Á föstudaginn höfðum við íslenska lambalærið og var gerð ný uppskrift sem búið var að benda Jóu á þegar við vorum á Íslandi í sumar. Það er uppskrift frá Jamie sjálfum Oliver sem sker skurð meðfram beininu og fyllir þar með rósmarín og öðrum góðum kryddum, síðan er krydd og olía sett í skurði sem skorin eru í lærið og að lokum eru stórir rósmarínstönglar bundnir utan um lærið. Þetta heppnaðist mjög vel og bragðaðist lærið mjög vel og var alveg passlega eldað líka. Meðlæti voru kartöfluskífur í ofni og gulrótarmús sem var algjört nammi. Í desert var jógúrtís sem Inga Huld hjálpaði mömmu sinni að gera og var með marshmallows og súkkulaðismákökum í.
Í gær settum við saman hillur sem við keyptum fyrir Ingu Huld og er þá alveg búið að skipta út og endurhanna herbergið hennar. Kemur rosa vel út og er miklu léttara og rúmbetra heldur en það sem hún hefur haft. Við fórum síðan í Chinatown til að kaupa rækjur, hörpudisk og fisk hjá kínversku fisksölunum ... það er gott veður þessa helgina og hefur hlýnað aftur hjá okkur og var því gott og gaman að fara í göngutúr í Chinatown og Little Italy. Kvöldmaturinn var mikil tilraunastarfsemi og átti í raun að elda hann um síðustu helgi en þá kom í ljós að ómögulegt væri að elda hann nema á sértilgerðri pönnu sem var þá pöntuð. Nú var pannan komin og var því hægt að matreiða Paellu að uppskrift Mario Batelli sem leggur mikla áherslu að hræra alls ekki í henni og elda hana aðeins lengur en þú heldur að þurfi. Útkoman hjá okkur var algjört nammi og sem betur fer var pannan stór þannig að það er til afgangur!! Í desert var svo lystilega gott Tiramisu ...

Eftir að hafa gert vel við okkur í mat um helgina var kominn tími á hreyfingu og fengum við okkur góðan göngutúr í dag með Ingu Huld á scooternum meðfram Eystri ánni. Svo skal haldið á Sweet and Sticky tónleika Madonnu og er búið að hita upp með Madonnu músík nú í nokkra daga til að hita upp ...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli