Fórum í skemmtilegan göngutúr um Lower East Side með guide í morgun ... gangan er nú ekki mikil en byrjað er á Astor Place og gengið St. Marks Place (einnig nefnt 8nda stræti) yfir til Tompkins Square Park eða sem nemur um "
five blocks". Ýmislegt merkilegt hefur farið fram í þessu hverfi en einna minnisstæðast frá lýsingunum er að fyrir ca 20-30 árum var þetta eitt mesta glæpa- og dóphverfi í Ameríku. Til að mynda þegar tekið var til í Tompkins Square Park og hann endurhannaður þá er þetta fyrsti garðurinn sem hannaður er með "crowd control" í huga. Hér hófst einnig mikið af nútímalistastefnum vegna þess að fólk hafði nákvæmlega ekkert að gera og var að reyna að drepa tímann ... þess vegna fékk sköpunargáfan að njóta sín svona mitt á meðal þess sem ýmislegt annað fékk að njóta sín ...
Hér á Holiday Cocktail Lounge hékk til dæmis Madonna oft þegar hún var að reyna við frægðina og samdi lagið Holiday tileinkað honum, en það lag var einmitt fyrsta lag hennar sem slær í gegn.

cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli