sunnudagur, nóvember 25, 2007
föstudagur, nóvember 23, 2007
Black Friday
Svartur föstudagur í dag og skýrist nafnið af því að daginn eftir Thanksgiving byrjar útsölutímabilið og fara búðirnar að sýna hagnað eftir tap haustsins þ.e.a.s. tölurnar snúast úr því að vera rauðar yfir í að vera svartar ... nafnið er sem sagt ekki neikvætt einsog ætla mætti í fyrstu. Ég ætlaði að dröslast í ræktina í morgun eftir að hafa belgt mig út af kalkún í gær en þar var auðvitað lokað ... fékk mér því smávegis göngutúr uppá 5th til að athuga stemmninguna. Viti menn, fyrir klukkan sjö um morguninn var slatti af fólki á ferli og komið með verslunarpoka úr H&M og Armani ... kíkti inní eina búð sem var búin að vera opin frá klukkan 5 og var mikið stuð þar á fólki, músíkin í botni og allt á fullu!!
Ég hætti síðan snemma í vinnunni þar sem markaðirnir lokuðu klukkan tvö og hitti stelpurnar. Við kíktum aðeins á útsölurnar og gátum græjað eina jólagjöf. Fengum okkur kvöldmat á Fransk-Bavarian Brasserie sem er nálægt okkur. Þeir eru búnir að stútfylla staðinn af jólaskrauti og er alltaf fullt af fólki þar einnig. Fannst við hæfi að fara á jólalegan stað og hlusta á jólalög á meðan borðað var vínarsnitsel ...
fimmtudagur, nóvember 22, 2007
Happy Thanksgiving!
Við kíktum aftur á skrúðgönguna þetta árið og var veðrið töluvert betra heldur en í fyrra þegar það rigndi látlaust. Núna var sól og blíða með 15 stiga hita ... enda var líka töluvert meira af fólki að horfa. Skrúðgangan leit út fyrir að vera mjög flott - við sáum nokkrar risablöðrur svífa hjá og vakti Shrek mikla lukku hjá áhorfendum. Nenntum ekki að vera lengi í mannmergðinni og fórum heim og fengum okkur sveppasúpu ...
Um kvöldið fórum við í þakkargjörðarmáltíð til Sigurgeirs og fjölskyldu þar sem Elín var búin að töfra fram kalkúna með öllu tilheyrandi að amerískri venju. Það var því heldur betur hægt að belgja sig út og auðvitað var pumpkin pie í desert!
sunnudagur, nóvember 18, 2007
Það var kominn tími á steik þessa helgina ... það var girnileg og einföld uppskrift í nýju bókinni hans Jamie Olivers, "Jamie at Home". Trixið samkvæmt Jamie þegar eldað er Ribeye er að taka dáldið af fitunni sem er í miðjunni og dreifa því um kjötið með því að þrýsta litlum bitum af því hér og þar inn í kjötið ... þannig verður kjötið safaríkara og bragðbetra. Kjötið var síðan kryddað með olíu, salti, pipar og rósmarínstönglum og á grillinu var það penslað reglulega með olíu, sítrónusafa og rósmarín ... grillaði úti og lét 5 stiga hitann ekki á mig fá. Með þessu var borið fram Rocket og grillaðar kartöflusneiðar kryddaðar með olíu, rósmarín og sage. Kom mjög vel út og verður að segjast að kjötið var mjög bragðgott og safaríkt! Fengum okkur í desert Pecan pie með Haagen Dazs vanillu ís.
cheers
laugardagur, nóvember 10, 2007
Skráðum okkur í "car sharing" hjá ZipCar og notuðum okkur þessa þjónustu núna í fyrsta skipti. Dáldið sniðugt apparat og virkar þannig að bílar eru geymdir í bílageymslum víðsvegar um borgina og er t.d. ein 2 götur frá okkur. Hægt er að panta bíla á netinu og er lágmarkstími 1 klukkutími ... þetta er því mjög þægilegt ef það á að snattast eitthvað. Við skráningu fengum við kort sem er notað til að opna bílinn sem pantaður hefur verið og eru lyklarnir til reiðu í bílnum. Það er hægt að panta ýmsa bíla og við notuðum tækifærið og prófuðum Mini Cooper sem var mjög skemmtilegt að keyra. Fórum til New Jersey þar sem okkur langaði í nokkrar búðir og komum einnig við í IKEA og keyptum eitt og annað eins og skrifborðsstól fyrir Ingu Huld og piparkökur ...
sunnudagur, nóvember 04, 2007
Jæja, það kom að því ... það styttist sem sagt í jólin ... hér er ekkert verið að slóra við þetta í búðunum þar sem að um leið og Halloweenskreytingarnar eru teknar niður þá eru jólaskreytingarnar settar upp og jóladiskurinn í græjurnar ... mér fannst einsog ég hefði misst einn mánuð úr og það væri 4. desember en ekki 4 nóvember ...
Við græddum einn klukkutíma í nótt þar sem klukkan var færð aftur um einn tíma ... er þá fimm tíma munur nú til Íslands ... það var skrítið þegar við löbbuðum heim rétt rúmlega fimm í dag og það var farið að myrkva ...
laugardagur, nóvember 03, 2007
Inga Huld tók þátt í dag í Kids Charity Fun Run til að safna pening fyrir Ronald McDonald House ... í Central Park voru samankomnir krakkar af öllum aldri úr flestöllum skólum New York borgar. Mikið skipulag var á svæðinu og hljóp hver aldur fyrir sig - Inga Huld í sjö ára hópnum hljóp fjórðung úr mílu og fannst þetta skemmtilegt en samt erfitt.