laugardagur, desember 16, 2006

Núna átti að taka slurk í jólaskreytingunum á þessu heimili enda lítill tími til stefnu þar sem við förum til Íslands á miðvikudaginn. Jóa var búin að endurnýja jólaseríurnar þar sem að þær frá Englandi virka ekki rafmagnsins vegna og síðan fjárfestum við í jólatréi. Var einn jólatréssali ekki svo langt frá okkur sem seldi Boston furu og eitthvað annað tré sem hann lofaði okkur að það þyrfti varla að vökva það en samt myndi það halda nálunum mjög vel ... var það líka helmingi dýrara en hin tréin ... við skelltum okkur á það svo það væri nú ekki alveg strípað þegar við komum aftur frá Íslandi. Þegar jólatréið var heim komið þá fengum við nóg af litla jólatrésfætinum sem við keyptum á Hrafnhólaárunum okkar og var ætlaður fyrir ca. metershá tré ... það þurfti yfirleitt sérstaka athöfn til að jólatrésfætur á tveggja metra trjám pössuðu þar ofan í. Keyptum nokkrar jólaseríur í leiðinni þar sem þær voru svo ódýrar ...

Í dag var jólaball íslenskuskólans og var það haldið heima hjá kennaranum í Brooklyn. Var þar dansað í kringum jólatréið, jólasveinninn kom og gaf epli og bangsa og síðan voru borðaðar piparkökur og kleinur. Skemmti Inga Huld sér mjög vel enda eru þær svo margar stelpurnar á svipuðum aldri og leika sér stórvel saman.

Þegar heim var komið af jólaballinu þá fengum við Jin til að koma og passa ... við hjúin vildum kíkja aðeins út í verslunarleiðangur og var helsta takmarkið að kaupa jólagjöf fyrir Ingu Huld. Það gekk nú ekki nógu vel og mælum við ekki með því að komið sé að versla hér svona stutt fyrir jól ... það var 10 mínútna röð til að komast inn í Toy´s R Us sem er á Times Square og síðan var jólagjöfin uppseld þar. Það voru raðir inní fleiri búðir þannig að verslun gengur ekki hratt fyrir sig. Eftir að hafa fundið aðra búð þar sem jólagjöfin var einnig uppseld þá fórum við niður á Union Square og fundum hana loks til þar í annarri tilraun ... eins gott að vera ekki að versla hér á síðustu stundu! Þar sem við vorum bara tvö þá fannst okkur upplagt að nota tækifærið og skella okkur út að borða. Fórum við á Tamarind sem er indverskur staður sem við höfum labbað nokkrum sinnum framhjá og litist vel á - nafnið heillaði líka þar sem við fórum í skemmtilega dinner siglingu, þegar við vorum í Kenýa, á bát sem hét Tamarind og sigldi á ánni við Mombasa. Við mælum hiklaust með þessum stað og gefum honum fjöldann allan af stjörnum!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli