sunnudagur, desember 16, 2007

Helgin var öðruvísi að því leytinu til að Jóa var loksins, loksins komin í jólafrí og þurfti nú ekki að læra!! Ég og Jóa byrjuðum því á því að fara bara tvö út á föstudagskvöldið eftir vinnu þar sem það þurfti að kaupa jólagjöf fyrir suma ... fengum okkur svo sænskan og jólalegan kvöldmat á Aquavit á leiðinni heim. Laugardagurinn var svo notaður að miklu leyti í afslappelsi en við fórum þó aðeins út að versla og komum við á Farmers markaðnum meðal annars á Union Square ... erum nú byrjuð að kaupa mjólkina þar milliliðalaust frá Ronnybrook í glerflöskum og ég er ekki frá því að hún bragðist betur en önnur mjólk í pappa- eða plastumbúðum. Á sunnudagsmorgninum dröslaði ég mér svo eldsnemma á fætur fyrir allar aldir til að hitta tvo íslenska félaga á írskum bar til að horfa á Liverpool-ManUtd fótboltaleik sem byrjaði kl. hálfníu ... úti var rok, rigning, slabb, skaflar og hálka þannig að veðurfærið var nú ekki beysið ... hápunktur leiksins var írski morgunmaturinn. Stelpurnar byrjuðu jólabaksturinn og er nú orðið ansi jólalegt heima í öllu jólaskrautinu, jólaljósunum og kökuilminum ... við erum einnig byrjuð á Mince Pie´unum frá Harrods sem bragðast alveg meiriháttar og við keyptum meira að segja líka Stollen en Sainsbury´s stollenið slær sko heldur betur út þetta stollen úr Whole Foods. Helgin endaði á jólaglöggi hjá Sigga þar sem margt var um manninn ... þar var jólaglögg í lítratali í orðsins fyllstu merkingu þar sem einn þrjátíu lítra pottur og annar fjörutíu lítra pottur voru fullir af veigunum (seinna um kvöldið voru þeir tómir og einhverjir aðrir fullir en þá vorum við löngu farin sem betur fer ...) ... einnig komu allir með smávegis kræsingar með sér og bættum við heimabökuðum smákökum í sarpinn ... meiriháttar flott og rosalega gott. Inga Huld hitti meira að segja Söndru og Unni og leiddist því ekki dvölin í glögginu.

cheers

Engin ummæli:

Skrifa ummæli