mánudagur, janúar 21, 2008

Það var löng helgi þar sem í dag er frídagur vegna Martin Luther King. Ég var búinn snemma á föstudeginum og hitti Jóu á Grand Central Market þar sem við versluðum nautalundir á grillið í kvöldmatinn. Hitastigið var rétt undir fimm gráðunum, heiðskírt og nokkuð lygnt þannig að það viðraði ágætlega til að grilla úti. Það var ekki flókin eldamennskan þar sem eina meðlætið var parmaostur, rocket, tómatar, basil og grillað eggaldin ... einfalt en mjög gott.

Á laugardagsmorgninum rifum við okkur framúr eldsnemma þar sem við áttum pantaðan Zipcar og var planað að keyra út í sveitir New York fylkis. Fyrst lá leiðin upp til Saugertis þar sem við fengum okkur hádegismat og síðan keyrðum við í gegnum Woodstock sem leið lá til Bethel Woods þar sem hálf milljón hippa samsöfnuðust á fyrstu Woodstock hátíðinni árið 1969 hjá bóndabýli Max Yazgur. Eftir nokkra leit og með hjálp lögreglumanns sem sá sér auman á villtum túrhestunum fundum við loks þennan sögufræga túnblett.


Góður og fínn bíltúr og þegar heim var komið fengum við okkur að borða á City Crab sem var á leiðinni heim frá bílaleigunni. Fengum okkur humar og krabba sem bragðaðist mjög vel ... sjáum fyrir okkur að við munum koma hingað með gesti.

Það hefur helduð betur kólnað hjá okkur og var um 5 stiga bítandi frost í gær og í dag ... við reyndum að mestu að halda okkur innandyra og var allt tiltækt lið hitablásara kallað til og sett í gang! Við þurftum þó aðeins á frísku lofti að halda og héldum því í Soho í gær þar sem hægt var að fá ýmsan fallegan fatnað á góðu útsöluverði ... það urðu líka ágætis endurfundir við Karen Millen sem hefur nú opnað loksins í Soho.

Engin ummæli: