þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Það hlaut að koma að því ... á þetta heimili hefur sem sagt lengi lengi vantað vél til að gera ís, ísgerðarvél, þar sem ísinn ku vera mun betri þegar hann er hrærður þegar hann frystist ... allavega þá var Jóu bent á það um daginn að KitchenAid væri búið að útbúa ísgerðarvélarapparat sem hægt er að nota á KitchenAid hrærivélina sjálfa þannig að þetta krefst lágmarksaukapláss. Þetta er mikil og sniðug uppfinning frá þeim og pöntuðum við þetta strax frá Amazon svo hægt sé að hefja ísgerðina ... en þá komu slæmu fréttirnar ... semsagt þegar við fengum apparatið sem sagt var að myndi passa á allar tegundir KitchenAid hrærivéla þá semsagt passar það ekki á evrópsku útfærsluna ;( Ástæðan er víst sú að evrópskar reglugerðir fara fram á það að það sé aukalegur járnöryggishringur á hræripinnanum sem þvælist fyrir ísgerðarvélarapparatinu ... miður slæmar fréttir það ... ég stakk uppá að saga hringinn af en Jóu leist ekki á blikuna. Góðu fréttirnar eru þær að við fundum út að líklega er búið að taka tillit til þessa vandamáls og við ættum því fljótlega að geta pantað okkur nýju útfærsluna ...

Annars allt gott að frétta - hitastigið sveiflast upp og niður og er maður einn daginn með vettlinga og vetrarjakkann hnepptan uppí háls eða maður er að kafna úr hita með allt fráhneppt ...

cheers

Engin ummæli:

Skrifa ummæli