langt fram eftir nóttu við leik og virtust ánægðar að fá leikfélaga. Skólinn byrjar í næstu viku hjá Ingu Huld þannig að fríinu fer að ljúka fljótlega hjá henni sem ég held að henni hlakki mikið til að gerist - alveg búin að fá nóg af þessu hangsi.
Á sunnudeginum sváfum við lengi og hvíldum okkur vel og vandlega - það var líka einhver þreyta í liðinu. Seint og síðar meir drösluðumst við út og fórum á
Guggenheim safnið og kíktum á sýningu hjá arkitektinum Zaha Hadid og sáum einnig sýningu á málverkum Jackson Pollock ... mjög menningarlegur dagur hjá okkur. Fundum síðan þetta líka fína austurríska kaffihús tveimur götum frá og fengum okkur heitt kakó, samlokur og súkkulaðikökur - engan kvöldmat þurfti eftir þetta!
Kisinn er búinn að fá nafn - hann heitir Herra Níels og valdi Inga Huld það nafn.

cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli