Dagurinn í dag nefnist Black Friday sem er sem sagt dagurinn eftir Thanksgiving og flestar útsölurnar byrja sem gerir þennan dag að stærsta verslunardegi ársins ... Sumar útsölurnar byrjuðu á miðnætti og var fólk því að versla alla nóttina og síðan beið fólk í röðum klukkutímum saman þangað til að búðir einsog Macy´s opnuðu í morgun ... hálfklikkaðir þessir kanar ... Við ákváðum nú að kíkja aðeins á fjörið og komu stelpurnar til mín í vinnuna eftir hádegi og ég hætti snemma þar sem í dag er aftur "hálfur" dagur í vinnunni. Byrjuðum við að fara í Louis Vuitton á Fifth og 56th til að kíkja þar á verk eftir Ólaf Elíasson og síðan dóluðum við okkur niður Fifth í mannhafinu og kíktum í einstaka búðir ... hittum meðal annars Jólasveininn á efstu hæðinni í Saks og var hann bara hress, ég er þó ekki viss um það hvað hann er að gera hér svo snemma ... einnig fórum við í Macy´s og alls staðar var fólk að versla, spiluð voru jólalög og maður fer bara að komast í jólaskap við þetta allt saman.
Í gær fórum við í þennan líka eðal þakkargjörðarhátíðardinner til Sigurgeirs og co ... boðið var uppá kalkún með fyllingu, sætri kartöflumús, corn mash, zucchini brauði, gulrótum og baunum ... að sjálfsögðu var síðan epla pie í desert ásamt pumpkin pie í ábæti ... alveg meiriháttar og þökkum við kærlega fyrir okkur.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli