mánudagur, desember 04, 2006

Þá kom að því sem beðið hafði verið eftir með mikilli eftirvæntingu ... á fimmtudagskvöldið mætti Þórunn Eva á svæðið með sínu liði og voru fagnaðarfundir (eftir smátíma) hjá frænkunum. Hér voru sem sagt Palli, Hanna Sigga, Þórunn Eva og Tara Dís mætt í helgarferð til New York City og var meginmarkmið ferðarinnar að versla fyrir sig sem og aðra og var langur listi með í för. Það hjálpaði til að hér voru tvær tómar ferðatöskur hjá okkur sem máttu fá far til Íslands þannig að það var nóg af plássi fyrir allt versleríið. Ég tók Ingu Huld og Þórunni Evu að mér á laugardaginn þegar við fórum í bowling afmæli hjá bekkjarfélaga Ingu Huldar og skemmtu þær sér konunglega í bowling, borðuðu pizzur, snakk og ísköku ... margir voru undrandi og spurðu mig hvort ég ætti virkilega tvær dætur þar sem það er smá svipur með frænkunum og báðar með ljóst sítt hár. Á sunnudeginum fór ég síðan með þær í smáteiti hjá vinnufélögunum og hittu þær þar aðra stelpu sem þær gátu hlaupið og sprellað með. Á meðan gátu Palli, Hanna Sigga og Tara Dís verslað í "rólegheitunum" ... þau stóðu sig nú bara nokkuð vel, komu allaveganna heim með fulla kerru af pokum á hverjum degi og fylltu allar töskurnar þannig að það er sosum ekki hægt að kvarta yfir því ... það virtist meira að segja vera komin smávegis þreyta í liðið á þessu öllu saman.

Til að veita liðinu orku fórum við með þau á brasilískt steikhús á laugardagskvöldinu þar sem borgað er fast verð og síðan er hlaðborð með forréttum og meðlæti. Síðan ertu með miða hjá disknum þínum sem er grænn öðru megin og rauður hinu megin - grænt þýðir að þjónarnir bera fram steikur til þín á teinum og skera niður á diskinn þinn ef þú vilt fá hans tegund en rautt þýðri að þeir spyrja þig ekki. Í boði voru nokkrar tegundir af nautakjöti, (flank, sirloin, rif og prime rib), svínakjöt, lambkjöt, kalkúni og kjúklingur ... samtals voru þetta líklega um 15 tegundir sem maður hafði úr að velja - borðaði maður því á sig gat, einsog maður gat, og bragðaðist þetta flestallt saman bara mjög vel.

cheers

Engin ummæli: