föstudagur, nóvember 28, 2008

Í gær fórum við í fullbúinn Thanksgiving dinner hjá Sigurgeiri og Elínu. Vantaði ekkert uppá herlegheitin nema kannski magamál til að geta torgað í sig meira af kræsingum! Það er síðan erfiður föstudagur í vinnunni þar sem maður vildi helst enn liggja á meltunni. Reyndar gott að dagurinn er stuttur og er ég kominn heim um hálffjögur. Þessi vika er frekar róleg og stutt þar sem miðvikudagurinn var einnig búinn snemma.

laugardagur, nóvember 22, 2008

Ég átti "date" með eiginkonu minni í gærkvöldi ... hittumst eftir vinnu og fórum á nýju James Bond myndina ... sosum ekkert voðalega rómó en stoppuðum svo á nýjum vínbar sem opnaði þar sem byggingavöruverslun og lyklasmiður var fyrir ári síðan áður en það kviknaði í hjá þeim. Á vínbarnum var nóg að gera og fengum við sæti eftir um hálftíma og gátum fengið okkur litlar samlokur, skinkur og osta sem var skolað niður með rauðvíni ... þetta var meira rómó en bíóið ...

Það var svo ekki mikið planað í dag. Hitastigið var um mínus fjórar gráður á celcius þegar vaknað var og langaði okkur ekki mikið út í kuldann. Við létum okkur þó hafa það og skruppum í nýja IKEA búð sem opnaði í Brooklyn og höfðum við ekki farið þangað enn ... þetta er þá fjórða IKEA búðin sem við förum í á svæðinu og gátum ekki sleppt þessari. Þeir bjóða uppá fría leigubátsferð frá Pier 11 hjá Wall Street og tekur hún um korter ... var þetta því bara skemmtileg ferð til Brooklyn og fengum við að sjá frelsisstyttuna og strandlínu Manhattan í kaupbæti. Að sjálfsögðu vantar alltaf eitt og annað úr IKEA og var ýmislegt smálegt nauðsynjadót verslað ásamt því að kaupa sænskar piparkökur og annað sænskt góðgæti úr matvöruhorninu ... slepptum þó sænsku kjötbollunum í þetta skiptið sem og pylsu í brauði sem var á tilboði 50 cent stykkið. Wall Street var orðið jólalegt og var verið að skreyta jólatréið þar fyrir utan kauphöllina.

þriðjudagur, nóvember 11, 2008

Í dag var frí hjá mér vegna Veterans Day en það olli smá svekkelsi hjá Ingu Huld þar sem venjulegur skóladagur var hjá henni. Við hjónin vorum því bara tvö þennan daginn í rólegheitum! Byrjuðum daginn á því að fara að skokka meðfram eystri ánni eftir að hafa farið með Ingu Huld í skólann. Eftir að hafa byrjað daginn svo heilsusamlega fengum við okkur göngutúr niður í Meatpacking og fengum okkur hádegismat á Fig & Olives og fórum síðan í menningarlegt gallerírölt í Chelsea og sáum þar meðal annars áhugaverða sýningu Zaha Hadid. Keyptum svo Wicked Witch brownies á Chelsea Market á leiðinni heim að sækja Ingu Huld sem var ánægð að fá köku eftir skólann. Spiluðum svo Scrabble þar sem við erum að æfa okkur öll sömul í íslenskunni.

mánudagur, nóvember 10, 2008

Babbo (Waverly Place á milli 6th & Washington Sq Park)

Vinsælasti staður NYC í boði Mario Patali. Bóka þarf borð með mánaðarfyrirvara og er samt ólíklegt að þú fáir borð á venjulegum tíma. Sagt er að kreppan sé skollin á fyrir alvöru þegar þú óskar eftir borði og símadaman spyr hvaða tíma þú vilt! Þeir eru samt með nokkur borð sem ekki eru teknar pantanir á og er sett á þau á "first served, first come basis". Við vorum því mætt á svæðið klukkan 5.35 og var laust 1 borð af þeim 6 sem í boði voru eftir að staðurinn var búinn að vera opinn í 5 mínútur. Það er þó alveg þess virði að ströggla við það að fá borð þarna og eru vinsældir staðarins auðskildar. Staðurinn er ekta ítalskur og gerir allt vel nema kannski desertinn sem sló ekki jafn rækilega í gegn og forrétturinn, pastað og aðalrétturinn. Merkilegt að Babbo missti Michelin stjörnu sína þetta árið og veit ég ekki alveg hvað gerðist þar en mér finnst hann fjögra og hálfrar stjörnu virði.

sunnudagur, nóvember 09, 2008

Skelltum okkur í outlet´ið í gær til að versla eitt og annað sem vantaði ásamt flestallar jólagjafirnar ... ákváðum að vera snemma í því þetta árið! Það er líka komið jólaskraut í búðirnar hér í borginni þannig að jólastemningin er að bresta á ... stutt í Thanksgiving og jólin komin áður en maður veit af ...

Nú er bara að pakka inn!

mánudagur, nóvember 03, 2008

Adour (55th á milli 5th og Madison)

Nýi staðurinn hans Alain Ducasse á St Regis hótelinu. Flottur og huggulegur staður í rólegu umhverfi. Maturinn er franskur í hágæðaflokki en þjónustan er því miður slök og dregur niður stemninguna. Mæli með Foie Gras og venison! Tvær Michelin stjörnur og fjórar og hálf frá mér ...

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Í gær tók Inga Huld aftur þátt í Kids Charity Fun Run þar sem krakkar í flestum grunnskólum Manhattan safna pening og hlaupa síðan stuttan hring í Central Park. Núna hljóp hún hálfa mílu en í fyrra einungis fjórðung úr mílu þar sem hún var aðeins sjö ára. Um 20 krakkar úr skólanum hennar tóku þátt og virtist þeim ekki veita af því að komast út og skvettast dáldið ... mikil orka í sumum. Inga Huld tók vel á því í hlaupinu og stóð sig með prýði en var alveg uppgefin á eftir þangað til við komum heim.


Sunnudagurinn var notaður til meiri rólegheita og byrjuðum við eldsnemma klukkan tíu um morguninn í brunch á Balthazar. Það var sosum í lagi að vera snemma á ferðinni í morgun þar sem klukkunni var breytt í nótt þ.e. klukkan 2 varð klukkan aftur 1 og græddum við þar með einn klukkutíma. Við erum búin að passa okkur að breyta öllum klukkum til að lenda ekki í neinni vitleysu þetta árið. Eftir hádegið fórum við í bíó og sáum High School Musical 3 ... afskaplega mikil Disney saga ... við bökuðum svo gómsæta pizzu í kvöldmatinn ...
Balthazar (Spring St á milli Broadway & Crosby St)

Flott franskt bistro í Soho (eitt af þeim fyrstu í NYC) sem býður uppá góðan brunch. Betra að panta borð hér með fyrirvara á hvaða tíma dags sem er. Nýbakaða brauðið þeirra er frábært sem og eggin og vöfflurnar. Væri gaman að koma hér í kvöldmat og fá steik og franskar. Fjórar stjörnur.