Þá eru amma og afi farin og við aftur ein í kotinu og þar sem Jóa var í fríi í kvöld frá skólanum grilluðum við SS pylsur uppi á verönd og borðuðum úti ... sólin settist á bakvið eina blokkina í vesturátt um hálfsjö og var þá notalegt hitastig til að sitja úti við ... þar sem án sólhlífar er fullheitt í sólinni.
Annars verður farið snemma að sofa í kvöld þar búið er að túristast alveg ótrúlega mikið þessa löngu og góðu helgi ... í stuttu máli þá var farið í skoðunarferð um Manhattan í "double decker" strætó, 3ja tíma bátsferð í kringum Manhattan, farið á ballettsýningu í The Met, jazz tónleikar í Dizzy´s club, hestakerruferð í Central Park, göngutúrar hingað og þangað og að sjálfsögðu góður matur snæddur í hvert mál.
cheers
þriðjudagur, maí 29, 2007
laugardagur, maí 26, 2007
Tao
Tao er asískur fusion staður, staðsettur á 58nda stræti á milli Madison og Park, í anda Nobu og gefur ekkert eftir. Við bókuðum borð með mánaðarfyrirvara til að fara með ömmu og afa út að borða áður en haldið væri á balletsýningu í The Met. Allt sem við fengum okkur bragðaðist vel og ég held bara að ekkert hafi valdið vonbrigðum. Við deildum með okkur vorrúllum með Peking önd, Chicken Satay og risa tempura rækjum í forrétt. Í aðalrétt mælti þjónninn með að við myndum panta okkur rétti fyrir hvert okkar en ekki deila þeim einsog við erum vön á þessum stöðum. Allir réttirnir eru þó þannig settir upp að það er alveg hægt að borða þá saman sem okkur finnst yfirleitt skemmtilegra með þennan mat þar sem það er þá hægt að prófa meira. Ég mæli sérstaklega með túnfiskinum ... matseðillinn sagði að það ætti að vera hvítur túnfiskur sem mig langaði dáldið til að smakka en þar sem kokkinum fannst hann ekki nógu ferskur og góður á markaðnum í morgun þá var boðið uppá Yellowtail ... mjög gott! Við héldum okkur við sjávarréttina, Miso gljáður Sea Bass frá Chile bráðnaði í munninum og Hong Kong XO rækjurnar voru meiriháttar. Enginn prófaði steikina en meðal annars var boðið uppá Kobe beef sem ég efa ekki að er gott hjá þeim. Það er nauðsynlegt að sleppa ekki desert hér en það er alveg í lagi að deila þeim þar sem stærðin dugar auðveldlega fyrir tvo og mun ekki verða deilt um þá þrátt fyrir að þeim sé deilt. Ég held ég verði bara að gefa þessum stað 5 stjörnur ... ég get ómögulega fundið eitthvað neikvætt.
miðvikudagur, maí 23, 2007
Ég hef ekki horft á fótboltaleik í lengri tíma þannig að þegar úrslitaleikur Liverpool og AC Milan var spilaður í dag hugsaði ég mér gott til glóðarinnar og laumaðist úr vinnunni í kaffitímanum til að horfa ... ég hefði sosum betur getað sleppt því þar sem mínir menn töpuðu þrátt fyrir að hafa verið mun betri allan leikinn !!
Inga Huld bíður nú með mikilli eftirvæntingu eftir ömmu og afa sem eru væntanleg með morgunfluginu á morgun og dvelja hér framyfir helgi. Veðurspáin er heit og góð og spáð er um og yfir 30 gráðu hita ... ekki er búið að setja saman of þétta dagskrá en ýmislegt er planað.
sunnudagur, maí 20, 2007
Veðrið í dag var betra heldur en rigningardagurinn í gær þannig að við ákváðum að skella okkur í laaangan göngutúr. Við byrjuðum heima og héldum suður Manhattan í gegnum Gramercy Park og Union Square og áfram niður Broadway alla leiðina niður að Brooklyn Bridge sem er hægt að ganga á yfir til Brooklyn. Þessi brú er merkilegt mannvirki og var byggð um 1880, tók um 14 ár að byggja og var hæðsta mannvirki á Vesturlöndum í nokkur ár.
Við röltum niður að ströndinni og fundum skemmtilegar búðir fyrir einskæra tilviljun, meðal annars eina sem seldi notuð dönsk húsgögn og aðra sem seldi flott "modern" barnahúsgögn, ModernTots. Það var einnig hægt að fá ís þarna og keyptum við ís á línuna í Brooklyn Ice Factory ... leit út fyrir að vera mjög gott og vorum við um 45 mínútur í röðinni og komumst við að því að ísinn þarna var mjööög góður. Þar sem við vorum búin að vera á gangi í 4 klukkutíma ákváðum við að taka lestina tilbaka og hentaði það vel að hún stoppaði nálægt Bed, Bath & Beyond. Þar áttum við eftir að kaupa borð á pallinn en stólana keyptum við um síðustu helgi. Grilluðum okkur svo kjúklingaborgara og snæddum þá úti við í blíðunni.

cheers
laugardagur, maí 19, 2007
Max Brenner: Chocolate by the Bald Man
Pizza með súkkulaði og marsmallows, beyglur með súkkulaði, súkkulaðiskot, 8 tegundir af heitu súkkulaði, súkkulaðikokteilar, súkkulaðifondue, vöfflur með súkkulaði og ís og ávöxtum, pönnukökur með súkkulaði, súkkulaðikökur, súkkulaðikonfekt o.s.frv. ... þetta er sem sagt smávegis upptalning af matseðlinum hjá hinum sköllótta Max Brenner sem býður uppá súkkulaði í öllu mögulegu og ómögulegu formi. Við fengum okkur brunch hér í dag en eftir að hafa lesið umsögn um staðinn fyrir nokkrum vikum þá var ég viss um að stelpurnar myndu fíla að koma hingað einhvern tímann. Staðurinn er á Broadway á milli 13th og 14th Street sem er beint fyrir neðan Union Square. Til að koma okkur í gang byrjuðum við á köldum súkkulaðikokteil með bananabragði og boðið var uppá marshmallows, súkkulaði og hlaupbangsa meðan beðið var eftir matnum. Inga Huld pantaði sér pizzu með bráðnu súkkulaði og glóðuðum marshmallows og ég og Jóa deildum eggjaköku með sveppum og fetaosti, ekkert súkkulaði í þeim rétti þannig að við deildum einnig vöfflum með rjóma, vanilluís, heitri súkkulaðisósu og súkkulaði. Þetta er meiriháttar staður með góðum mat, góðu súkkulaði og frábærum girnilegum réttum sem erfitt er að velja úr. Endilega að prófa þennan ... 4 súkkulaðimolar!
fimmtudagur, maí 17, 2007
Þar sem barnapían er í fríi þessa vikuna og Jóa er byrjuð á sumarönninni í skólanum þá hætti ég snemma í dag og sótti Ingu Huld í skólann klukkan 3. Þá hófst mikil dagskrá þar sem það mátti ekki breyta út af neinum hefðum sem hún og barnapían fara eftir á leiðinni í ballettinn sem er á fimmtudögum kl. 4 til 5.30. Fyrst þurfti að fara á kaffihúsið sem er uppi á Riverside Plaza og kaupa beyglu og vatn til að narta í, síðan átti að fara og taka leigubíl á horninu á 1st Avenue og 25th Street og passa að taka hann á réttu horni þannig að bíllinn gæti beygt beint inná 25th Street. Helst átti svo að borða naslið í bílnum en ég fékk Ingu Huld nú til að setjast niður úti í góða veðrinu þar sem mér fannst við hafa nægan tíma. Á meðan ballettinum stóð þá spókaði ég mig í Greenwich Village í sólinni ... við fengum okkur svo tilbúið lasagna í kvöldmatinn. Nú er Jóa aftur svo lengi í skólanum tvisvar í viku þannig að framundan hjá mér og Ingu Huld eru núðlusúpur og eitthvað annað álíka einfalt.
Um síðustu helgi drifum við okkur og keyptum stóla til að hafa á þakveröndinni okkar ... það er fínt að sóla sig þar, yfirleitt gott logn og mikill hitapollur ... nokkuð viss um að þar verður of heitt sumar vikurnar í sumar. Við erum búin að vera ansi dugleg að grilla og hefðum líklega gert það oftar nema að dagarnir enda stundum með rigningu einsog í gærkvöldi þegar það skall á með hellidembu einmitt þegar vinnudeginum lauk. Næstu tvo daga er einnig spáð rigningu og kulda, ekki nema 10-15 gráður ... ekki skemmtilegt það!
Það er skemmtilegt að fylgjast með stjórnmálaflækjunni heima ... greinilegt að ýmislegt baktjaldamakk er í gangi og er þetta svipað og að fylgjast með yfirtökutilrauninni á bankanum mínum þar sem einskis er svífst. Við horfðum á kosningarnar hér til miðnættis og var frábært að geta horft svo lengi á skikkanlegum tíma ... sáum því ríkisstjórnina ná meirihlutanum, missa hann eftir klukkutíma, ná honum aftur eftir 5 mínútur og þar frameftir götunum ... þegar við fórum að sofa var stjórnin í ágætis gír. Ég ætla síðan að halda öðrum stjórnmálapælingakommentum útaf fyrir mig en kannski á þessi frækna setning vel við "... if you can´t beat´em, join´em ..."
cheers
sunnudagur, maí 13, 2007
Friend of a farmer
Við höfum oft labbað framhjá þessum stað sem er á Irving Place milli 18th og 19th á leiðinni niður á Union Square. Það er alltaf röð þarna um helgar í brunch þannig að það var alltaf planað að fara þangað. Loksins núna á mæðradaginn ákváðum við Inga Huld að bjóða mömmu út í brunch og varð þessi staður fyrir valinu. Við höfum einu sinni fengið okkur kvöldmat þarna og var brunch´inn í sama heimilislega dúrnum. Pönnukökurnar voru mjög góðar og er það nóg til að staðurinn slái í gegn hjá Ingu Huld.
Ef málið er að fara á þægilegan og heimilislegan stað þá er þessi málið ... þrjár stjörnur þessi.
... verði ykkur að góðu ...
föstudagur, maí 11, 2007
Totonno´s Pizzeria Napolitano
Það er leitun að virkilega góðum pizza stað hérna. Pizzustaðirnir sem eru á hverju horni og bjóða uppá upphitaðar pizzusneiðar eru alveg ágætir öðru hvoru en stundum vill maður fá almennilega þunna eldbakaða pizzu. Jóa leitaði á netinu að stað í nágrenninu og þessi staður kom upp á 26th á 2nd sem er sem sagt handan hornsins í orðsins fyllstu merkingu. Við héldum þangað vongóð og leit staðurinn sæmilega út með flottum eldofnum. Pöntuðum Hawaiian pizzu og ákváðum gera dáldið öðruvísi og hafa zucchini á henni líka. Þeir gátu náttúrulega ekki haft zucchini´ið einfalt heldur var það djúpsteikt lítillega eins og tempura ... var sosum ekki slæmt en djúpsteikt grænmeti er ekki eitthvað sem okkur finnst endilega þurfa á pizzu. Að auki var pizzan of þykk og var ekki nógu crispy ... vorum því fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa pizzutilraun okkar og fær hún 2 stjörnur. Það er því enn leitun að jafngóðum pizzastað og Pizza Express í London.
... verði ykkur að góðu ...
þriðjudagur, maí 08, 2007
Jewel Bako
Var að leita að góðum sushi stað í nágrenninu og fann Jewel Bako sem staðsettur er á 5ta stræti milli 2nd og 3rd. Í rauninni skrítin staðsetning fyrir svona góðan sushi stað að vera í East Village þar sem meira er um pöbba og bari. Fékk mér Omakase Tasting Menu þar sem matseðillinn bauð uppá alltof margt girnilegt til að velja úr. Með þessu mælti þjónninn með Sake sem ég man ómögulega hvað heitir en það bragðaðist allavega mjög vel ... Samsetningin byrjaði á ýmsum hráum skelfisk einsog ostrum og hörpudisk, síðan kom ýmislegt sashhimi, túnfiskur, lax og flounder ... eftir allt þetta var bakki af 10 sushi bitum með túnfisk, makríl, sardínu, laxi, rækju, hörpudisk. Í desert var boðið uppá tvo mátulega litla bita af japönskum kökum ásamt grænu tei sem var ágætt í magann eftir allan þennan mat ...
Mæli sterklega með Jewel Bako ef málið er að fara á góðan sushi stað sem er ekki í alfaraleið. Staðurinn er með eina Michelin stjörnu og bæti ég fjórum og hálfri í sarpinn.
... verði ykkur að góðu ...
sunnudagur, maí 06, 2007
Shakeshack
Shakeshack er "skyndibitalúga" í suðausturhorni Madison Square Park í eigu Danny Meyer sem á nokkra góða staði þar í kring. Ég nota gæsalappir vegna þess að þrátt fyrir að vera lúgusala þá eru gæðin þarna mjög góð og líklega má dæma það af því að þarna er alltaf röð og fengu tengdó að kynnast því með Jóu og Ingu Huld þegar mátti bíða í 30 mínútur eftir ís í boxi. Allavega á heimleiðinni eftir smá búðarrölt og ferskt loft fyrir Jóu sem var að klára lokaritgerðina sína þetta árið þá tókum við eftir því að röðin gaf til kynna um 15 mínútna bið sem var líklega vegna þess að það var dáldið kalt úti (ekki nema um 13 stiga hiti). Við skelltum okkur því í röðina og biðum í 15 mínútur eftir því að panta:
Tvöfaldan Shakeshack hamborgara.
Einfaldan Shakeshack hamborgara.
Einfaldan ostborgara.
Tvo venjulega franskar og einn franskar með osti.
Þegar búið var að panta og borga mátti síðan bíða í 20 mínútur eftir því að fá matinn ... hann er því ekki búinn til í skyndi enda var bíðin þess virði, þvílíkir himnaborgarar!! Franskarnar voru meira að segja góðar. Mæli sterklega með hamborgara og frönskum hér í góðu veðri sem hægt er að borða í garðinum ásamt shake og/eða bjór og er alveg á hreinu að við komum hér aftur þrátt fyrir langa bið í röð. Maturinn hér fær 4 stjörnur og án nokkurs vafa hæstu einkunn af hvaða skyndibitastað sem er.
... verði ykkur að góðu ...
föstudagur, maí 04, 2007
Casa Mono
Oft höfum við ætlað að fara á Casa Mono en aldrei haft nógu mikinn fyrirvara og hefur því iðulega verið upppantað. Núna pantaði ég borð með 5 daga fyrirvara og var laust klukkan hálftólf um kvöldið sem hentaði ágætlega þar sem við áttum miða í bíó á Spiderman 3 og gátum því farið út að borða á eftir. Casa Mono er lítill Tapas staður á 52 Irving Place á horni 17th Street rétt sunnan við Gramercy Park. Í rauninni er varla hægt að kalla þetta Tapas stað þar sem réttirnir eru töluvert stærri en Tapas sem ég hef kynnst áður. Á meðan við biðum eftir borðinu settumst við á barinn þeirra Bar Jamon sem er handan hornsins og byrjuðum við á rauðvínsflöskunni þar en stóðumst freistinguna að byrja á skinkunum. Matseðillinn var girnilegur og settum við saman 5 rétti:
1) Croquets fyllt með geitaosti og graskeri ... mjög gott en sumir bitarnir voru ekki heitir í gegn.
2) Jamon Casa Mona ... fín skinka með rauðvíninu.
3) Smokkfiskur ... mjög góður, ekki of djúsí.
4) Lambakótilettur ... alltaf gaman að panta lambakjöt á góðum stöðum og bera saman við það íslenska ... þetta gekk mjög vel upp hér.
5) Guinea hen ... mjög ljúffeng og seiðandi.
Þessir 5 réttir komu vel út svona seint um kvöldið á troðfullum staðnum og var mikið um að vera ... skemmtileg stemmning. Casa Mono fær 3,5 stjörnur og mælum við með honum en pantið borð með fyrirvara.
... verði ykkur að góðu ...
fimmtudagur, maí 03, 2007
Það er mikil eftirspurn eftir góðum hlutum ... það hlýtur að eiga vel við núna þar sem slegist er um að kaupa bankann minn. Þessi atburðarrás á eflaust eftir að komast í sögubækurnar þar sem dramatíkin er rétt að byrja ... það lítur út fyrir að mikið af málinu eigi eftir að fara fram fyrir dómstólum þar sem dómari í Hollandi sagði í dag að samningur okkar við amerískan banka um sölu á starfsemi okkar í bandaríkjunum var sagður ógildur nema hluthafar myndu samþykkja hann. Einsog staðan er í dag virðast hluthafar ekki samþykkir þeirri sölu þar sem hægt er að selja allan bankann í einu lagi á hærra verði ... það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu og næstu 2-3 dagar eiga eftir að sýna ljóst í hvað stefnir.
þriðjudagur, maí 01, 2007
Nish Restaurant
Fór í dag út að borða á veitingastaðinn Nish sem er á 405 E 58th St á milli 1st og Sutton í skemmtulegu "townhouse". Staðurinn er búinn að vera þarna í 16 ár en hét reyndar March þangað til í janúar á þessu ári ... skilst mér að eigandinn/kokkurinn hafi slegið af fínleika og verðlagi staðarins án þess að draga úr gæðunum. Maturinn var asískt/franskt fusion og mæli ég sterklega með staðnum. Hægt var að velja sér 4 rétti af matseðlinum, forrétt, aðalrétt, osta og desert eða 2 forrétti, aðalrétt, osta og engan desert eða engan forrétt, aðalrétt, osta og 2 desert o.s.frv. ... í rauninni dáldið sniðugt. Það er merkilegt hérna að það er hægt að finna góða veitingastaði út um allt og þessi er alfarið úr alfaraleið og ekki nokkur leið að túristar detti hér inn fyrir tilviljun.
Forréttur: Japanese Flounder sashimi ásamt léttsteiktum hörpudisksneiðum.
Aðalréttur: Snöggsteikt skata með fois gras ... skemmtileg blanda og skatan bragðaðist töluvert betur en sú kæsta íslenska ... þessu var skolað niður með sake. Þetta er í annað skiptið sem ég drekk sake með mat - í fyrra skiptið fannst mér það of rammt og hélt ég að þannig ætti það bara að vera en núna var það bara mjög gott og lærði ég að sake getur sem sagt verið mjög gott matarvín.
Eftirréttur: Fjórar tegundir osta sem við skoluðum niður með sætu Riesling víni. Einnig tók ég með heim með hnetukarmelluköku... klikkar aldrei að koma heim með desert fyrir Jóu!
Plúsar: Góður matur og skemmtilegur staður.
Mínusar: Þjónustufólkið mætti vera hæfara.
Staðurinn er með eina Michelin stjörnu og gef ég honum fjórar Valda stjörnur.
... verði ykkur að góðu ...