fimmtudagur, nóvember 23, 2006

HAPPY THANKSGIVING

Þrátt fyrir íslenskt sautjánda júní veður þá ákváðum við að kíkja á skrúðgönguna. Hún byrjaði klukkan 9 í morgun og horfðum við á byrjunina í sjónvarpinu og héldum síðan út í kuldann, rigninguna og rokið til að sjá herlegheitin og tókum með okkur regnhlífarnar. Við tókum metróinn uppá Grand Central og byrjuðum á að kíkja á jólatréið hjá Rockefeller Centre sem búið er að setja upp ... ég verð nú bara að segja það að þetta er langstærsta jólatré sem að ég hef nokkurn tímann séð ... það hefur nú verið maus að koma því fyrir þarna. Síðan héldum við í áttina að Times Square til að sjá skrúðgönguna. Vegna veðurs þá voru töluvert færri en búist var við þannig að það var ekki svo erfitt að komast nálægt til að sjá - sagt er að sumir séu mættir klukkan 6 um morguninn til að vera tilbúnir á besta stað. Blöðrurnar voru rosalega flottar en vegna vinds þá var ekki haft eins langt í böndunum og oft er þannig að þær svifu lágt en það var samt gaman að sjá þær og Ingu Huld fannst þetta meiriháttar.



Síðan er það kalkúnn í kvöldmatinn hjá Sigurgeiri og fjölskyldu ...

cheers - have a good one !!

Engin ummæli: