fimmtudagur, október 12, 2006

Það er mikil dagskrá framundan hjá Ingu Huld. Bekkjarsystir hennar Rosie ætlar að koma með heim eftir skóla til að leika og eru þær mjög spenntar fyrir því. Rosie var með Ingu Huld í bekk í Blackheath í fyrra og hittist það þannig á að hún ásamt sinni fjölskyldu flutti líka til NY í sumar og fór í sama skóla ... lítill heimur sem við búum í ... Síðan er afmæli á laugardaginn ásamt því að það er haustfagnaður Íslendingafélagsins þar sem boðið verður uppá SS pylsur, prins pólo og íslenskt vatn ... ekki amalegt!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ Inga Huld ég segi allt gott en þú? Ég var í bíó í dag með mömmu minni við fórum að sjá "óbyggðirnar" sem var mjög skemmtileg. Ég bið að heilsa þér kveðja þín frænka Þórunn Eva.

Nafnlaus sagði...

Halló Þórunn Eva. Gaman að heyra í þér. Ég þarf að biðja mömmu og pabba að fara með mig á þessa bíómynd. Hlakka til að sjá þig, þín frænka Inga Huld

Skrifa ummæli